Ráðherra segir dómarana geta haldið áfram að dæma – Mannréttindadómstóllinn telur dóma þeirra fela í sér mannréttindabrot

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu telur að það stang­ist á við 6. gr. mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu að borg­arar séu dæmdir af fjór­menn­ing­unum sem dóms­mála­ráð­herra skip­aði í trássi við mat hæfn­is­nefndar.

Ráðherra segir dómarana geta haldið áfram að dæma – Mannréttindadómstóllinn telur dóma þeirra fela í sér mannréttindabrot

Sigríður Andersen ætlar ekki að segja af sér emb­ætti dóms­mála­ráð­herra þrátt fyrir að Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu telji hana hafa framið alvar­leg lög­brot sem leiddu til þess að brotið var gegn mann­rétt­indum dóm­þola við Lands­rétt. Þetta hefur komið fram í við­tölum við hana í hádeg­is­fréttum Bylgj­unnar og Rásar 1. 

„Já, ég tel það nú,“ sagði Sigríður aðspurð hvort hún teldi að dóm­ar­arnir fjórir, sem skip­aðir voru við Lands­rétt í trássi við mat hæfn­is­nefndar sum­arið 2017, gætu setið áfram og kveðið upp dóma í Lands­rétti. Þetta er í sam­ræmi við ummæli Birgis Ármanns­sonar, þing­flokks­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem benti á það í við­tali við Mbl.is að Hæstirétt­ur hefði kom­ist að þeirri niður­stöðu að þrátt fyr­ir ann­marka á ferl­inu þá séu dóm­ar­arn­ir rétt skip­aðir. „Þó að Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn tjái sig um túlk­un á ákvæðum mann­rétt­inda­sátt­mál­ans, þá er hann ekki æðsta dóms­vald á Íslandi,“ sagði Birgir.

Af 61. gr. stjórn­ar­skrár­innar leiðir að dóm­ur­unum fjórum verður ekki vikið úr emb­ætti nema með dómi. Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu telur hins vegar að það stang­ist á við 6. gr. mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu að borg­arar þurfi að sæta því að vera dæmdir af þeim, slíkt upp­fylli ekki kröfur mann­réttinda­reglna um rétt­inn til rétt­látrar máls­með­ferðar fyrir sjálf­stæðum og óvil­höllum dóm­stól.

Lands­réttur hefur ákveðið að fresta dóms­málum sem hinir ólög­lega skip­uðu fjór­menn­ingar dæma í út vik­una. Sigríður Andersen hafnar því að Lands­réttur sé í upp­námi vegna máls­ins. „Nei alls ekki,“ sagði hún aðspurð um málið í hádeg­is­fréttum Rásar 1. 

Eins og íslenskir dóm­stólar hafa marg­stað­fest van­rækti dóms­mála­ráð­herra rann­sókn­ar­reglu stjórn­sýslu­réttar við val á dóm­urum í Lands­rétt og sýndi ekki fram á að þeir dóm­arar sem hún valdi væru hæf­ustu umsækj­end­urnir. Fyrir vikið var brotið gegn öðrum umsækj­endum um dóm­ara­stöð­urnar og hafa þeim verið dæmdar bætur.

Nú liggur fyrir að einnig var brotið gegn mann­rétt­indum fólks sem hefur verið dæmt í Lands­rétti síðan dóm­stóll­inn tók til starfa. Má því vænta þess að farið verði fram á end­ur­upp­töku og miska­bætur í fjölda mála sem fjór­menn­ing­arnir hafa dæmt. Þá vakna spurn­ingar um mál sem sýknað hefur verið í fyrir Lands­rétti. Á meðal slíkra mála sem vakið hafa athygli er Aurum-málið svo­kall­aða þar sem Jón Ásgeir Jóhann­es­son og fleiri voru sýkn­aðir í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár