Verðlaun veitt fyrir umfjöllun um fátækt

Fjöl­miðla­verð­laun göt­unnar eru veitt fyrir vand­aða og mál­efna­lega umfjöllun um fátækt og hafa verið veitt þrisvar. Stundin hlaut fyrsta og þriðja sæti fyrir umfjall­anir árið 2018 og fjórar til­nefn­ingar þar að auki.

Verðlaun veitt fyrir umfjöllun um fátækt

Fjöl­miðla­verð­laun göt­unnar voru á dög­unum veitt Gabríel Benjamin og Jóni Bjarka Magn­ús­syni á Stund­inni auk starfs­manna Kveiks hjá RÚV. Alls voru veitt þrenn verð­laun, en fimmtán umfjall­anir frá fjórum miðlum um fátækt voru til­nefndar til verð­launa. Stundin hreppti fyrsta og þriðja sætið, og var þar að auki með flestar til­nefn­ingar, eða sex tals­ins.

Unnu tvenn verðlaun

Grein Gabríels Benjamin á Stund­inni, „Öryrkjar enn og aftur látnir sitja á hak­anum“, bar sigur úr býtum í ár. Dóm­nefndin segir að greinin hafi verið „mik­il­væg og þörf grein sem afhjúpar ann­marka starfs­getu­mats­ins og varpar ljósi á þær afleið­ingar sem það hefur haft í för með sér í öðrum löndum.“ Hún segir þar að auki að greinin hafi verið „fag­lega unnin og upp­lýsandi umfjöllun sem kemur sýn öryrkja vel til skila“.

Helgi Seljan, Aðal­steinn Kjart­ans­son og Stefán Drengs­son fengu annað sætið fyrir Kveik-þátt­inn „Svarta hliðin á íslenskum vinnu­mark­aði“, þar sem skyggnst er inn í veru­leika erlends verka­fólks sem heldur góð­ær­inu uppi. „Mikilvæg og yfir­grips­mikil umfjöllun sem vakti almenn­ing til vit­undar um falið vanda­mál, nútíma­þræla­hald í íslensku sam­fé­lagi, sem aug­ljós­lega skortir á eft­ir­lit með,“ segir dóms­nefndin.

Viðtal Jóns Bjarka Magn­ús­sonar, „Með þrjár háskóla­gráður og í fullu starfi, en samt í fjár­hags­legum nauðum“, hlaut þriðja sætið fyrir að lýsa „því valda­leysi og von­leysi sem fylgir því að fest­ast í fátækt­ar­gildrunni“. Dóm­nefndin segir að greinin „lýsi[r] dag­legri bar­áttu sem margir standa í og þeim fárán­leika að menntun skili sér ekki í öruggri afkomu“.

Heiðruð sem „Upp­ljóstr­ari göt­unnar“Bára Hall­dórs­dóttir, upp­ljóstr­ari og fötl­un­ar­aktí­visti, var sér­stak­lega heiðruð fyrir fram­tak sitt til rann­sókn­ar­blaða­mennsku á liðnu ári auk umfjöll­unar sinnar um fátækt í gegnum árin.

Verkefni Öldu Lóu Leifs­dóttur, „Fólkið í Eflingu“, auk verk­efnis Eflingar, „Líf á lægstu launum“, fengu sér­stakar við­ur­kenn­ingar. Bára Hall­dórs­dóttir var þar að auki sér­stak­lega heiðruð sem „Upp­ljóstr­ari göt­unnar“ fyrir fram­lag sitt til Klaust­urs­máls­ins og umfjöllun hennar um fátækt í gegnum árin.

Fjöl­miðla­verð­laun göt­unnar eru veitt árlega til fjöl­miðla­fólks sem fjallar um fátækt á Íslandi af kost­gæfni og virð­ingu af Pepp-sam­tökum fólks sem fæst við fátækt og félags­lega ein­angrun. Pepp-sam­tökin eru gras­rót­ar­hreyf­ing fólks með reynslu af fátækt og hluti af EAPN á Íslandi. Verð­launaum­fjall­anir hafa því verið metnar af sér­fræð­ingum á því sviði, af fólki sem hefur búið við fátækt. 

Verð­launa­af­hend­ingin fór fram þann 22. febr­úar í hús­næði Hjálp­ræð­is­hers Reykja­víkur. Hér fyrir neðan má lesa greinar Stund­ar­innar sem voru til­nefndar, raðað eftir útgáfu­degi.

1 „Nýtt úrræði fyrir eldri borgara nýtist best vel stæðum körlum“

Gabríel Benjamin greinir nýtt úrræði sem félags- og barna­mála­ráð­herra kynntu um sveigj­an­lega töku elli­líf­eyris. Tæplega 30% elli­líf­eyr­is­þega gætu nýtt þetta úrræði, en það hentar best vel stæðum körlum.

Stundin, 12. jan­úar 2018

2 „Þegar lúxemborgskt skúffufélag eignaðist heimilin okkar“

Jón Bjarki Magn­ús­son lýsir reynslu sinni af því þegar lúx­em­borg­skt skúffu­fé­lag með yfir­lýsta mark­miðið að hækka leigu­verð keypti íbúða­blokk­ina sem hann býr í í Berlín, Þýska­landi. Íbúar börð­ust gegn söl­unni.

Stundin, 9. febr­úar 2018

3 „Niðurlægð og svikin á Hótel Adam“ 

Gabríel Benjamin greinir sögu Kristýnu Králová, tékk­neskrar konu sem var lyk­il­starfs­maður á Hótel Adam. Hún lýsir kyn­ferð­is­legri áreitni eig­and­ans, en hann var dæmdur til að borga henni tæpar þrjár millj­ónir vegna van­gold­inna launa. Í kjöl­far umfjöll­unar Stund­ar­innar var hót­el­inu lokað að kröfu sýslu­manns.

Stundin, 13. júlí 2018

4 „Koma fram við okkur eins og við séum eign þeirra“

Gabríel Benjamin fjallar um starfs­lok starfs­manna Oddsson Hostel sem segj­ast hafa fengið mis­vísandi skila­boð frá yfir­mönnum sínum um hvort þau fái borgað eða ekki þegar hót­el­inu verður lokað. Starfs­fólkið lýsir miklum kvíða og óvissu um fram­tíð sína.

Stundin, 28. sept­em­ber 2018

5 „Öryrkjar enn og aftur látnir sitja á hakanum“

Gabríel Benjamin fjallar um starfs­getu­matið sem rík­is­stjórn virð­ist ætla að taka upp, þrátt fyrir að gefa annað í skyn í rík­is­sátt­mála sínum. Formaður Öryrkja­banda­lags­ins segir blaða­manni að það sé verið að reyna að neyða öryrkja og banda­lagið til að sam­þykkja þetta umdeilda nýja kerfi með því að halda aftur kjara­bótum þeirra.

Stundin, 7. des­em­ber 2018 

6

„Með þrjár háskólagráður og í fullu starfi en samt í fjárhagslegum nauðum“

Jón Bjarki Magn­ús­son tekur við­tal við móður í fullu starfi sem er að bug­ast á íslenskum leigu­mark­aði sem hún segir að sé að murka úr sér lífið. Hún er í þess­ari stöðu þrátt fyrir að vera vel menntuð og furðar sig á aðgerð­ar­leysi stjórn­valda.

Stundin, 21. des­em­ber 2018

Aðrar til­nefn­ingar voru:

Krist­jana Guð­brands­dóttir – Frétta­blaðið:
„Öðruvísi fátækt í Reykja­vík en í Ekvador“. (Frétta­blaðið, 5. maí, 2018)
„Vill ekki verða tamin milli­stétt­ar­kona í dragt“. (Frétta­blaðið, 2. júní, 2018)
„Látum ekki hafa okkur að fíflum“. (Frétta­blaðið, 3. mars 2018)

Aðal­heiður Ámunda­dóttir – Frétta­blaðið
„Fallvalt frelsi Mirjam“. (Frétta­blaðið, 1. sept­em­ber, 2018)

Viktoría Her­manns­dóttir – Rás 1
„Saga fyrrum vænd­is­konu“. (Málið er, 7. des­em­ber, 2018)

Sigríður Hall­dórs­dóttir – RÚV, sjón­varp
„Ég átti ekki í nein hús að venda“. (Kveikur, 13. mars 2018)

Fyr­ir­vari við umfjöllun: Stundin fjallar hér um atburði þar sem fjöl­mið­ill­inn sjálfur er við­fangs­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár