„Koma fram við okkur eins og við séum eign þeirra“

Starfs­fólk glæsilegs hótels í Vesturbæ Reykja­víkur er ósátt við framkomu eiganda við lokun hótelsins. Stjórnar­formaður JL Holdings segir að það sé ekkert óeðlilegt eða ólöglegt í gangi.

Oddsson Hosteli verður lokað í byrjun október, en starfs­fólk móttöku segist ekki vita hvað verði um störf þeirra eftir það. Starfs­fólk lýsir samskipta­leysi við eigendur, og segist finna fyrir kvíða yfir því hvað framtíðin muni bera í skauti sér vegna upplýsinga­skorts. Stjórnar­formaður JL Holdings og annar eigenda Oddssonar segir málið ekki vera fréttnæmt, að starfs­fólkið fái kjara­samnings­bundin laun sín, að það sé upplýst um framgöngu málsins.

Oddsson var opnað í JL-húsinu í Vesturbæ Reykja­víkur í maí 2016 og bauð gestum upp á blöndu af há- og lágmenningu. Sýnilegar lagnir og ómálaðir veggir deildu rými með hágæða hönnunar­húsgögnum. Skrifað var víða um gistiheimilið í hönnunar­blöðum og vefsíðum, en það var víða talið nýstárlegt að bjóða upp á ódýr gistirými og rándýra hönnun í sama húsi.

Áður en gistiheimilið var opnað hafði þetta húsnæði hýst matvöru­verslunina Nóatún og fræðimanna­setrið Reykjar­víkur­akademíuna. Mynd­listaskóli Reykja­víkur er til húsa á annarri og þriðju hæð …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Mest lesið undanfarið ár