Börn hvött til að forðast útivist vegna svifryks

Svifryk mælist langt yfir heilsu­vernd­ar­mörkum í höf­uð­borg­inni í dag. Almenn­ingur er hvattur til að draga úr notkun einka­bíls­ins á meðan veður er stillt, kalt og úrkoma er lítil.

Börn hvött til að forðast útivist vegna svifryks

Svifryk mælist langt yfir heilsu­vernd­ar­mörkum víða um höf­uð­borg­ina í dag. Reykja­vík­ur­borg hvetur almenn­ing til að halda börnum inni og draga úr notkun einka­bíls­ins af heilsu­vernd­ar­á­stæðum.

Styrkur svifryks í stærri ögnum (PM10) er hár sam­kvæmt mæl­ingum í tveimur mæli­stöðvum borg­ar­innar.  Við Grens­ás­veg fór klukku­tíma­gildið í 119,0 míkrógrömm á rúmmetra, en heilsu­vernd­ar­mörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Í mæli­stöð við Njörva­sund/Sæbraut var klukku­tíma­gildið 106,4 míkrógrömm á rúmmetra. Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur fylgist grannt með loft­gæð­unum og gefur út frek­ari við­var­anir ef þarf.

„Nú er hægur vindur og kalt, götur þurrar og ekki líkur á úrkomu,“ segir í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg. „Næstu daga er því búist við svip­uðum veð­ur­fars­að­stæðum. Almenn­ingur er hvattur til þess að draga úr notkun einka­bíls­ins við þessar aðstæður, nýta sér frekar almenn­ings­sam­göngur, sam­ein­ast í bíla eða nota aðra vist­væna sam­göngu­máta. Þeir sem eru við­kvæmir fyrir í önd­un­ar­færum og börn ættu að forð­ast úti­vist í nágrenni stórra umferða­gatna.“

Svifryk krabbameinsvaldandi og hættulegt börnum

Svifryk er flokkað með tvennum hætti. Annars vegar eru agnir undir 2,5 μm að stærð (PM2,5) og hins vegar agnir á bil­inu 2,5-10 μm að stærð (PM10). Síð­ar­nefnda útgáfan er sú sem reglu­lega fer yfir heilsu­vernd­ar­mörk í Reykja­vík og er slit gatna ein helsta upp­spretta þess að vetr­ar­lagi og er þar helsti söku­dólg­ur­inn notkun nagla­dekkja. Fínni svifryk­sagn­irnar eru að mestu til­komnar vegna bruna elds­neytis, en sam­kvæmt árlegri loft­gæða­skýrslu EEA metur stofn­unin það svo að allt að 80 ótíma­bær dauðs­föll megi rekja til útsetn­ingar PM2,5 svifryks á Íslandi á hverju ári. 

PM10 er skráð sem krabba­meins­vald­andi efni hjá Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni (WHO). Agnirnar eru svo smáar að þær kom­ast djúpt inn í lungun við inn­öndun og geta haft marg­vís­leg heilsu­fars­á­hrif. Innöndun í miklu magni getur leitt til önd­un­ar­erf­ið­leika og í alvar­legum til­fellum hás blóð­þrýst­ings, hjarta­á­falls, heila­blóð­falls og jafn­vel dauða. Aldraðir, börn og þeir sem eru með und­ir­liggj­andi önd­un­ar­færa- eða hjarta­sjúk­dóma eru við­kvæm­astir. Tvær íslenskar rann­sóknir hafa verið gerðar á sam­band­inu milli svifryks­meng­unar og notk­unar astma- og hjarta­lyfja. Rann­sókn­irnar sýndu fram á aukn­ingu í úttektum lyfja nokkrum dögum eftir að loft­mengun vegna svifryks og brenni­steins­vetnis jókst.

Svifryks­mengun fer helst yfir heilsu­vernd­ar­mörk þá daga sem loft er þurrt og stillt, einkum kalda vetr­ar­daga. Þá getur meng­unin safn­ast upp þar sem lítil hreyf­ing er á loft­inu. Mengunin er mest við stórar umferð­ar­æðar og nálægt verk­smiðjum, en mæli­stöðvar eru einmitt stað­settar meðal ann­ars við Hring­braut og Grens­ás­veg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár