Sniðganga Eurovision með tónleikum

Í til­efni þess að loka­kvöld íslenska for­vals­ins fyrir Eurovision fer fram í kvöld verða haldnir tón­leikar til að sýna samtöðu með Palest­ínu­mönnum.

Sniðganga Eurovision með tónleikum

Í kvöld verða haldnir svo­kall­aðir snið­göngu­tón­leikar eða Snið­göngu­tón­leikar/Apartheid-free Eurovision Party! vegna úrslita Söngvakeppn­innar 2019 á skemmti­staðnum Húrra.

„Í til­efni þess að loka­kvöld íslenska for­vals­ins fyrir Eurovision fer fram laug­ar­dags­kvöldið 2. mars, þrátt fyrir háværa kröfu fyrir því að Ísland snið­gangi keppn­ina í ár, meðal ann­ars í formi þús­unda und­ir­skrifta, verða haldnir tón­leikar til að sýna sam­stöðu með Palest­ínu­mönnum,“ segir í til­kynn­ingu frá tón­leika­höld­urum. „Þar geta tón­leika­gestir dillað sér án þess að styðja við mann­rétt­inda­brot ísra­elska rík­is­ins gegn Palest­ínu­mönnum og stutt við snið­göngu­á­kall Palest­ínu­manna.“

Eyja Orra­dóttir er einn skipu­leggj­enda tón­leik­ana. Hún segir að vegna þess að RÚV hafi ákveðið að taka þátt í Eurovision, þrátt fyrir háværa kröfu um að gera það ekki, hafi hún og fleiri ákveðið að skipu­leggja tón­leika. „Þegar RÚV ákvað að taka samt sem áður þátt var ákveðið að skipu­leggja aðra val­mögu­leika fyrir þá sem vilja sýna snið­göngu­á­kalli Palest­ínu­manna sam­stöðu, en tón­leik­arnir fara fram á sama tíma og úrslita­kvöld Söngvakeppn­innar,“ segir Eyja.

Eyja segir fjöl­breyttan hóp standa baki tón­leik­unum ásamt Félaginu Ísland Palest­ínu. Hún segir snið­göngu vera þá aðferð sem Palest­ínu­menn hafi kallað eftir og þeir sem komi að tón­leik­unum vilji hlýða því kall­inu. „Snið­ganga er eitt­hvað sem ísra­elsk stjórn­völd ótt­ast mjög, en lög voru sam­þykkt árið 2011 í ísra­elska þing­inu gegn öllum þeim sem hvetja til snið­göngu á ísra­elskum vörum og við­burðum. Snið­ganga hefur sýnt sig sem mik­il­vægt vopn í bar­átt­unni fyrir frjálsri Palest­ínu,“ segir hún.

„Snið­ganga hefur sýnt sig sem mik­il­vægt vopn í bar­átt­unni fyrir frjálsri Palest­ínu.“

„Fólk vill oft aðskilja popp­kúltúr frá póli­tík, sér­stak­lega þegar það hentar þeim, en við viljum snúa upp á það með ramm póli­tískum tón­leikum,“ segir Eyja. 

Salvör Gullbrá Þór­ar­ins­dóttir, hljóm­sveit­ar­með­limur Stormy Daniels, segir mik­il­vægt að koma því á fram­færi að snið­ganga þýði ekki, að það sé ekki hægt, að gera eitt­hvað skemmti­legt. Hljóm­sveitin Stormy Daniels styðji glöð við bar­áttu Palest­ínu­manna og sé óhrædd við að taka afstöðu „Snið­ganga snýst ekki um að sitja heima með hendur í skauti,“ segir hún. „Það er ein­hver pönk stemm­ing í hljóm­sveit­unum sem koma fram, ég fíla það.“

Þá segir Salvör að það verði ekki minni orka og stemm­ing á Húrra í kvöld en í Laug­ar­dals­höll­inni þar sem Söngvakeppnin er haldin.

„Það er ein­hver pönk stemm­ing í hljóm­sveit­unum sem koma fram, ég fíla það.“

Tón­leik­arnir byrja kl. 20:30 á Húrra í kvöld og fram koma JóiPé og Króli, Stormy Daniels, Bagdad Brothers, Gróa og Hórmónar. Eyja segir þetta allt vera hljóm­sveitir sem styðja ákallið um snið­göngu. Tón­leik­arnir eru þeir fyrstu af tveimur en næstu tón­leikar verða haldnir í kringum í úrslita­kvöldið í Tel Aviv og verða að sögn Eyju miklu stærri.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár