Heilsu intersex fólks stofnað í hættu á Íslandi

Hindr­anir á aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu hér á landi stofna lík­am­legri og and­legri heilsu fólks með ódæmi­gerð líf­fræði­leg kynein­kenni í hættu. Þetta er nið­ur­staða Amnesty International.

Heilsu intersex fólks stofnað í hættu á Íslandi
Mann­rétt­indi inter­sex barna brotin Litið er á inter­sex börn og full­orðna sem vanda­mál sem þurfi að laga, eftir því sem fram kemur í skýrslu Amnesty International.

Hindr­anir sem fólk sem fæð­ist með ódæmi­gerð líf­fræði­leg kynein­kenni, meðal ann­ars inter­sex fólk, verður fyrir varð­andi aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu hér á landi stofna lík­am­legri og and­legri heilsu þess í hættu. Þetta er ein helsta nið­ur­staða nýrrar skýrslu Amnesty International.

Í skýrsl­unni kemur fram að þegar ein­stak­lingar með ódæmi­gerð líf­fræði­leg kynein­kenni og fjöl­skyldur þeirra leita eftir þjón­ustu í íslenska heil­brigð­is­kerf­inu þá dregur skortur á skýru mann­rétt­inda­mið­uðu verk­lagi og þver­fag­legri nálgun, ásamt ónógum félags­legum stuðn­ingi, úr mögu­leikum þeirra til að njóta lík­am­legrar og and­legrar heilsu að hæsta marki sem unnt er. Áætlað er að um 68 börn með ódæmi­gerð líf­fræði­leg kynein­kenni fæð­ist á hverju ári á Íslandi.

Þrátt fyrir að jöfn­uður milli kynj­anna sé sam­kvæmt mæl­ingum hvergi meiri en hér á landi þá bregð­ast íslensk stjórn­völd því hlut­verki sínu að koma á mann­rétt­inda­mið­uðu verk­lagi innan heil­brigð­is­þjón­ust­unnar og tryggja ein­stak­lingum með ódæmi­gerð kynein­kenni þeirrar þjón­ustu sem þeir þurfa á að halda, segir einnig í skýrsl­unni.

Intersex börn þurfa á vernd að halda

Bent er á að í frum­varpi til laga um kyn­rænt sjálf­ræði, sem leggja á fyrir Alþingi á næst­unni, sé vöntun á mik­il­vægri vernd fyrir inter­sex börn, einkum þegar kemur að því að koma í veg fyrir ónauð­syn­legar, óaft­ur­kræfar og inn­grips­miklar aðgerðar á börnum sem fæð­ast með ódæmi­gerð líf­fræði­leg kynein­kenni. „Litið er á inter­sex börn og full­orðna sem vanda­mál sem þurfi að laga og sú stað­reynd að þau skortir heil­brigð­is­þjón­ustu sem tekur mið af mann­rétt­indum þeirra, getur valdið lík­am­legri og and­legri þján­ingu, lífið á enda,“ segir Laura Carter rann­sak­andi innan deildar sem sinnir mál­efnum er varða kyn­hneigð og kyn­vit­und hjá aðal­stöðvum Amnesty International.

„Litið er á inter­sex börn og full­orðna sem vanda­mál sem þurfi að laga“

Amnesty International skorar á íslensk yfir­völd að tryggja og vernda jafna með­ferð ein­stak­linga með ódæmi­gerð líf­fræði­leg kynein­kenni bæði í lögum og fram­kvæmd. Fyr­ir­liggj­andi frum­varp um kyn­rænt sjálf­ræði veitir tæki­færi til þess að takast á við þessa áskorun en eins og drögin líta út í dag er tæki­færið ekki nýtt til þess að koma í veg fyrir ónauð­syn­leg lækn­is­fræði­leg inn­grip sem miða að því að laga lík­ama barna að stöðl­uðum kynja­hug­myndum með skurð­að­gerðum, ófrjó­sem­is­að­gerðum og öðrum með­ferðum á inter­sex börnum án upp­lýsts sam­þykkis þeirra, án þess að fela í sér hegn­ing­ar­á­kvæði.

Amnesty International skorar einnig á íslensk yfir­völd að koma á sér­hæfðri og þver­fag­legri nálgun á með­ferð ein­stak­linga með ódæmi­gerð líf­fræði­leg kynein­kenni og móta og inn­leiða skýrt mann­rétt­inda­miðað verk­lag til að tryggja að börn og full­orðnir með ódæmi­gerð líf­fræði­leg kynein­kenni njóti mann­rétt­inda­verndar sem tryggir frið­helgi lík­ama þeirra, sjálf­ræði og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt. Yfirvöld skulu tryggja að ekk­ert barn með ódæmi­gerð líf­fræði­leg kynein­kenni sæti skað­legum, óaft­ur­kræfum og ónauð­syn­legum inn­gripum í lík­ama þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár