Ríkisforstjóri ákvarðar laun annars ríkisforstjóra

For­stjóri Íslands­pósts er stjórn­ar­for­maður Isavia og í starfs­kjara­nefnd fyr­ir­tæk­is­ins sem gerir til­lögu um launa­kjör for­stjóra og fram­kvæmda­stjóra dótt­ur­fé­laga þess. Gríð­ar­legt launa­skrið hefur átt sér stað eftir að lög um brott­fall kjara­ráðs tóku gildi og ákvörð­un­ar­valdið um laun stjórn­enda var flutt til stjórna.

Ríkisforstjóri ákvarðar laun annars ríkisforstjóra
Ingi­mundur Sig­ur­páls­son er for­stjóri Íslands­pósts en Björn Óli Hauksson er for­stjóri Isavia. Mynd: Íslandspóstur / Isavia

Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, for­stjóri Íslands­pósts, leikur lyk­il­hlut­verk í ákvarð­ana­töku um launa­kjör ann­ars rík­is­for­stjóra í ljósi þess að hann er stjórn­ar­for­maður Isavia og einn tveggja í starfs­kjara­nefnd fyr­ir­tæk­is­ins. Gríð­ar­legt launa­skrið hefur átt sér stað hjá rík­is­for­stjórum eftir að ákvörðun launa var flutt frá kjara­ráði til stjórna fyr­ir­tækj­anna.

Ingi­mundur hefur starfað sem for­stjóri Íslands­pósts frá árinu 2004 og var skip­aður stjórn­ar­for­maður Isavia af Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra árið 2014. Á tíma­bil­inu 2014 til 2017 hækk­uðu for­stjóra­laun Ingi­mundar hjá Íslands­pósti úr 1.186.320 krónum á mán­uði 1.435.941 krónur sam­kvæmt ákvörð­unum kjara­ráðs. Á sama tíma hækk­aði kjara­ráð launin hjá for­stjóra Isavia úr 1.436.937 krónum upp í 1.747.891. Lögin um brott­fall kjara­ráðs tóku svo gildi þann 1. júlí 2017.

Hjá Isavia, þar sem Ingi­mundur gegnir stjórn­ar­for­mennsku, er sér­stakri starfs­kjara­nefnd falið að und­ir­búa til­lögu til aðal­fundar fyr­ir­tæk­is­ins um starfs­kjör stjórn­ar­manna og við­mið fyrir laun og önnur starfs­kjör for­stjóra sem og fram­kvæmda­stjóra dótt­ur­fé­laga. Í starfs­kjara­nefnd­inni sitja ein­ungis Ingi­mundur sjálfur og Margrét Guð­munds­dóttir vara­for­maður stjórn­ar­innar. 

Þegar ákvörð­un­ar­vald launa færð­ist til stjórna í stað kjara­ráðs hækk­uðu laun for­stjóra Isavia úr 1.747.891 krónum upp í 2.380.000 krónur, eða um 36 pró­sent. Hjá Íslands­pósti hækk­uðu for­stjóra­launin einnig umtals­vert, úr 1.435.941 krónum upp í 1.795.00 krónur eða um 25 pró­sent.

Spyrja hvort tilmælin hafi skolast eitthvað til

Ólafur Steph­en­senfram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, sendi stjórnum rík­is­fyr­ir­tækja bréf í fyrra­dag þar sem óskað var eftir því að þær greindu fjár­mála-og efna­hags­ráðu­neyt­inu frá því hvernig stjórn­ar­menn hefðu brugð­ist við til­mælum frá 2017 um að gæta skyldi var­kárni við launa­á­kvarð­anir.

Félag atvinnu­rek­enda birtir færslu á Facebook þar sem því er velt upp hvort til­mælin hafi eitt­hvað skol­ast til á leið­inni úr ráðu­neyt­inu og til stjórnar Íslands­pósts: „Laun for­stjór­ans hækk­uðu um 25% á árinu 2017 við það að ákvörðun um laun hans færð­ist frá kjara­ráði til stjórnar Íslands­pósts. Stjórnin hækk­aði sín eigin laun í febr­úar 2018 um 18%. Allt þetta ger­ist á sama tíma og Íslands­póstur stefnir í þrot.“ 

Ráð­herr­ann og aðstoð­ar­mað­ur­innBjarni Bene­dikts­son og Svan­hildur Hólm Vals­dóttir.

Bent er á að vara­for­maður stjórnar Íslands­pósts er Svan­hildur Hólm Vals­dóttir. aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar. Frétta­blaðið greindi nýlega frá því að til ósættis hefði komið um launa­kjör for­stjóra Íslands­pósts á stjórn­ar­fundi í jan­úar 2018 þar sem Ingi­mundur hefði lagði fram bókun um að hann teldi að afgreiðsla stjórnar á fjár­hæð launa­greiðslna væri ekki í sam­ræmi við ákvæði ráðn­ing­ar­samn­ings. Þann 23. febr­úar 2018 lagði svo stjórn Íslands­pósts til að laun stjórn­ar­manna yrðu hækkuð úr 140 þús­und krónum á mán­uði í 165 þús­und krónur. Á þessum tíma var þegar orðið ljóst að fyr­ir­tækið glímdi við alvar­legan lausa­fjár­vanda og nokkrum mán­uðum síðar fór Íslands­póstur fram á neyð­ar­lán frá rík­inu. 

Eftir því sem Stundin kemst næst er Ingi­mundur Sig­ur­páls­son eini rík­is­for­stjór­inn sem kemur með jafn afger­andi hætti að ákvarð­ana­töku um laun ann­ars rík­is­for­stjóra. Samkvæmt til­mæl­unum frá 2017 ber stjórnum að sýna var­kárni við launa­á­kvarð­anir og gæta þess að „laun séu hækkuð með reglu­bundnum hætti til sam­ræmis við almenna launa­þróun“. Talsvert launa­skrið hefur átt sér stað und­an­farin ár og má leiða að því rök að for­stjóri eins rík­is­fyr­ir­tækis hafi óbeina hags­muni af því að for­stjóri þess næsta hækki dug­lega í launum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár