Geðlæknir segir raunir Gunnars Braga „alvarlegt merki um tímabundna heilabilun“

Ólafur Þór Ævarsson segir að ef flug­stjóri lenti í því sama og Gunnar Bragi væri hann sendur í veik­inda­leyfi og kæmi ekki til vinnu fyrr en eftir ítar­legar rann­sóknir og áfeng­is­með­ferð.

Geðlæknir segir raunir Gunnars Braga „alvarlegt merki um tímabundna heilabilun“

Ef Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, fór raun­veru­lega í 36 klukku­stunda óminn­is­á­stand eins og hann lýsti í fjöl­miðlum í gær, þá er það „alvar­legt merki um tíma­bundna heila­bilun“. 

Þetta er mat Ólafs Þórs Ævars­sonar geð­læknis og haft eftir honum í litlum fróð­leiksmola á Facebook-síðu Forvarna ehf., með­ferðar- og fræðslu­set­urs. „“Blackout” eða minnis­leysi vegna áfeng­is­drykkju er vegna alvar­legrar starfs­sem­is­trufl­unar í minn­is­stöðvum heil­ans. Ef slíkt ástand hefur varað í einn eða fleiri sól­ar­hringa er það alvar­legt merki um tíma­bundna heila­bilun,“ segir dr. Ólafur. „Ástæður eru yfir­leitt mjög mikil áfeng­is­neysla eða lang­vinnt áfeng­is­vanda­mál. Ein­stak­lingur með slík ein­kenni er ekki vinnu­fær. Ef hann gegndi ábyrgð­ar­starfi, sem t.d. flug­stjóri, væri hann sendur í langt veik­inda­leyfi og kæmi ekki til vinnu fyrr en eftir ítar­legar rann­sóknir og áfeng­is­með­ferð.“

Gunnar Bragi Sveins­son sagði í við­tali á Hring­braut í gær­kvöldi að hann myndi ekk­ert  ekk­ert um sam­ræður sínar og ann­arra þing­manna á barnum Klaustri þar sem hann hafi fallið í algert óminni um leið og hann kom á bar­inn. Minnis­leysið hafi varað í einn og hálfan sóla­hring eftir bar­heim­sókn­ina. Gunnar Bragi sneri aftur á þing í gær eftir nokk­urra vikna launa­leyst leyfi vegna Klaust­urs­máls­ins, en þeir Bergþór Ólason gengu einna harð­ast fram í óhróðri gegn sam­starfs­konum sínum.

Ekki náð­ist í Ólaf Þór við vinnslu frétt­ar­innar. Hann er  sér­fræð­ingur í geð­lækn­ingum, lauk dokt­ors­prófi frá lækna­deild Gauta­borg­há­skóla árið 1998 og hefur starfað að lækn­ingum og kennslu við háskóla­geð­deildir erlendis og á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár