Dómsmálaráðuneytið staðfestir áfellisdóm yfir móður þrátt fyrir lögreglurannsókn á föður

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur stað­fest úrskurð sýslu­manns þar sem Sigrún Sif Jóels­dóttir var sögð hafa brotið gegn barni með því að greina frá meintu ofbeldi föður þess. Faðirinn sætir lög­reglu­rann­sókn og er með rétt­ar­stöðu sak­born­ings vegna máls­ins.

Dómsmálaráðuneytið staðfestir áfellisdóm yfir móður þrátt fyrir lögreglurannsókn á föður
Sammála sýslu­manni „Ráðu­neytið hefur farið ítar­lega yfir með­ferð máls­ins og fær ekki annað séð en reglur barna­laga hafi legið til grund­vallar nið­ur­stöðu sýslu­manns,“ segir í úrskurði dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins. Mynd: Davíð Þór

Dóms­mála­ráðu­neytið telur „ekk­ert hafa komið fram“ í máli Sigrúnar Sifjar Jóels­dóttur og barns­föður hennar sem styðji kröfur Sigrúnar um að umgengni föð­ur­ins við barnið skuli fara fram undir eft­ir­liti. Maðurinn er með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í lög­reglu­rann­sókn vegna meintra brota gegn Sigrúnu en dóms­mála­ráðu­neytið hefur nú stað­fest úrskurð sýslu­manns þar sem Sigrún er sögð hafa brotið gegn barn­inu með því að lýsa áhyggjum af meintu ofbeldi. 

Sakaði barns­föður um ofbeldiSýslu­maður telur að Sigrún Sif hafi brotið gegn barni sínu með því að greina frá meintu ofbeldi sem lög­regla hefur nú til rann­sóknar. 

Sigrún Sif var einn af við­mæl­endum Stund­ar­innar í for­síðu­um­fjöllun blaðs­ins þann 11. maí í fyrra þar sem rakið var hvernig sýslu­manns­emb­ætti hafa ítrekað litið fram­hjá vís­bend­ingum um kyn­ferð­is­brot og heim­il­is­of­beldi þegar teknar eru ákvarð­anir um umgengni og dag­sektir. Var umgengn­is­úr­skurður í máli Sigrúnar og barns­föður hennar tek­inn sem dæmi um til­vik þar sem sýslu­maður lét það bitna sér­stak­lega á móður að hafa sakað barns­föður sinn um ofbeldi án þess að það hefði leitt til ákæru eða dóms. Nokkrum mán­uðum eftir umfjöllun Stund­ar­innar hóf lög­regla rann­sókn á meintu ofbeldi manns­ins, en frá­sögn af atvikum kom við sögu í áhrifa­miklu mynd­bandi UN Women gegn kyn­bundnu ofbeldi þar sem karlar lásu upp sögur þolenda. 

Barns­faðir Sigrúnar hefur sjálfur fjallað um sín per­sónu­legu mál­efni í fjöl­miðlum en athygli vakti í mars 2017 þegar hann steig fram í DV sem fórn­ar­lamb umgengni­stálm­unar og birti mynd­band af sér að nema son sinn á brott úr grunn­skóla án vit­undar móður, for­sjárað­il­ans, og í óþökk skóla­stjórn­enda. Í mynd­band­inu má sjá mann­inn ríf­ast við starfs­fólk skól­ans fyrir aftan bíl þar sem barnið situr ótta­slegið í aft­ur­sæt­inu. „Ég er svo hræddur. Af hverju er verið að ríf­ast?“ spyr dreng­ur­inn meðan fað­ir­inn veifar umgengn­is­samn­ingi sem hann telur rétt­læta gjörðir sínar. Mynd­bandið fór eins og eldur í sinu um sam­fé­lags­miðla en þar fer mað­ur­inn hörðum orðum um barns­móður sína, kallar hana „vit­firrta konu“, eða „der­anged woman“, og seg­ist vilja varpa ljósi á „hið tvö­falda sið­gæði í þjóð­fé­lag­inu“ þegar kemur að umgengn­is­málum.

Taldi ásakanir tilhæfulausar og ákvað aukna umgengni

Við með­ferð umgengn­is­máls­ins hjá sýslu­manni lagði Sigrún fram gögn úr dag­bók lög­reglu, meðal ann­ars vegna til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi frá 2007 og kæru hennar á hendur mann­inum frá 2017. Í lög­reglu­skýrslu eru hafðar eftir Sigrúnu ítar­legar lýs­ingar á átta atvikum mörg ár aftur í tím­ann, meðal ann­ars á kyn­ferð­is­of­beldi, bar­smíðum, eigna­spjöllum, hús­broti og hót­unum. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hefur lög­regla yfir­heyrt fólk sem varð vitni að til­teknum atvikum sem lýst er í kærunni. Þá liggur fyrir til­kynn­ing lög­reglu til barna­vernd­ar­nefndar Kópavogs um meint and­legt ofbeldi föð­ur­ins gegn barn­inu, en hún var send í kjöl­far þess að Sigrún leit­aði til Bjark­ar­hlíðar, mið­stöðvar fyrir þolendur ofbeldis.

Sýslu­maður komst að nið­ur­stöðu í umgengn­is­máli Sigrúnar og sonar hennar þann 7. des­em­ber 2017. Ekki aðeins var beiðni Sigrúnar um eft­ir­lit með umgengni hafnað heldur var kveðið á um aukna umgengni drengs­ins við föður sinn frá því sem fyrir var án þess þó að fað­ir­inn hefði farið fram á slíkt. Í úrskurð­inum er því slegið föstu að ásak­anir Sigrúnar gegn barns­föður sínum séu til­hæfu­lausar og jafn­framt full­yrt að með þeim hafi Sigrún skaðað barnið sitt.

Úrskurður sýslu­manns var kærður til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins þann 5. febr­úar 2018. Máls­með­ferðin í ráðu­neyt­inu tók þannig tæpt ár, en Sigrúnu Sif var ítrekað tjáð að mál­inu væri rétt ólokið. Hún leit­aði til umboðs­manns Alþingis sem skrif­aði dóms­mála­ráðu­neyt­inu og óskaði skýr­inga á töf­unum. Ráðu­neytið komst loks að nið­ur­stöðu þann 14. jan­úar síð­ast­lið­inn og stað­festi úrskurð sýslu­manns. „Ráðu­neytið telur ekk­ert hafa komið fram í mál­inu sem styður kröfur móður um að umgengni skuli fara fram undir eft­ir­liti,“ segir í úrskurði ráðu­neyt­is­ins. Að sama skapi stað­festi ráðu­neytið úrskurð sýslu­manns frá 18. júlí 2017 um að Sigrún skyldi greiða dag­sektir í rík­is­sjóð vegna tálm­unar á umgengni. 

Sagði ranglega að móðir hefði ekki tjáð sig

Í upp­haf­legum dag­sekt­ar­úr­skurði sýslu­manns var full­yrt að móðir hefði ekki tjáð sig um málið við með­ferð þess. „Hefur hún ekki tjáð sig um málið þrátt fyrir að hafa átt þess kost og verður hún að bera hall­ann af því,“ sagði sýslu­maður. Dóms­mála­ráðu­neytið við­ur­kennir í úrskurði sínum að þetta sé rangt og móðir hafi vissu­lega sent sýslu­manns­emb­ætt­inu tölvu­póst og gögn; aðfinnslu­vert sé að sýslu­maður haldi öðru fram. Þetta breytir þó engu um nið­ur­stöð­una að mati dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, enda verði ekki séð að efni gagn­anna sem Sigrún sendi hefði breytt neinu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

Barnaníðskæru dagaði uppi fyrir „mjög bagaleg mistök“
FréttirBarnaverndarmál

Barn­a­níð­skæru dag­aði uppi fyrir „mjög baga­leg mis­tök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.
Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barnaníð
FréttirBarnaverndarmál

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barn­a­níð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“ og hafa úrskurðað um umgengni án eft­ir­lits.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár