Sýslumaður taldi móður brjóta gegn barni með ásökunum gegn barnsföður sem nú sætir lögreglurannsókn

Maður sem opn­aði sig um tálmun „rugl­aðrar konu“ sætir lög­reglu­rann­sókn vegna meintra brota gegn henni. Sýslu­maður sagði móð­ur­ina hafa „brotið skyldur sínar“ með „til­hæfu­lausum ásök­unum“.

Sýslumaður taldi móður brjóta gegn barni með ásökunum gegn barnsföður sem nú sætir lögreglurannsókn
Veifaði umgengn­is­sam­komu­lagi Faðirinn sýndi grunn­skóla­kenn­ara umgengn­is­sam­komu­lag sem hann taldi rétt­læta gjörðir sínar. Honum var hampað á sam­fé­lags­miðlum fyrir sköru­lega fram­göngu eftir að hann sótti son sinn í óþökk for­sjár­for­eldris og skóla­stjórn­enda. Mynd: Heiða Helgadóttir - Skjáskot af Youtube/DV

Maður á fer­tugs­aldri, sem kom fram í fjöl­miðlum í fyrra sem fórn­ar­lamb umgengni­stálm­unar og birti mynd­band af sér að nema son sinn á brott úr grunn­skóla án vit­undar móður og í óþökk skóla­stjórn­enda sem fóru að óskum for­sjár­for­eldris, sætir nú lög­reglu­rann­sókn vegna meintra brota gegn móð­ur­inni. Áður hafði lög­reglan til­kynnt Barna­vernd­ar­nefnd Kópavogs um meint and­legt ofbeldi föður gegn syni sínum. 

Móðirin, Sigrún Sif Jóels­dóttir, var einn af við­mæl­endum Stund­ar­innar í for­síðu­um­fjöllun blaðs­ins þann 11. maí síð­ast­lið­inn þar sem rakið var hvernig sýslu­maður horfir kerf­is­bundið fram­hjá gögnum um kyn­ferð­is­brot og heim­il­is­of­beldi þegar teknar eru ákvarð­anir um umgengni og dag­sektir. Var umgengn­is­úr­skurður í máli Sigrúnar og barns­föður hennar tek­inn sem dæmi um til­vik þar sem sýslu­maður lét það bitna sér­stak­lega á móð­ur­inni að hún hefði sagt frá meintu ofbeldi barns­föður síns án þess að það hefði leitt til ákæru eða dóms.

Lögmaður manns­ins segir í sam­tali við Stundina að hún telji ekki við hæfi að setja lög­reglu­rann­sókn­ina í sam­hengi við umgengn­is­deilur Sigrúnar og barns­föður hennar. Þá gildi einu að mað­ur­inn hafi fjallað um umgengn­is­deilu sína við móð­ur­ina á opin­berum vett­vangi í fyrra. „Hún teng­ist því máli ekki neitt,“ segir lög­mað­ur­inn og bætir því við að hún telji fyrri umfjöllun Stund­ar­innar um umgengn­is­deil­una hafa verið ein­hliða. Þar hafi Stundin ekki greint frá mik­il­vægum atriðum er varða for­sögu ásak­ana móð­ur­innar, t.d. að skömmu áður hafi hún beðið mann­inn um að hafa dreng­inn hjá sér meðan hún færi í langt ferða­lag til Indlands.

Um lög­reglu­rann­sókn­ina segir lög­mað­ur­inn að henni verði að öllum lík­indum vísað frá. Maðurinn sé vændur um kyn­ferð­is­of­beldi en komi alger­lega af fjöllum. „Barnið á auð­vitað rétt á að umgang­ast föður sinn. Það að hún [móð­irin] hafi á ein­hverjum tíma­punkti átt í ein­hverju erf­iðu sam­bandi við þennan mann, það kemur þessu máli ekk­ert við, þessu umgengn­is­máli. Mér finnst alveg rosa­legt að blanda þessu svona saman.“ 

Við með­ferð umgengn­is­deil­unnar hjá sýslu­manni í fyrra lagði Sigrún fram gögn úr dag­bók lög­reglu, meðal ann­ars vegna til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi frá 2007 og kæru sinnar á hendur mann­inum frá 2017. Í lög­reglu­skýrslu eru hafðar eftir Sigrúnu ítar­legar lýs­ingar á átta atvikum nokkur ár aftur í tím­ann, meðal ann­ars á kyn­ferð­is­of­beldi, bar­smíðum, eigna­spjöllum, hús­broti og hót­unum.

Snupruð af sýslu­manniSigrún Sif var látin gjalda fyrir það í umgengn­is­úr­skurði að hafa sagt frá meintum brotum barns­föður síns sem nú eru til lög­reglu­rann­sóknar.

Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu komst að þeirri nið­ur­stöðu þann 7. des­em­ber 2017 að með ásök­unum gegn barns­föður sínum hefði Sigrún brotið gegn skyldum sínum og rétt­indum barns­ins. Tók emb­ættið mjög ein­dregna afstöðu á þá leið að eng­inn fótur væri fyrir áhyggjum móð­ur­innar af meintu heim­il­is­of­beldi og áhrifum þess á barnið. Þannig segir orð­rétt í úrskurði sýslu­manns: „Er það mat sýslu­manns að móðir hafi í veiga­miklum atriðum brotið skyldur sínar sam­kvæmt 46. barna­laga [sic] er hún hefur komið í veg fyrir að umgengni fari fram og með því að setja fram alvar­legar og til­hæfu­lausar ásak­anir í garð föður.“ Nú, mörgum mán­uðum eftir að kæran var lögð fram, hafa ásak­anir móð­ur­innar leitt til lög­reglu­rann­sóknar á hátt­semi manns­ins.

Athygli vakti þegar mað­ur­inn kom fram í við­tali á DV.is þann 28. mars 2017 og sagði frá því sem DV kall­aði „tálmun í grunn­skóla“. Frétt­inni fylgdi mynd­band sem kærasta hans tók af atburða­rás sem átti sér stað nokkrum dögum áður, þann 24. mars. Þar má sjá mann­inn ríf­ast við starfs­fólk Hjalla­stefn­unnar fyrir aftan bíl þar sem sonur hans, sem er nafn­greindur í mynd­band­inu, situr ótta­sleg­inn í aft­ur­sæt­inu. „Ég er svo hræddur. Af hverju er verið að ríf­ast?“ spyr dreng­ur­inn meðan fað­ir­inn veifar umgengn­is­samn­ingi sem hann telur rétt­læta gjörðir sínar. Mynd­bandið fór eins og eldur í sinu um sam­fé­lags­miðla og hrósuðu margir föð­urnum fyrir sköru­lega fram­göngu. Í mynd­band­inu fer mað­ur­inn hörðum orðum um barns­móður sína, kallar hana „der­anged woman“ og seg­ist vilja varpa ljósi á „hið tvö­falda sið­gæði í þjóð­fé­lag­inu“ að því er varðar umgengn­is­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

Barnaníðskæru dagaði uppi fyrir „mjög bagaleg mistök“
FréttirBarnaverndarmál

Barn­a­níð­skæru dag­aði uppi fyrir „mjög baga­leg mis­tök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.
Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barnaníð
FréttirBarnaverndarmál

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barn­a­níð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“ og hafa úrskurðað um umgengni án eft­ir­lits.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár