Öryrkjar og aldraðir losna við komugjöld

Öryrkja­banda­lag Íslands hvetur heil­brigð­is­ráð­herra til þess að þessir hópar fái einnig gjald­frjálsa sál­fræði­þjón­ustu.

Öryrkjar og aldraðir losna við komugjöld

Hætt var að inn­heimta komu­gjöld af öryrkjum og öldruðum í heilsu­gæslu og hjá heim­il­is­læknum þann 1. jan­úar síð­ast­lið­inn, sam­kvæmt ákvörðun Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra, að því er fram kemur á vef vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. Þar kemur jafn­framt fram að þar gildi jafnt hvort sem um er að ræða komu á dag­vinnu­tíma eða á öðrum tímum sól­ar­hrings­ins. Þá var gjald fyrir vitj­anir lækna til aldr­aðra og öryrkja einnig fellt niður. 

„Þetta er mik­il­væg aðgerð og liður í stefnu stjórn­valda um að draga úr greiðslu­þátt­töku sjúk­linga vegna heil­brigð­is­þjón­ustu og auka á móti fram­lög hins opin­bera. Þetta er einnig í sam­ræmi við þá áherslu að efla hlut­verk heilsu­gæsl­unnar sem fyrsta við­komu­staðar fólks í heil­brigð­is­kerf­inu“ er haft eftir Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra í til­kynn­ing­unni. Á vef Öryrkja­banda­lags Íslands er ráð­herr­ann hvattur til að beita sér fyrir því að kostn­aður við sál­fræði­með­ferð verði einnig felldur inn í heilsu­gæsl­una og að aðgengi að þeirri mik­il­vægu þjón­ustu verði aukið til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Heilbrigðismál

FréttirHeilbrigðismál

Banda­rískt fjár­fest­ing­ar­fé­lag eign­ast eina glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki Íslands

Sænskt fyr­ir­tæki sem á 64 pró­senta hlut í glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Livio hefur verið selt. Kaup­and­inn er fyr­ir­tækið Gener­alLife sem hefur keypt upp mörg glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki í Evrópu. End­an­legur eig­andi er fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum sem meðal ann­ars er í eigu vog­un­ar­sjóða.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár