Boða til samstöðufundar með Báru

Bára Hall­dórs­dóttir, upp­ljóstr­ar­inn í Klaust­urs­mál­inu, kemur fyrir hér­aðs­dóm Reykja­víkur í dag. Boðað hefur verið til sam­stöðu­fundar fyrir utan.

Boða til samstöðufundar með Báru

Bára Hall­dórs­dóttir, upp­ljóstr­ari í Klaust­urs­mál­inu, hefur verið boðuð til þing­halds í hér­aðs­dómi Reykja­víkur klukkan korter yfir þrjú í dag. Boðað hefur verið til sam­stöðu­fundar henni til stuðn­ings á meðan þing­hald stendur yfir.

Á þriðju­dag barst Báru bréf frá hér­aðs­dómi þar sem fram kom að mál kynni að vera höfðað gegn henni. Í bréf­inu segir að beiðni hafi komið frá Reimari Pét­urs­syni lög­manni, fyrir hönd fjög­urra ein­stak­linga, um vitna­leiðslur og öflun sýni­legra sönn­un­ar­gagna.

Þeir ein­stak­lingar eru Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­menn Mið­flokks­ins, sem voru á Klaustri bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og náð­ust á upp­töku að fara hörðum orðum um kven­kyns stjórn­mála­menn og ræða póli­tíska fyr­ir­greiðslu.

Bára fram í for­síðu­við­tali í Stund­inni 7. des­em­ber síð­ast­lið­inn og afhjúpaði sig sem mann­eskj­una sem tók upp sam­töl stjórn­mála­mann­anna.

Á Facebook síðu Báru til stuðn­ings er boðað til sam­stöðu­fundar með henni. Þess er óskað að fólk geymi hvers kyns mót­mæla­að­gerðir þar til fund­ur­inn er yfir­stað­inn og mæti ekki í gulum vestum, að ósk Báru. Gul vesti hafa verið tákn­mynd mót­mæla í Frakk­landi und­an­farnar vikur.

Þá er áréttað mik­il­vægi þess að hóp­ur­inn hamli ekki aðgengi hjóla­stóla að hér­aðs­dómi, gefi Báru rými og þrýsti ekki á hana eða lög­menn hennar um við­töl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár