Erfið stemning í þingveislu á Bessastöðum í gær – myndir

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þing­maður Mið­flokks­ins, lét sig ekki vanta í þing­veislu á Bessa­stöðum í gær. Sam­flokks­menn hans, þeir Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveins­son mættu ekki en greint hefur verið frá því að for­seti þings­ins hafi látið þau boð út ganga að nær­veru þeirra væri ekki óskað.

Erfið stemning í þingveislu á Bessastöðum í gær – myndir
Ráð­herra­dans Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og Sigríður Anderson dóms­mála­ráð­herra létu sig ekki vanta í veisl­una sem fór fram á meðan vindar geisuðu.

Þingmenn fjöl­menntu í þing­veislu á Bessa­stöðum, sem haldin er árlega í til­efni af full­veld­is­deg­inum, í gær. And­rúms­loftið mun hafa verið litað af upp­ljóstr­unum síð­ustu daga en tveir þing­menn Mið­flokks­ins, þeir Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveins­son, létu ekki sjá sig í veisl­unni. Vísir og Eyjan hafa greint frá því í morgun að Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, hafi komið þeim skila­boðum á fram­færi að beiðni Guðna Th. Jóhanns­sonar, for­seta, að nær­veru þeirra væri ekki óskað 

Forseti hóf veislu­höld á því að ræða fíl­inn í her­berg­inu, þ.e. mál mál­anna og hin ógeð­felldu ummæli sem þing­menn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins létu falla á Klaustur bar þann 20. nóv­em­ber, og Stundin hefur fjallað um með ítar­legum hætti. Þingmenn sem Stundin hefur rætt við segja að þetta hafi hjálpað til við að að gera erf­iða sam­komu bæri­legri, en stemn­ingin var eins og gefur að skilja ekki sú besta.

Sig­mundur Davíð Guð­munds­son, þing­maður Mið­flokks­ins, og einn þeirra sem lét óvið­ur­kvæmi­leg orð falla á Klaustri bar, lét sig ekki vanta þó að félagar hans hafi ekki mætt, en hann ku hafa verið „hress og sprækur líkt og hann væri hrókur alls fagn­aðar,“ eins og einn við­mæl­andi komst að orði. „En það var hann ekki,“ segir sá hinn sami. 

Þing­heimur lék á reiði­skjálfi í gær og fundað var á öllum hæðum Alþingis vegna máls­ins. Hegðun og tungu­tak þing­mann­anna þykir ekki til þess fallið að auka veg og virð­ingu Alþingis sem hefur átt við tölu­verðan ímynd­ar­vanda að stríða síð­ustu ár. Þing­veislan, sem haldin var í skugga upp­ljóstran­anna, fór fram í vinda­sömu veðri eins og með­fylgj­andi myndir sína. 

Simmi sprækurSig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þing­maður Mið­flokks­ins, var hress og sprækur í veisl­unni í gær, en sam­flokks­menn hans, þeir Gunnar Bragi Sveins­son og Bergþór Ólason, mættu ekki. Anna Kolbrún Árna­dóttir, sam­flokks­kona hans, kom einnig í boðið.
Fordæmir ummælinLogi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur gagn­rýnt þá þing­menn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins sem töl­uðu með niðr­andi hætti um konur.
Forseti kom skila­boðum áleiðisStein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, mun hafa komið þeim skila­boðum áleiðis til þing­mann­anna Gunnars Braga Sveins­sonar og Bergþórs Ólasonar að nær­veru þeirra væri ekki óskað í veisl­unni.
Storma­samir tímar á þingiVeðrið lék ekki við þing­menn og ráð­herra þegar þeir yfir­gáfu þing­veisl­una, en Sigríður Andersen inn­an­rík­is­ráð­herra mætti líkt og aðrir ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar.
Sæmileg stemn­ingHalldóra Mogensen, þing­maður Pírata, yfir­gefur þing­veisl­una á Bessa­stöðum þar sem stemn­ingin var eftir atvikum sæmi­leg.
Allra veðra vonÁsmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra mætti eins og aðrir ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar í þing­veisl­una á Bessa­stöðum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár