9 af 10 opinberum framkvæmdum fram úr áætlun

Mikill meiri­hluti fram­kvæmda hins opin­bera á Íslandi kosta meira en áætl­anir gera ráð fyrir. Almennt er fram­úr­keyrslan um 60%, að sögn lekt­ors.

9 af 10 opinberum framkvæmdum fram úr áætlun
Bragginn Mikið hefur verið rætt um fram­úr­keyrslu í bygg­ingu Braggans svo­kall­aða í Naut­hóls­vík. Mynd: Davíð Þór

Af stærri fram­kvæmdum rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga fóru 89% yfir kostn­að­ar­á­ætlun. Þetta kom fram í kynn­ingu Þórðar Víkings Frið­geirs­sonar, lekt­ors við tækni- og verk­fræði­deild Háskól­ans í Reykja­vík, á fundi Verk­fræð­inga­fé­lags­ins í gær sam­kvæmt Morg­un­blað­inu í dag.

Tækni- og verk­fræði­deild Háskól­ans í Reykja­vík hefur tekið saman gögn um verk­efnin, sem að sögn Þórðar eru ekki tæm­andi, en gefi vís­bend­ingu um að mik­ill meiri­hluti fram­kvæmda fari yfir áætlun. Ljóst sé að fram­úr­keyrsla sé almennt um 60%. Aðeins eitt af 35 verk­efnum í gögn­unum var undir áætlun og í þremur öðrum til­vikum stóðst áætlun. Mest var fram­úr­keyrslan um 300% í einu til­viki. „Þetta er ekki eitt­hvert sér­ís­lenskt vanda­mál,“ segir Þórður.

Segir hann þó skorta mið­lægan gagna­grunn um opin­berar fram­kvæmdir svo að Íslend­ingar geti lært af reynsl­unni. Norðmenn hafi til dæmis inn­leitt verk­ferla sem  hafi lækkað raun­kostnað fram­kvæmda um 14% með opin­berri gæða­trygg­ingu. „Ísland hefur valið aðra leið en þær þjóðir sem við berum okkur helst saman við. Norðmenn voru á sama stað og við erum nú fyrir um 15 til 20 árum,“ segir Þórður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár