Miðflokkurinn vill lækka fjármagnstekjuskatt

Þing­maður Mið­flokks­ins vill draga úr útgjalda­vexti rík­is­sjóðs í ljósi horfa í efna­hags­málum en vill einnig lækka skatta á fólk og fyr­ir­tæki.

Miðflokkurinn vill lækka fjármagnstekjuskatt
Vilja lækka skatta Mið­flokk­ur­inn vill lækka skatta Mynd: Miðflokkurinn

Mið­flokk­ur­inn vill að skatta­hækk­anir sem gripið var til í kjöl­far banka­hruns­ins verði dregnar til baka. Fjár­magnstekju­skatt þurfi að lækka eða þrengja skatt­stofn­inn. Þetta kemur fram í minni­hluta­á­liti Birgis Þór­ar­ins­sonar, þing­manns flokks­ins í fjár­laga­nefnd, við vinnslu fjár­laga­frum­varps­ins á Alþingi.

„Ísland er háskatta­ríki í alþjóð­legum sam­an­burði,“ segir í álit­inu. „Skatta­hækk­anir fyrri ára standa að mestu óhreyfðar. Það ætti að vera for­gangs­mál að draga til baka þær skatta­hækk­anir sem gripið var til kjöl­far banka­hruns­ins. Á síð­asta ári var fjár­magnstekju­skattur hækk­aður en um leið lofað að end­ur­skoða skatt­stofn­inn. Hvergi er minnst á slíka end­ur­skoðun í fjár­laga­frum­varp­inu. Þegar fjár­magnstekju­skatt­ur­inn var tek­inn upp var lágt skatt­hlut­fall rök­stutt með breiðum skatt­stofni. Nú er skatt­stofn­inn enn breiður en skatt­hlut­fallið hefur tvö­fald­ast.“

Þá þrýstir flokk­ur­inn einnig á lækkun trygg­inga­gjalds og kolefn­is­gjalds. „Mið­flokk­ur­inn leggur áherslu á að nú þegar skuldir rík­is­ins lækka hratt sé ráð­rúm til að huga að lækkun skatta á fólk og fyr­ir­tæki í land­inu en ekki stækka rík­is­báknið eins og rík­is­stjórnin er sér­stak­lega áhuga­söm um.“

Á sama tíma og Mið­flokk­ur­inn vill lækka skatta er bent á að blikur séu á lofti í efna­hags­málum og útgjöld vaxi of hratt. „Í fjár­laga­frum­varp­inu er of mik­ill útgjalda­vöxtur,“ segir í nefnd­ar­á­lit­inu. „Ekki er búið nægi­lega vel í hag­inn fyrir það sem fram undan er. Ef for­sendur bresta er óljóst til hvaða úrræða stjórn­völd ætla að grípa. Sýna hefði átt meira aðhald í rík­is­bú­skapnum á tímum góð­æris.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skattamál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár