Ríkisstjórn Katrínar óvinsælli en stjórn Jóhönnu

Þegar ár er liðið frá myndun rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks, hefur stuðn­ingur við hana fallið um tæp 30 pró­sentu­stig. Vinstri stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur hafði meiri stuðn­ing en stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur eftir jafn­langan tíma frá myndun.

Ríkisstjórn Katrínar óvinsælli en stjórn Jóhönnu
Tveir for­sæt­is­ráð­herrar vinstri flokka Katrín Jak­obs­dóttir og Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir eru einu for­sæt­is­ráð­herrar úr vinstri flokkum frá árinu 1960, ef frá er tal­inn Benedikt Gröndal, sem var for­sæt­is­ráð­herra í nokkra mán­uði frá 1979 til 1980.

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er orðin óvin­sælli en rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur eftir jafn­langan tíma frá myndun.

Samkvæmt könnun MMR sem kynnt var í gær styðja 37,9 pró­sent rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks eftir 11 mán­aða valda­tíð. Það er minni stuðn­ingur en rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna, undir for­sæti Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, naut eftir jafn­langan tíma. Í jan­úar 2010, þegar stjórn Jóhönnu hafði setið í ell­efu mán­uði, studdu tæp 46 pró­sent rík­is­stjórn­ina. Á árs­af­mæli stjórnar Jóhönnu var stuðn­ing­ur­inn síðan kom­inn niður í 40 pró­sent.

Breið stjórnÆtlunin með myndun rík­is­stjórn­ar­innar var að slá nýjan tón í stjórn­málin.

Stjórn Katrínar hefur hins vegar fallið mun meira í vin­sældum en stjórn Jóhönnu, sem var umdeild­ari frá upp­hafi. 56 pró­sent studdu Jóhönnu­stjórn­ina í fyrstu könnun MMR eftir myndun hennar, en 67 pró­sent lýstu stuðn­ingi við breiða stjórn Katrínar við upp­haf hennar.

Fallið í stuðn­ingi er því orðið um 29 pró­sentu­stig hjá Katrínu, en var 12 pró­sentu­stig í til­felli Jóhönnu, 11 mán­uðum frá myndun hennar.

Rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Bjarna Bene­dikts­sonar, Fram­sóknar- og Sjálf­stæð­is­flokks, naut stuðn­ings 37 pró­sent svar­enda í könnun MMR ell­efu mán­uðum eftir myndun hennar, og hafði stuðn­ing­ur­inn fallið úr 60 pró­sentum, eða um 23 pró­sentu­stig. Hún naut því sam­bæri­legs stuðn­ings og stjórn Katrínar nú, sam­kvæmt sömu könnun.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórnirAlmenna reglan er hratt minnk­andi stuðn­ingur á fyrsta ári eftir myndun.

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur nýtur nú minni stuðn­ings, sam­kvæmt MMR, en Donald Trump Banda­ríkja­for­seti, sem 41,8 pró­sent styðja sam­kvæmt með­al­tali kann­ana þar í landi. Þjóð­ar­púls Gallup sýnir hins vegar heilt yfir meiri stuðn­ing við rík­is­stjórnir en kann­anir MMR. Þjóð­ar­púls­inn var síð­ast tek­inn fyrir tveimur vikum og mæld­ist sitj­andi rík­is­stjórn þar með stuðn­ing 49,8 pró­sent kjós­enda. Stjórn Jóhönnu og Stein­gríms J. Sig­fús­sonar naut stuðn­ings 50 pró­senta kjós­enda sam­kvæmt þjóð­ar­púlsi Gallups eftir jafn­langan tíma frá myndun og er því mun­ur­inn ekki mark­tækur í könn­unum.

Stuðn­ingur við stjórn Jóhönnu átti hins vegar eftir að falla hratt á öðru ári og end­aði að lokum í 34 pró­sentum.

Rík­is­stjórn hinna tveggja turna, Sjálf­stæð­is­flokks og Sam­fylk­ing­ar­innar, undir for­sæti Geirs H. Haarde, naut 55 pró­senta stuðn­ings eftir ell­efu mán­uði vorið 2008, og hafði þá fallið um 28 pró­sentu­stig, úr 83 pró­sent stuðn­ingi. Fimm mán­uðum síðar varð efna­hags­hrun og þremur mán­uðum eftir það var stuðn­ingur kom­inn í 26 pró­sent, sam­kvæmt Gallup, eða 24 pró­sent sam­kvæmt MMR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár