Ásmundur gagnrýnir Pírata: „Ég hef aldrei fengið athugasemdir“

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, seg­ist keyra mikið um kjör­dæmi sitt til að vera í góðu sam­bandi við fólkið. Hver ferð sé um 300 kíló­metrar og hann noti alla þá 265 daga sem þingið er ekki að störfum til að sinna kjós­endum. Spyr hann hvað Píratar geri við sama tíma.

Ásmundur gagnrýnir Pírata: „Ég hef aldrei fengið athugasemdir“

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, ferð­ast hátt í 50 þús­und kíló­metra á ári vegna vinnu og til að rækta sam­band sitt við kjós­endur í suð­ur­kjör­dæm,i að eigin sögn. Í grein á vefnum Eyjar.net á sunnu­dag spyr hann hvað Píratar geri í þágu kjós­enda þá daga sem þing­fundir eru ekki haldnir.

Ásmundur var öku­hæsti íslenski þing­mað­ur­inn á síð­asta ári og fékk 4,6 millj­ónir króna end­ur­greiddar frá íslenska rík­inu vegna notk­unar á eigin bif­reið árið 2017, eða 385 þús­und krónur á mán­uði. Hlaut hann mikla gagn­rýni í byrjun árs vegna máls­ins.

Ásmundur segir það kosta mikla vinnu og ferða­lög að sinna kjör­dæm­inu. „Um hver mán­að­ar­mót frá maí 2013 hef ég í 68 skipti skilað inn akst­ur­bók­inni og geri enn,“ skrifar Ásmundur. „Ég hef aldrei fengið athuga­semdir. Skrif­stofa þings­ins hefur heldur ekki talið ástæðu til að óska eftir frek­ari útskýr­ingum.“

Skrifar Ásmundur að Alþingi starfi í um 100 daga á ári og hann nýti því 265 daga árs­ins í að rækta sam­bandið við fólkið í kjör­dæm­inu. „Það væri áhuga­vert ef Píratar gætu gefið okkur mynd af sínum störfum í þágu kjós­enda sinna og hvernig þeir hafa ráð­stafað þeim 265 dögum sem þing­hald stendur ekki yfir á hverju ári.“

Hver ferð að meðaltali 300 kílómetrar

Ásmundur sætti mik­illi gagn­rýni í byrjun árs þegar í ljós kom að hann fékk mest end­ur­greitt allra þing­manna í fyrra vegna akst­urs­kostn­aðar. Félag íslenskra bif­reiða­eig­enda (FÍB) hefur áætlað að það kosti rúmar 2 millj­ónir króna á ári að reka Kia Sportage jepp­ling Ásmundar, miðað við notkun hans á bílnum í fyrra. Hann hafi því fengið meira en tvö­faldan kostn­að­inn greiddan.

Ásmundur er þing­maður Suð­ur­kjör­dæmis sem er næst­stærsta íslenska kjör­dæmið, 31.800 fer­kíló­metrar að stærð, á eftir Norð­aust­ur­kjör­dæmi sem er 38.000 fer­kíló­metrar. Suð­ur­kjör­dæmi er hins vegar lang­lengsta kjör­dæmið og býr Ásmundur í vest­asta enda þess, Reykja­nesbæ.

„Til að sækja þing­fundi ek ég u.þ.b. 12.000 km á ári og u.þ.b. 30-35.000 km til að ferð­ast í kjör­dæm­inu á hverju ári,“ skrifar Ásmundur. „Ég fer um og yfir 100 ferðir um kjör­dæmið og er hver ferð að með­al­tali 300 km. Gera má ráð fyrir að þessar ferðir sem flestar eru farnar um helgar og á kvöldin. Um all­flestar þess­ara ferða má lesa á fés­bók­inn minni. Þar eru myndir af þeim sem ég hitti og oft stutt frá­sögn af því sem ég upp­lifði. Segi frá starf­semi fyr­ir­tækja eða mann­lífi á förnum vegi. Þetta hefur mælst mjög vel fyrir hjá fólki í mínu kjör­dæmi og langt út fyrir það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Aksturskostnaður þingmanna

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár