Stúdentar sameinast gegn aldursgreiningum hælisleitenda

Lands­sam­tök íslenskra stúd­enta mæla gegn ald­urs­grein­ingum á hæl­is­leit­endum innan mennta­stofn­ana. Vilja ekki að slíkar rann­sóknir fari fram innan stærstu mennta­stofn­unar lands­ins.

Stúdentar sameinast gegn aldursgreiningum hælisleitenda
Skýtur skökku við Lands­sam­tök íslenskra stúd­enta segja stærstu mennta­stofnun lands­ins eiga að efla og styðja við við­kvæma hópa sam­fé­lags­ins fremur en að fremja rann­sóknir á þeim. Mynd: Kristinn Magnússon

LÍS, Lands­sam­tök íslenskra stúd­enta, lýsa yfir stuðn­ingi allra stúd­enta á Íslandi sem og íslenskra stúd­enta erlendis við afstöðu SHÍ, Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands, gegn ald­urs­grein­ingum á hæl­is­leit­endum innan mennta­stofn­ana. Samtökin leggj­ast ein­dregið gegn því að ald­urs­grein­ingar á hæl­is­leit­endum eigi sér stað innan mennta­stofn­ana á Íslandi og hvetja Háskóla Íslands til þess að und­ir­rita ekki þjón­ustu­samn­ing þess efnis, að því er fram kemur í til­kynn­ingu sem birt er á vef­síðu sam­tak­anna. 

„Und­an­farið hefur verið mikil umfjöllun um ald­urs­grein­ingar á hæl­is­leit­endum og aðkomu Háskóla Íslands að þeim. Unnið er nú að mögu­legum þjón­ustu­samn­ingi Háskóla Íslands við Útlend­inga­stofnun og verði hann sam­þykktur munu þessar grein­ingar fara opin­ber­lega fram innan stærstu mennta­stofn­unar Íslands,“ segir jafn­framt í til­kynn­ingu sam­tak­anna. Þá segj­ast Lands­sam­tök íslenskra stúd­enta taka undir afstöðu Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands um að háskólar séu mennta­stofn­anir.

„Unnið er nú að mögu­legum þjón­ustu­samn­ingi Háskóla Íslands við Útlend­inga­stofnun og verði hann sam­þykktur munu þessar grein­ingar fara …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár