Algjör lúxus að vera vegan í dag

Sunna Ben neydd­ist til að læra að elda eftir að hún missti alla lyst á dýra­af­urðum og varð vegan. Fram­boðið af vegan mat var þá miklu tak­mark­aðra en það er í dag. Í dag segir Sunna að það sé í raun lúxus að vera vegan, það sé alltaf að aukast fram­boð og úrvalið af vegan mat og hrá­efni sé alveg fullt.

Algjör lúxus að vera vegan í dag
Missti alla lyst á dýra­af­urðum Sunna Ben segir að eftir að hún las bók­ina Animal Liberation eftir Peter Singer árið 2016 hafi hún ekki getað hugsað sér að borða meiri dýra­af­urðir og hafi gerst vegan. Það hafi líka þýtt að hún hafi fengið áhuga á matseld og upp­skriftum. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég er búin að vera græn­metisæta í þrettán ár. Ég var vegan þegar ég var í háskóla, í svona eitt ár, en mér gekk það ekki nógu vel því ég kunni ekki alveg að elda vegan mat. Þannig að ég gafst upp á því og fór bara aftur í að vera græn­metisæta, borð­aði meira að segja fisk og egg. Svo árið 2016 las ég bók­ina Animal Liberation eftir Peter Singer og hún hafði djúp­stæð áhrif á mig. Eftir að hafa lesið hana missti ég alla lyst á dýra­af­urðum og ég bara gat ekki meir, mælir­inn varð bara fullur.“

Eftir að Sunna varð vegan aftur segir hún að hún hafi fengið miklu meiri áhuga á mat, elda­mennsku og upp­skriftum. „Það var ekki hlaupið að því að finna skyndi­bita eða raunar bara hrá­efni í vegan mat. Það hefur reyndar breyst alveg gríð­ar­lega á mjög stuttum tíma, það er alltaf að bæt­ast við eitt­hvað nýtt og betra og heil­mikið úrval af öllu. Það er algjör lúxus að vera græn­metisæta eða vegan í dag.“

Sunna heldur úti Facebook-síð­unni Reykja­vegan þar sem hún deilir upp­skriftum og ráðum með fólki. Vegan matseld er þó bara áhuga­málið hennar en Sunna starfar sem sam­fé­lags­miðla­ráð­gjafi hjá Íslensku aug­lýs­inga­stof­unni, auk þess að vera mynd­list­ar­maður og plötu­snúður. „Þetta er bara ástríða. Upp­runa­lega lang­aði mig að skrifa um hvað væri í boði á veit­inga­stöðum í Reykja­vík, vegan, en þegar ég ætl­aði að byrja að taka myndir á veit­inga­stöðum komst ég að því að það væri alltaf dimmt inni á þeim og yfir­lýstar myndir henta ekki á sam­fé­lags­miðlum. Þannig að ég fór að prófa að gera upp­skriftir og það fékk svona góð við­brögð að ég hef bara orðið að halda áfram að prófa nýtt og birta nýjar upp­skriftir.“

1. Trópíkal sjeik

1 dós kókos­mjólk

1 veg­legur ban­ani

1 tsk. Pure Pea prótein frá Pulsin (örugg­lega hægt að nota annað óbragð­bætt prótein, en ég er mjög hrifin af þess­ari vöru)

Ca lúka fros­inn ananas

5–8 frosin jarð­ar­ber

Lítil kreista af vanillu­stevíu/vanillu­dropum (ég er svo­lítið að nota stevíu þessa dag­ana. Ég er nefni­lega ekki hrifin af sykri en er með ein­hverja sætu­þrá og stevían virkar vel á hana án þess að tjúlla blóð­syk­ur­inn).

Öllum þessum huggu­leg­heitum er vippað í öfl­ugan blender í nokkrar mín­útur og svo er bara að njóta! Ísí písí og sjúk­lega frísk­andi!

2. Djúsí pasta með Oumph!

Ég mæli með þessum nær­ing­ar­ríka og fljót­lega rétti hvenær sem er, hentar vel þegar maður vill gæðin og bragðið en ekk­ert vesen. Þetta er matur sem er frá­bært að nýta í nesti. Ég elda hann stundum á kvöldin til þess að eiga sem nesti í vinn­una næstu daga, hann svíkur aldrei.

Sósan/kássan:

1 pakki Oumph! „The Chunk“

1 flaska Biona Passata með basil

1/2 ferna af Yosi mat­reiðsl­urjóma 

1/2+ poki af upp­á­halds frosna græn­met­inu þá stund­ina (ég not­aði 50/50 blöndu af ítal­skri blöndu frá Gestus með gulum baunum og papriku og klass­ísku brokk­ólí, blóm­káls- og gul­rót­ar­blönd­unni frá Gestus – gott hvort í sínu lagi, gebbað saman)

1/2 poki af spínati (alltaf gott að nýta spínat sem er farið að eld­ast í alla svona rétti)

Nokkrir fal­legir sveppir

Krydd: þetta er réttur þar sem mér finnst kryddin skipta öllu máli, ég er rosa­legur krydd­isti og trúi stað­fast­lega á „more is more“-regl­una. Ég mæli með að hver og einn prófi sig áfram með sín upp­á­halds­krydd og verið ófeimin við að dæla vel ofan í af öllu nema kannski salt­inu, sem er óæski­legt. Í þetta sinn not­aði ég: svartan pipar, Her­bamare, hvít­lauk, cayenne og Sonn­entor „All good Conrad Calm“ blönd­una sem er frá­bær í rétti með ítölsku ívafi.

 Borið fram með:

Kolvetni að ykkar vali. Ég nota oft­ast gróft pasta eða kryddað kúskús. Senni­lega ekki síðra að nota quinoa, bygg eða hrís­grjón. Í þetta sinn rist­uðum við líka brauð og skvettum ólífu­olíu, Her­bamare salti og svörtum pipar yfir, nomms!

Fersku græn­meti. Mér finnst avókadó ómissandi með pasta og tómats­sósu, veit ekki hvernig stendur á því, en auk þess vorum við með blandað salat með.

Aðferð:

Það er alltaf best að byrja á að sjóða vatn, það er svo lúm­skt tíma­frekt, og steikja það sem þarf mestan tíma, þetta frosna. Oumph-ið fer á pönn­una um leið og vatnið er farið að sjóða og pastað (eða hvað sem ykkur finnst best) fer ofan í pott. Þegar Oumph-ið er aðeins farið að brúnast er frosna græn­met­inu bætt út í og því leyft að brúnast með.

Meðan það er í gangi þvæ ég sveppi og spínat vel og bæti þeim út í þegar frosna stöffið er um það bil hálfnað í eldun.

Svo hræri ég vel í káss­unni og leyfi öllu að mýkj­ast og bland­ast saman áður en ég sturta krydd­inu yfir og hræri vel. Því næst bæti ég Passata flösk­unni út í, hræri öllu saman og bæti svo Yosi mat­reiðsl­urjóm­anum við og hræri enn meira. Þessu leyfi ég að malla í svona 5 mín­útur áður en ég úrskurða mat­inn til­bú­inn.

Þá er bara að njóta! 

3. Tofu quiche

Það besta við þetta quiche er að það er jafn gott heitt og kalt, svo það nýt­ist sem nesti í marga daga, mikið upp­á­hald hjá mér síðan ég var í háskóla fyrir hund­rað árum og enda­laust mikil snilld!

1 kubbur tofu 

250–300 g spelt eða hveiti (ég not­aði gróft spelt)

250 ml þykk plöntu­mjólk (ég nota soja)

1 pakki sveppir

1 poki spínat

2 hvít­lauks­geirar

Ólífu­olía

Krydd – ég not­aði bland­aðar þurrk­aðar ítalskar jurtir í botn­inn og salt, pipar, cayenne og Best á allt í blönd­una.

Fyrst er botn­inn und­ir­bú­inn. Í hann fer:

250 g spelt/hveiti að eigin vali

1 tsk. salt (ég not­aði Her­bamare)

1 tsk. þurrk­aðar jurtir (t.d. oregano, pitsu­krydd)

Ólífu­olía, ca 4 msk., meira ef deigið verður stíft

1/2 bolli kalt vatn

Byrja á að blanda þurru efn­unum saman, svo eru olíu og vatni hrært út í. Nonstick spreyi súðað í hring­laga form áður en deigið er hnoðað á hreinu yfir­borði með hveiti þangað til áferðin verður ákjós­an­leg, ekki of klístruð, ekki of þurr. Þegar deigið er til­búið er því rúllað út með kefli svo það passi ca í formið og það svo lagt ofan í. Hér er gott að muna að búa til kant upp hlið­arnar á form­inu til þess að bakan verði í við­ráð­an­legum sneiðum. Þetta er svo bakað í 10–15 mín. á 180° hita. Svo er formið tekið út og því leyft að kólna meðan fyll­ingin er und­ir­búin.

Svo er að gera fyll­ing­una. Byrjað á að skera hvít­lauks­geirana í litla bita, hita pönnu og hella á hana olíu, steikja hvít­l­auk­inn aðeins upp úr olí­unni og bæta svo tofu­inu út á og leyfa að malla aðeins. Því næst eru sveppir skornir í þunnar sneiðar og þeim bætt við, eftir nokkrar mín­útur má svo bæta spínat­inu út í og leyfa öllu að mýkj­ast, brúnast og hitna saman. Þegar tofu er orðið brúnað og sveppir og spínat mjúkt er gott að krydda (ég not­aði her­bamare salt, pipar, cayenne og Best á allt blöndu), leyfa því að steikj­ast smám saman og bæta svo við 250 ml soja­mjólk og 2 msk. af spelti/hveiti og hræra vel. Þá er blönd­unni aðeins leyft að þykkj­ast meðan hrært er í henni á pönn­unni og svo má hella henni ofan í bök­una og skella form­inu aftur inn í ofn í 25–30 mín­útur, eða þar til fyll­ingin er orðin brúnuð og fal­leg. Vippa út úr ofni og njóta!

4. Einfaldar hafrakökur

2 þroskaðir ban­anar

Hálf stór krukka hnetu­smjör (ca 175 g)

10–15 mjúkar líf­rænar döðlur (fer eftir stærð)

2 msk. hlyn­sýróp (ég nota líf­rænt frá Biozentrale)

1 tsk. kókos­olía (þessu var ég að bæta við, heldur kökum lengur mjúkum)

2 bollar hafra­mjöl

2–3 msk. rús­ínur

Dass himalaya salt

Kanill eftir smekk (ég setti mjög mikið)

Best er að byrja á að hita ofn á 180° á yfir- og und­ir­hita.

Því næst eru ban­anar og hnetu­smjör maukað saman í mat­vinnslu­vél. Þegar það er orðið vel blandað bæti ég döðlum og sýrópi út í og mauka aftur vel. Síðan koma hafrar, rús­ínur, salt og kanill sem ég hræri út í með hönd­unum (það er svo gott upp á áferð að hafa hafra og rús­ínur í heilu lagi).

Kökunum er svo komið fyrir á bök­un­ar­pappír á ofn­skúffu (ég nota fjöl­nota bök­un­ar­pappír því nátt­úran er næs) og bak­aðar í ca 30–40 mín­útur, eða þar til þær eru byrj­aðar að brúnast fal­lega.

… Og svo er bara að stand­ast freist­ing­una að borða þær allar í einu!

5. Bæjarins besta bananabrauð:

4–5 aldr­aðir ban­anar

3/4 bolli hrís­mjólk

3/4 bolli fínmalað spelt

3/4 bolli fínmal­aðir hafrar

2–3 msk. þurrk­aður kókos

1 msk. mulin hörfræ (má sleppa)

1 tsk. vín­steinslyfti­duft

1–2 msk. hnetu­smjör (eftir smekk hér – en allir á mínu hem­ili eru hnetu­smjörsfrík)

1–2 msk. söltuð sól­blóma­fræ (má sleppa)

4 litlar döðlur

Vel af kanil, eða eftir smekk (ég elska kanil, set mikið)

Nokkrir vanillu­dropar

Rúsínur eftir smekk (aftur, ég set mikið en það má líka sleppa)

Á meðan öllu gums­inu er blandað saman for­hita ég ofn­inn á 180°. Bananar og plöntu­mjólk fara fyrst í mat­vinnslu­vél­ina (hún er ekki nauð­syn­leg, en áferðin verður alveg frá­bær!) og maukast saman í smá tíma, svo bætti ég þurr­efn­unum út í smám saman. Þegar deigið var orðið jafn þykkt og ég vildi spreyaði ég bök­un­ar­form með kókosolíu, skellti deig­inu ofan í og í ofn­inn í dágóða stund, 25–30 mín­útur ca, eða þar til hægt er að stinga hníf ofan í það og draga hann út án þess að hann komi út mjög klístr­aður.

Njótið vel!

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Líf mitt í fimm réttum

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár