Feimnismál að gefa frá sér barn

Konur geta breytt félags­lega slæmri stöðu í upp­byggi­lega með því að gefa frekar frá sér nýfætt barn heldur en að fara í fóst­ur­eyð­ingu. Þetta segir Birgir Þór­ar­ins­son, fyrsti flutn­ings­maður frum­varps um breyt­ingu á lögum um fæð­ingar- og for­eldra­or­lof. Hann segir það afbökun á til­gangi frum­varps­ins að ræða um að greiða eigi mæðrum fyrir að gefa nýfædd börn sín.

Feimnismál að gefa frá sér barn
Með nýfætt barn í fang­inu Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, segir það, að gefa barn, stærstu gjöf sem nokkur getur gefið öðrum, til dæmis barn­lausum hjónum sem þrá að eign­ast barn. Móðir geti breytt stöðu sem er von­laus vegna félag­legra aðstæðna í mjög upp­byggi­lega með því að gefa þá gjöf. Mynd: Shutterstock

„Það segir skýrt í frum­varp­inu hver til­gangur þess er; að styðja við konur sem ekki hafa fengið stuðn­ing í þessum aðstæðum frá hinu opin­bera,“ svarar Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, þegar hann er beð­inn að útskýra hver til­gang­ur­inn sé með frum­varpi hans um breyt­ingu á lögum um fæð­ingar- og fæð­ing­ar­or­lof, sem gerir ráð fyrir að kona sem gefur barn sitt til ætt­leið­ingar við fæð­ingu þess fái greiddan fæð­ing­ar­styrk að upp­hæð 135.525 þús­und krónur á mán­uði í sex mán­uði.

Birgir var afar ósáttur við fyr­ir­sögn á frétt Stund­ar­innar af frum­varp­inu en hún var svohljóð­andi: Þingmenn vilja borga mæðrum fyrir að gefa börn sín við fæð­ingu. Fyr­ir­sögn­ina sagði hann í engu sam­ræmi við til­gang frum­varps­ins og til þess fallna að afbaka málið veru­lega.

Bæta slæmri stöðu í uppbyggilega með því að gefa barn

Birgir segir lífs­skoð­anir fólks mis­jafnar og að ekki allar konur geti hugsað sér að enda óvel­komna þungun með fóst­ur­eyð­ingu.

Vill opna á umræð­unaBirgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, segir að það sé feimn­is­mál í sam­fé­lag­inu að gefa frá sér barn.

Í sumum til­vikum sé fóst­ur­eyð­ing jafn­vel ekki val­kostur, því það geti verið liðið langt á með­göng­una þegar kona gerir sé grein fyrir því að hún er barns­haf­andi. Það er hans mat að konur í slæmri félags­legri stöðu geti jafn­vel breytt stöðu sinni í upp­byggi­lega, gefi þær hjónum sem þrái að verða for­eldrar barn sitt. „Að gefa barn sitt við fæð­ingu er þungt skref að taka, eins og gefur að skilja.

Hins vegar er það sú stærsta gjöf sem nokkur getur gefið öðrum, til dæmis barn­lausum hjónum sem þrá að eign­ast barn. Þannig er hægt að breyta stöðu sem vegna félag­legra aðstæðna er von­laus í mjög upp­byggi­lega. Það að gefa frá sér barn hefur verið mikið feimn­is­mál í okkar sam­fé­lagi. Þetta frum­varp er meðal ann­ars einnig hugsað til þess að opna þá umræðu,“ segir hann.

„Það að gefa frá sér barn hefur verið mikið feimn­is­mál í okkar sam­fé­lagi.“

Hann bendir jafn­framt á að eins og staðan er í dag hafi kona sem gefur barn við fæð­ingu engan rétt til fæð­ing­ar­or­lofs eða fæð­ing­ar­styrks. Það hafi hins vegar for­eldrar and­vana fæddra barna, svo dæmi sé tekið. Ýmis útgjöld geti komið til, bæði á með­göngu og eftir fæð­ingu. Konur gætu þurft að  taka sér frí frá vinnu, sækja tíma hjá sál­fræð­ingi, að fara í sjúkra­þjálfun eða leita til ann­arra með­ferð­ar­að­ila. Eins og gefi að skilja þurfi við­kom­andi kona tíma til að ná sér and­lega og lík­am­lega eftir fæð­ing­una. „Frum­varpi um fæð­ing­ar­styrk vegna ætt­leið­ingar er ætlað að mæta þessu eins og kostur er,“ segir hann.

Ættleiðingu stillt upp sem valkosti á móti þungunarrofi

Í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varp­inu segir að ætt­leið­ingar barna sem fædd eru á Íslandi séu fáar og þeim fari fjölg­andi sem bíði ætt­leið­ingar. Þá er sér­stak­lega til­tekið að fóst­ur­eyð­ing sé erfið og í mörgum til­fellum þung­bær ákvörðun fyrir konur. Á síð­asta ári hafi farið fram 1.007 fóst­ur­eyð­ingar af félags­legum ástæðum og þeim fari fjölg­andi. Einn af þeim kostum sem konum standi til boða sé að ganga með barn og gefa það við fæð­ingu til ætt­leið­ingar. Til­gangur frum­varps­ins sé að styðja þær konur sem taki ákvörðun um að gefa barn sitt til ætt­leið­ingar við fæð­ingu.

Nokkuð hefur verið rætt um málið í hinum ýmsu kvenna­hópum á sam­fé­lags­miðlum. Flestum ber saman um að konur sem gefa börn sín við fæð­ingu ættu að fá ein­hvers konar styrk. Hins vegar þykir rangt að stilla upp ætt­leið­ingu sem val­kosti gegn þung­un­ar­rofi. Þungun sé þannig tengd skorti á börnum til ætt­leið­ingar, líkt og þann vanda megi leysa með því að fleiri konur búi til börn í þeim til­gangi að gefa þau frá sér. 

Þær sem gagn­rýna frum­varpið telja að ef til­gangur frum­varps­ins veita konum stuðn­ing væri nær að nið­ur­greiða getn­að­ar­varnir, til dæmis, og að styðja þær konur sem velja þung­un­ar­rof vegna slæmrar fjár­hags­stöðu, svo þær geti jafn­vel sjálfar átt börnin sem þær gangi með, fremur en að hvetja þær til að ganga með börn fyrir aðra. Oft sé um að ræða ungar eða félags­lega illa staddar konur og ófor­svar­an­legt sé að hvetja þær til að eign­ast börn sem þær ýmist vilja ekki eign­ast eða geta ekki hugsað um.

Dálítið hættuleg hugmynd, þó upphæðin sé lág

Áslaug Vals­dóttir, for­maður Ljós­mæðra­fé­lags Íslands, segir mál af þessu tagi flókin og að á því séu margar hliðar. Hún er sam­mála því að það væri eðli­legt að kona sem gefi barn í fæð­ingu fái ein­hvers konar styrk frá rík­inu. Hins vegar seg­ist hún hrædd við að það gæti haft óæski­legar afleið­ingar að greiða konum fyrir að gefa frá sér barn. „Þó að þetta sé lág upp­hæð veit maður aldrei hvort ein­hverjar konur þving­ist út í að ganga með barn, eiga það og gefa það frá sér fyrir þessa pen­inga, þó litlir séu,“ segir hún.

Hún telur mik­il­væg­ast að efla stuðn­ing við konur í slæmri stöðu. „Ef konur vilja ganga með barn og ætt­leiða þau finnst mér auð­vitað að þær ættu að fá stuðn­ing til þess. En fyrst og fremst þarf að efla stuðn­ing við mæður sem eru í slæmri félags­legri stöðu. Það ætti kannski frekar að styðja þær til að eiga börnin sjálfar, í stað þess að gefa þau frá sér. Mér finnst þetta dálítið hættu­leg hug­mynd, jafn­vel þó að upp­hæðin sé lág. Hvaða mögu­leikar opn­ast við þetta, til dæmis? Verður hægt að mis­nota þetta? Það væri það hræði­leg­asta í stöð­unni,“ segir hún og ítrekar að málið þurfi að skoða vel frá öllum hliðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár