Þingmenn vilja borga mæðrum fyrir að gefa börn sín við fæðingu

Níu karlar og ein kona standa að nýju frum­varpi um breyt­ingar á lögum um fæð­ingar- og for­eldra­or­lof, sem gerir ráð fyrir að kona sem gefur barn sitt til ætt­leið­ingar við fæð­ingu þess fái greiddan fæð­ing­ar­styrk að upp­hæð 135.525 þús­und krónur á mán­uði í sex mán­uði.

Þingmenn vilja borga mæðrum fyrir að gefa börn sín við fæðingu
Móðir og barn Nýju frum­varpi er ætlað að styðja við konur sem kjósa að gefa barn sitt við fæð­ingu í stað þess að fara í fóst­ur­eyð­ingu. Mynd: Shutterstock

Móðir sem gefur barn sitt til ætt­leið­ingar við fæð­ingu getur fengið fæð­ing­ar­styrk í 6 mán­uði frá fæð­ingu barns­ins, nái nýtt frum­varp fram að ganga. Fæð­ing­ar­styrk­ur­inn á að vera 135.525 krónur á mán­uði í sex mán­uði og standa móður til boða sem á lög­heim­ili hér á landi við fæð­ingu barns og hefur átt lög­heim­ili hér síð­ustu 12 mán­uði fyrir þann tíma.

Í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varp­inu segir að ætt­leið­ingar barna sem fædd eru á Íslandi séu fáar og þeim fari fjölg­andi sem bíði ætt­leið­ingar. Þá er sér­stak­lega til­tekið að fóst­ur­eyð­ing sé erfið og í mörgum til­fellum þung­bær ákvörðun fyrir konur. Á síð­asta ári hafi farið fram 1.007 fóst­ur­eyð­ingar af félags­legum ástæðum og þeim fari fjölg­andi. Einn af þeim kostum sem konum standi til boða sé að ganga með barn og gefa það við fæð­ingu til ætt­leið­ingar. Til­gangur frum­varps­ins sé að styðja þær konur sem taki ákvörðun um að gefa barn sitt til ætt­leið­ingar við fæð­ingu.

Fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins er Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins. Með­flutn­ings­menn þess eru flestir þing­menn Mið­flokks­ins, þau Anna Kolbrún Árna­dóttir, Bergþór Ólason, Gunnar Bragi Sveins­son, Sigurður Páll Jónsson, Þor­grímur Sig­munds­son og Þor­steinn Sæmunds­son. Þá eru þeir Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son, þing­menn Flokks fólks­ins, og Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, jafn­framt flutn­ings­menn þess.

Grein­ar­gerðin í heild er svohljóð­andi:  

Ætt­leið­ingar barna sem fædd eru á Íslandi eru mjög fáar, að með­al­tali eitt barn á ári. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Íslenskri ætt­leið­ingu bíða nú um 50 pör eftir því að fá að ætt­leiða barn og fer þeim fjölg­andi ár frá ári. Ætt­leið­ingar erlendis frá fela í sér langt, kostn­að­ar­samt og erfitt ferli. Á síð­asta ári voru ein­ungis sex börn ætt­leidd erlendis frá og hefur alþjóð­legum ætt­leið­ingum fækkað. Í frum­varp­inu er gert ráð fyrir því að konur sem gefa barn sitt til ætt­leið­ingar, strax við fæð­ingu, eigi rétt á fæð­ing­ar­styrk í sex mán­uði, að upp­hæð 135.525 kr. á mán­uði.

Fóst­ur­eyð­ing er erfið og í mörgum til­fellum þung­bær ákvörðun fyrir konur. Öllum konum sem íhuga fóst­ur­eyð­ingu stendur til boða að fara í við­tal til félags­ráð­gjafa. Á síð­asta ári voru fram­kvæmdar hér á landi 1.007 fóst­ur­eyð­ingar af félags­legum ástæðum og fer þeim fjölg­andi. Aðstæður kvenna, sem eru í þessum sporum, eru mjög mis­jafnar. Félags­ráð­gjafi fer yfir aðstæður og val­mögu­leika sem eru í boði fyrir þung­aðar konur. Einn af þeim kostum sem konum stendur til boða er að ganga með barnið og gefa það við fæð­ingu til ætt­leið­ingar. Til­gangur þessa frum­varps er að styðja konur sem taka ákvörðun um að gefa barn sitt til ætt­leið­ingar við fæð­ingu, en þær hafa hingað til ekki notið sér­stakrar aðstoðar af hálfu hins opin­bera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu