ASÍ krefst strangra viðurlaga vegna launaþjófnaðar

Alþýðu­sam­band Íslands leggur fram þriggja punkta kröfu­gerð til stjórn­valda til að vinna gegn félags­legum und­ir­boðum. Eft­ir­lits­full­trúar stétt­ar­fé­lag­anna segja að það þurfi að herða á lögum og sýna vilja í verki áður en málin versna í yfir­vof­andi sam­drætti ferða­manna­iðn­að­ar­ins.

ASÍ krefst strangra viðurlaga vegna launaþjófnaðar
Verka­menn Litlar sem engar afleið­ingar eru af því fyrir atvinnu­rek­endur að brjóta gegn erlendu starfs­fólki. Myndin teng­ist efni grein­ar­innar ekki beint. Mynd: Davíð Þór

Alþýðu­sam­band Íslands og aðild­ar­fé­lög þess hafa lagt fram kröfur í þremur liðum til stjórn­valda gegn félags­legu und­ir­boði á vinnu­mark­að­inum. Krafist er þess að lög­bundin verði ströng við­ur­lög gegn launa­þjófn­aði og öðrum brotum gegn starfs­fólki, og að fyr­ir­tæki hljóti mik­inn fjár­hags­legan skaða af brota­starf­semi. Kröfu­gerðin var kynnt vel­ferð­ar­nefnd 10. októ­ber, en hald­inn var sér­stakur fundur um félags­legt und­ir­boð í kjöl­far Kveik-þátt­ar­ins sem sýndur var á RÚV 2. októ­ber.

Í yfir­lýs­ingu sem birt­ist upp­runa­lega á vef sam­bands­ins 3. októ­ber er tekið fram að erlent vinnu­fólk leggi mikið til sam­fé­lags­ins og að stór hluti hag­vaxtar lands­ins sé til kom­inn vegna vinnu þeirra, en að þau séu engu að síður ber­skjölduð fyrir „mann­fyr­ir­litn­ingu og brota­starf­semi sem við­gengst á vinnu­mark­aði“.

Þrátt fyrir mik­inn dugnað af hálfu stétt­ar­fé­laga lands­ins í vinnu­staða­eft­ir­liti og rétt­ar­bótum félags­manna segir í yfir­lýs­ingu sam­bands­ins að árang­ur­inn sem hafi hlot­ist af því dugi ekki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Starfsfólk launalaust fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Sternu
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár