Tíu ára stelpa flúði undan manni á jeppa

Tíu ára gömul stelpa var elt niður Flóka­göt­una af manni á rauðum jeppa á sunnu­dag. Slík mál eru erfið fyrir lög­reglu að rann­saka ef upp­lýs­ing­arnar eru aðeins útlits­lýs­ing á bílnum, en mynd­bands­upp­taka eða upp­lýs­ingar um skrán­inga­númer bíls­ins eru ekki til staðar.

Tíu ára stelpa flúði undan manni á jeppa

T

íu ára stelpa var að hjóla niður Flóka­göt­una þegar maður á rauðum jeppa reyndi að ginna hana upp í bíl til sín á sunnu­dag. Stelpan hjólaði í burtu en mað­ur­inn elti hana, fyrst hlaup­andi en keyrði svo á eftir henni. Stelpan náði að fela sig áður en hún hélt heim.

Þetta kemur fram í færslu sem sett var inn á Facebook hóp­inn Íbúar í Norð­ur­mýri klukkan tíu á sunnu­dags­kvöld. Móðir stelpunnar setti inn færsl­una, en hún til­kynnti málið til lög­reglu. Um er að ræða annað málið af þessu tagi á síð­ustu tveimur mán­uðum, en í bæði skiptin hefur fátt annað en útlits­lýs­ing á bílnum komið fram.  

Í sam­tali við Stundina segir Rafn Hilmar Guð­jóns­son, aðal­varð­stjóri lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, að erfitt sé að rann­saka slík mál þegar frek­ari upp­lýs­ingar eru ekki til staðar. Hvorki er til mynd­bands­upp­taka af mál­inu né var hægt að segja til um skrán­ing­ar­númer á bílnum.

Móðirin brást hárrétt við

Stelpan er í Háteigs­skóla og fór málið á borð Arndísar Stein­þórs­dóttur skóla­stjóra eftir að móð­irin hringdi í lög­reglu. Arndís segir í sam­tali við Stundina að móðir stelpunnar hafi gert hár­réttar ráð­staf­anir með því að hafa sam­band við lög­reglu. Málið fer í við­eig­andi ferli hjá skól­anum, en slík ferli eru trún­að­ar­mál innan skól­ans.

„Ekki núna í vetur, nei, en þetta kemur alltaf upp öðru hvoru, því miður,“ segir hún aðspurð um hvort slíkt atvik hafi nýlega komið upp. Skólinn heldur reglu­lega kynn­ingar fyrir börnin um við­brögð gegn áreiti eins og þessu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár