Mikil sókn í sjúkrasjóði verkalýðsfélaga

Greiðslur úr sjúkra­sjóðum VR hafa hækkað um 43% miðað við síð­asta ár. „Við viljum vita af hverju fólkið okkar er að gef­ast upp,“ segir for­maður VR.

Mikil sókn í sjúkrasjóði verkalýðsfélaga
Ragnar Þór Ing­ólfs­son Mynd: Heiða Helgadóttir

Greiðslur sjúkra- og dag­pen­inga hafa auk­ist veru­lega hjá verka­lýðs­fé­lög­unum VR og Eflingu það sem af er ári. Hækkunin hjá VR nemur 43% á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins miðað við sama tíma­bil í fyrra. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Ragnar  Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að iðgjöld í sjúkra­sjóð hafi numið 1,8 millj­örðum króna í fyrra og verði hærri í ár. Útgreiðslu­hlut­fallið sé hins vegar komið í 80% og ef fram fer sem horfir muni að lokum þurfa að grípa til skerð­inga.

„Við viljum vita af hverju fólkið okkar er að gef­ast upp,“ segir Ragnar. „Hvað er það í okkar sam­fé­lagi sem veldur því að við erum að missa fólk í þetta miklum mæli í veik­indi, í streitu­tengda sjúk­dóma, og út af vinnu­mark­aði?“

Síðbúin áhrif frá hruninu

Dag­pen­inga­greiðslur Eflingar til félags­manna hafa auk­ist um 39% milli ára, en hækk­unin skýrist að hluta af hærri launum og fjölgun félags­manna. „Þó er ljóst að veikum hefur fjölgað, þeir voru lengur veikir og fengu hærri upp­hæðir,“ segir Sigríður Ólafs­dóttir, sviðs­stjóri sjúkra­sjóðs hjá Eflingu, við Morg­un­blaðið.

Ragnar segir að nú sé starf­andi rann­sókn­ar­hópur á vegum VIRK þar sem ástandið sé greint. Hann nefnir að mögu­lega sé um að ræða síð­búin áhrif frá banka­hrun­inu. „Það eina sem við vitum er að þessi þróun getur ekki haldið áfram enda­laust,“ segir Ragnar. „Sam­fé­lagið þarf að stíga inn í og spyrja spurn­inga. Annars mun þetta leggj­ast af þunga á almanna­trygg­inga­kerfið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hrunið

Segir Margréti leikstjóra ekkert vita um málið: „Þetta er bara sóðaskapur“
InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár