Illugi fengið 23 milljónir eftir að hann lauk þingmennsku

Illugi Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi mennta­mála­ráð­herra, var skip­aður í nefnd um end­ur­skoðun pen­inga­stefnu og stjórn­ar­for­maður Byggða­stofn­unar. Hann fékk einnig greidda fulla sex mán­uði í bið­laun sem ráð­herra.

Illugi fengið 23 milljónir eftir að hann lauk þingmennsku
Illugi Gunn­ars­son og Bjarni Bene­dikts­son Illugi og Bjarni hafa verið banda­menn í stjórn­málum und­an­farna ára­tugi. Mynd: Pressphotos

Illugi Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hefur fengið tæpar 23 millj­ónir króna frá því hann lauk þing­mennsku í fyrra fyrir störf sem hann hefur verið skip­aður í af ráð­herrum, auk bið­launa. Illugi fékk 8,3 millj­ónir króna fyrir setu í nefnd um end­ur­skoðun ramma pen­inga­stefnu, sam­kvæmt svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Þar að auki hafði Illugi fengið 3.564.000 fyrir stjórn­ar­for­mennsku í Byggða­stofnun frá apríl 2017 til júníloka 2018. Illugi hefur því fengið minnst 11,8 millj­ónir króna fyrir störf sem hann hefur verið skip­aður í af ráð­herrum eftir að hann lauk þing­mennsku 11. jan­úar 2017.

Átti hann einnig rétt á bið­launum til sex mán­aða, bæði sem þing­maður og ráð­herra, alls 10.957.638 kr. Fjár­mála­skrif­stofa Alþingis stað­festir að Illugi hafi fengið bið­launin greidd að fullu, þrátt fyrir að hann hafi þegið greiðslur frá Byggða­stofnun á meðan tíma­bil­inu stóð. „Taki þing­maður, sem fær bið­laun, við starfi meðan þeirra nýtur falla þau niður ef launin er starf­inu fylgja eru jafnhá en ella skerð­ast bið­launin sem laun­unum nemur,“ segir á vef Alþingis um bið­laun þing­manna.

„Ef þing­menn fara í vinnu hjá hinu opin­bera á bið­launa­tíma­bil­inu hefur Fjár­sýsla rík­is­ins séð um að draga af bið­launum sem nemur öðrum opin­berum launa­greiðslum,“ segir Eggert Jónsson, for­stöðu­maður fjár­mála­skrif­stofu Alþingis. „Að öðru er treyst á að þing­menn láti vita ef um önnur launuð störf er að ræða á bið­launa­tíma­bil­inu.“

Starfsmaður Samtaka atvinnulífsins fékk 8,8 milljónir

Stundin hefur áður greint frá því að Ásgeir Jónsson hag­fræð­ingur hafi fengið rúmar 13 millj­ónir króna á árunum 2017 og 2018 fyrir for­mennsku í nefnd­inni. Afurð nefnd­ar­innar var skýrsla um fram­tíð íslenskrar pen­inga­stefnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár