Konur dragast aftur úr í launum eftir fæðingarorlof

Athugun VR á launa­þróun eftir fæð­ing­ar­or­lof sýnir að 10 ár getur tekið konur að ná aftur sömu launum og kyn­systur þeirra eftir orlof. Sama ferli tekur karl­menn 20 mán­uði.

Konur dragast aftur úr í launum eftir fæðingarorlof
Konur drag­ast aftur úr Konur drag­ast aftur úr körlum í launum við barn­eignir.

Konur sem fara í fæð­ing­ar­or­lof vegna fyrsta barns eru tíu ár að ná aftur sömu launum og kyn­systur þeirra. Sama ferli tekur karl­menn 20 mán­uði. Þetta kemur fram í efna­hags­yf­ir­liti VR sem birt var í dag.

Í yfir­lit­inu segir að dönsk rann­sókn hafi sýnt að fórn­ar­kostn­aður kvenna vegna barn­eigna jafn­gildi tekju­lækkun til fram­búðar. Laun kynj­anna þró­ist á sam­bæri­legan hátt fimm ár fyrir fæð­ingu fyrsta barns en svo dragi sundur með þeim.

VR þekkir ekki til þess að sam­svar­andi rann­sókn hafi verið gerð á Íslandi, en þegar launa­þróun karla og kvenna innan VR sé skoðuð með dönsku rann­sókn­ina í huga bendi nið­ur­stöð­urnar til sam­svar­andi breyt­inga á launa­þróun kynj­anna innan VR fljót­lega eftir fæð­ingu fyrsta barns.

„Hins vegar eru vís­bend­ingar um að konur í félag­inu nái aftur sömu launum í hlut­falli við aðrar konur í félag­inu. Slíkt tekur þó tíu ár. Karlar ná aftur sömu stöðu á um 20 mán­uðum,“ segir í yfir­lit­inu.

Skoðun VR á launa­þró­un­inni er þó ekki gerð á sama hátt og í dönsku rann­sókn­inni. Um laus­lega skoðun á þróun launa kynj­anna yfir tíu ára tíma­bil er að ræða, að teknu til­liti til fjar­veru frá vinnu vegna barn­eigna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Jafnréttismál

Ekki fræðilegur möguleiki að manna vaktina með karlmönnum
ViðtalJafnréttismál

Ekki fræði­legur mögu­leiki að manna vakt­ina með karl­mönnum

Jakobína Rut Dan­í­els­dóttir var að reyna að fá einn af fjórum karl­kyns sam­starfs­mönnum sínum til að taka vakt­ina hennar í dag þegar hún ræddi við Heim­ild­ina í síð­ustu viku. Hún sinnir starfi sem hún getur ekki gengið í burtu frá, jafn­vel þó að á í dag sé kvenna­verk­fall. Hún er ein af þeim fjöl­mörgu konum sem halda heil­brigð­is­kerf­inu uppi.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár