Sjö ára fangelsi fyrir bróðurmorð

Varð bróður sínum að bana aðfara­nótt laug­ar­dags 31. mars. Bar fyrir sig minnis­leysi þrátt fyrir að hafa lýst átökum í sím­tali við lög­reglu um morg­un­inn.

Sjö ára fangelsi fyrir bróðurmorð
Ragnar Lýðsson Lést eftir ítrekuð högg frá bróður sínum. Mynd: Úr einkasafni

Valur Lýðsson hefur verið dæmdur til sjö ára fang­els­is­vistar fyrir að hafa orðið bróður sínum, Ragnari Lýðssyni, sem átti sér stað þann 31. mars síð­ast­lið­inn. Einnig er hann dæmdur til að greiða börnum Ragnars þrjár millj­ónir króna í miska­bætur, en Ragnar átti fjögur upp­komin börn.

Aðal­með­ferð í mál­inu hófst 27. ágúst þar sem fjöldi vitna fluttu fram­burð sinn fyrir dómi, þar á meðal björg­un­ar­sveit­ar­menn frá Flúðum sem voru fyrstir á vett­vang. Valur hringdi á Neyð­ar­lín­una þegar hann kom að Ragnari látnum um morg­un­inn, og var hann hand­tek­inn skömmu síðar.

Ummerki á staðnum bentu til þess að átök hefðu átt sér stað og að vegið hefði ver­iðð að Ragnari með höggum og spörkum. Kolbrún Bene­dikts­dóttir sak­sókn­ari sagði að mati ákæru­valds­ins væri sekt Vals sönnuð. Krafðist hún sextán ára fang­elsis fyrir verkn­að­inn. 

Dómari dæmdi Val fyrir lík­ams­árás sem leiddi Ragnar til dauða. 

Bar við minnisleysi

Valur hélt fram minnis­leysi við atburð­inn vegna mik­illar ölv­unar. Þeir sátu ásamt þriðja bróður sínum Erni við drykkju að kvöldi föstu­dags­ins langa. Sterkt áfengi hafi verið í boði sem Valur kaus að drekka í til­efni heim­sóknar bræðr­anna, þrátt fyrir að hafa gefið upp drykkju þrem mán­uðum áður, að eigin sögn. 

Örn fór upp í rúm um tíu­leytið en Ragnar og Valur héldu áfram að drekka og spjalla. Þegar Valur lýsti yfir áformum sínum um að færa bæj­ar­stæðið á Ragnar að hafa brugð­ist illa við, en Valur seg­ist ekki muna meira. Hann hafi vaknað morg­un­inn eftir grun­laus um að eitt­hvað hafi gerst og fundið Ragnar lát­inn í þvotta­hús­inu.

Mismunandi framburður Vals

Í sím­tali við Neyð­ar­lín­una sagði Valur hins vegar að þeir bræð­urnir hefðu tek­ist á eftir að Ragnar varð brjál­aður. Engin frek­ari útskýr­ing var gefin á því, en þar kom fram að á meðal þess sem bar á góma var lán sem Ragnar hefði fengið hjá Val, ásamt hug­myndum Vals um að færa bæj­ar­stæðið. Ragnar hefði brugð­ist illa við þessum umræðum. 

Þessi vitn­is­burður breytt­ist sam­dæg­urs við yfir­heyrslu lög­reglu. Í kjöl­farið hefur Valur haldið fram sama vitn­is­burði, að hann muni ekk­ert eftir atburð­inum, fyrir utan reiði­legt and­lit Ragnars sem glefs­ist upp í minnis­leys­inu, en hverfi svo. Lög­reglan sagði að vitn­is­burð­ur­inn væri ótrú­verð­ugur og hvorki í sam­ræmi við sím­tal Vals við Neyð­ar­lín­una né verksum­merki. 

Sér­fræð­ingar hafa haldið því fram að Valur sýni engin merki um vit­glöp eða neitt sem skýrir minnis­leysi hans. 

Bæði Valur og Örn voru hand­teknir, en Örn lát­inn laus eftir skýrslu­töku. Valur sat í gæslu­varð­haldi allt þangað til dómur féll. Örn kaus að gefa ekki skýrslu fyrir dómi við aðal­með­ferð máls­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár