Útlit fyrir að skattbyrði verði einnig létt af þeim tekjuhæstu

Þær hug­myndir að tekju­skatts­breyt­ingum sem komið hafa til skoð­unar hjá rík­is­stjórn­inni og verið reif­aðar í stjórn­ar­sátt­mála og fjár­mála­á­ætlun fela í sér að skatt­byrði verði ekki aðeins létt af lág­tekju- og milli­tekju­fólki heldur einnig af allra tekju­hæstu fjöl­skyldum lands­ins, þvert á yfir­lýsta stefnu Vinstri grænna.

Útlit fyrir að skattbyrði verði einnig létt af þeim tekjuhæstu
Tillögur um flat­ara skatt­kerfi til skoð­unar Skatta­til­lögur Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins og Sam­ráðs­vett­vangs um aukna hag­sæld eru enn til skoð­unar hjá rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. Mynd: Morgunblaðið / Eggert Jóhannesson

Rík­is­stjórnin hefur til skoð­unar breyt­ingar á tekju­skatts­kerf­inu sem miða að því að tekju­tengja per­sónu­af­slátt og end­ur­skoða skatt­hlut­föll og skatt­þrep. Horft er til þess að per­sónu­af­slátt­ur­inn verði fyrst stig­hækk­andi en síðan stig­lækk­andi með tekjum eftir að ákveðnu hámarki hefur verið náð. Þá verði hann útgreið­an­legur til þeirra sem ekki ná að full­nýta hann. 

 

Vinna að til­lögum um breytt skatt­kerfiAxel Hall hag­fræð­ingur og sér­fræð­ingur í skatta­málum leiðir hóp sem vinnur að end­ur­skoðun tekju­skatts­kerf­is­ins.

Þessar hug­myndir liggja til grund­vallar vinnu sér­fræð­inga­hóps um heild­ar­end­ur­skoðun á tekju­skatti ein­stak­linga. Þetta stað­festir Axel Hall, for­maður hóps­ins, og vísar til umfjöll­unar í ramma­grein fjár­mála­á­ætl­unar rík­is­stjórn­ar­innar sem ber yfir­skrift­ina „Betra tekju­skatts­kerfi“. Þar kemur fram að rík­is­stjórnin vilji að fram­tíð­ar­kerfi tekju­skatts og bóta verði „ein­fald­ara, skil­virkara og gegn­særra“ en núver­andi kerfi, hvetji til vinnu en auki ráð­stöf­un­ar­tekjur tekju­lágra. „Þetta er í grunn­inn verk­efni nefnd­ar­innar,“ segir Axel. Í ramma­grein fjár­mála­á­ætl­unar og til­lögum Sam­ráðs­vett­vangs um aukna hag­sæld frá 2016 er lagt upp með að tekju­hærri ein­stak­lingar verði án persónuaf­sláttar en greiði í stað­inn lægri jað­ar­skatt, það er lægra hlut­fall hæstu tekna sinna í skatt en nú er. 

Stýrinefnd skipuð aðstoð­ar­mönnum ráð­herra fylgist með vinnu sér­fræð­inga­hóps­ins og munu fyrstu til­lögur liggja fyrir í októ­ber. Náist ekki sam­staða um breyt­ingar í anda ramma­grein­ar­innar má vænta ein­fald­ari skatt­breyt­inga, svo sem eins pró­sentu­stigs lækkun á skatt­hlut­falli neðra þreps eins og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur talað fyrir og upp­haf­lega var boðað í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar. Slíkt myndi fela í sér þrisvar sinnum meiri búbót fyrir hátekju­fólk heldur en fólk á lág­marks­launum.

Möguleg útfærsla á hinni leið­inni, sem var kynnt á sam­ráðs­fundi stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins í sumar, felur í sér að mann­eskja sem í dag myndi greiða 46,24 pró­senta skatt af tekjum yfir 893 þús­und krónum á mán­uði myndi greiða lægra hlut­fall þess­ara tekna í skatt en á móti glata per­sónu­af­slætt­inum sem í dag nemur 646.739 krónum á ári. Fyrir þann fámenna hóp sem þénar nógu háar launa­tekjur til að ábat­inn af lækkun skatt­hlut­falls­ins í efra þrepi sé meiri en nemur brott­fell­ingu per­sónu­af­slátt­ar­ins myndu breyt­ing­arnar þannig fela í sér kjara­bætur. Þetta á til að mynda við um tekju­hæstu for­stjóra lands­ins og stjórn­endur í fjár­mála­geir­anum sem þéna tugi millj­óna á mán­uði. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár