Segir Barnaverndarstofu ekki hafa vitað af frétt Stundarinnar um Braga

Barna­vernd­ar­nefnd Reykja­víkur kærði Heiðu Björgu Pálma­dóttur, for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, til lög­reglu vegna afhend­ingar gagna. Hún leit á það sem skyldu sína sam­kvæmt upp­lýs­inga­lögum að afhenda gögnin, ólíkt vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu og Alþingi sem töldu um við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar að ræða.

Segir Barnaverndarstofu ekki hafa vitað af frétt Stundarinnar um Braga
Vissi ekki af frétt Heiða Björg, starf­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, seg­ist ekki hafa tekið eftir frétta­flutn­ingi Stund­ar­innar af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu og afskiptum Braga Guð­brands­sonar fyrr en nokkrum dögum eftir að málið tröll­reið fjöl­miðlum. Mynd: Af vef CBSS Secretariat

Heiða Björg Pálma­dóttir, starf­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, full­yrðir að Barna­vernd­ar­stofa hafi ekki vitað af frétta­flutn­ingi Stund­ar­innar um afskipti Braga Guð­brands­sonar af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu svo­kall­aða þegar stofn­unin afhenti RÚV og Stund­inni hund­ruð blað­síðna af gögnum um ein­stök barna­vernd­ar­mál og umgengn­is­deilur for­eldra. Per­sónu­vernd hefur nú til skoð­unar hvort gagna­af­hend­ingin hafi falið í sér lög­brot, en Barna­vernd­ar­nefnd Reykja­víkur kærði for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu til lög­reglu fyrr í sumar.

 

RÚV fékk gögnin mánu­dag­inn 30. apríl 2018 og Stundin mið­viku­dag­inn 2. maí. Dagana á undan hafði ríkt eins konar fjöl­miðla­fár í kjöl­far ítar­legrar umfjöll­unar Stund­ar­innar þann 27. apríl um afskipti Braga Guð­brands­sonar af barna­vernd­ar­máli í Hafn­ar­firði. Í frétt­inni var rakið hvernig Bragi beitti sér fyrir því að börn yrðu látin umgang­ast föður sinn þrátt fyrir við­vör­un­ar­orð og áhyggjur barna­vernd­ar­nefndar og með­ferð­ar­að­ila af meintum kyn­ferð­is­brotum. Bragi við­ur­kenndi í við­tali við Stundina að hann hefði ekki viljað vita hvort fað­ir­inn hefði hugs­an­lega brotið gegn börnum sínum og ekki haft aðgang að gögnum máls­ins þegar hann hlut­að­ist til um með­ferð þess hjá barna­vernd­ar­nefnd.

 

Málið var tekið upp í öðrum fjöl­miðlum, félags­mála­ráð­herra feng­inn í Kastljós, yfir­lýs­ingar sendar út og vel­ferð­ar­nefnd kölluð saman. For­stjóri Barna­vernd­ar­stofu heldur því engu að síður fram að stofan hafi ekki haft „vit­neskju um að umrædd frétt hefði birst“ og ber fyrir sig að stofan sé ekki áskrif­andi að Stund­inni. Þetta kemur fram í svar­bréfi stofn­un­ar­innar við fyr­ir­spurn Per­sónu­verndar vegna frum­kvæð­is­at­hug­unar á lög­mæti gagna­af­hend­ing­ar­innar.

Barnaverndarnefnd bað um gögnin og fékk ekki

Gögnin sem Barna­vernd­ar­stofa afhenti Stund­inni og RÚV í vor voru tekin saman vegna kvart­ana barna­vernd­ar­nefnda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. Þar er að finna við­brögð við ásök­unum nefnd­anna, fund­ar­gerð um mál barn­anna í Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu, málsvörn Braga Guð­brands­sonar vegna ávirð­inga sem bornar höfðu verið á hann en jafn­framt ýmis athuga­semda­bréf Barna­vernd­ar­stofu sem vörð­uðu önnur mál en fjallað hafði verið um í fjöl­miðlum.

 

Eins og Stundin benti á í frétta­skýr­ingu þann 3. maí síð­ast­lið­inn var gagna­af­hend­ingin til vitnis um að Barna­vernd­ar­stofa túlk­aði upp­lýs­inga­lög með mun frjáls­legri hætti heldur en vel­ferð­ar­ráðu­neytið sem þá hafði þver­neitað að afhenda nokkur gögn um rann­sókn á kvört­unum barna­vernd­ar­nefnda undan Barna­vernd­ar­stofu til ráðu­neyt­is­ins, einkum á þeim grund­velli að kvart­an­irnar vörð­uðu „til­tekin ein­stak­lings­mál á sviði barna­verndar“.

Voru gögnin metin svo við­kvæm að þing­menn máttu ein­ungis sjá þau í lok­aðri skjala­geymslu á Alþingi og var óheim­ilt að tjá sig um efni þeirra. Var jafn­framt ákveðið að nefnd­ar­fundur vel­ferð­ar­nefndar með Braga Guð­brands­syni yrði lok­aður í ljósi þess að þar kynni umræðan að hafa snertifleti við við­kvæm barna­vernd­ar­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár