Trúðar, svartmálmur og sultuslakt rapp

Tón­leikar, sýn­ingar, og við­burðir 13. júlí–2. ágúst

Trúðar, svartmálmur og sultuslakt rapp

Áratugur af sirkus

Hvar? Vatns­mýr­inni og Akureyri
Hvenær? 13. júlí til 5. ágúst
Aðgangs­eyrir: 3.000 kr.

Sirkus Íslands hefur haldið sýn­ingar í ára­tug og heldur upp á það með sér­stakri sýn­ingu þar sem fyr­ir­finnst bæði nýtt efni og eldra. Þessi lit­ríka fjöl­skyldu­sýn­ing er upp­full af fim­leikum á jörðu og í lofti, trúðum og fleiru. Einnig býður leik­hóp­ur­inn upp á aðra sýn­ingu sem kall­ast Skinn­semi, en hún er aðeins ætluð full­orðnum.

Draumareglan & Prófessjónal Amatör

Hvar? Kling & Bang
Hvenær? Til 19. ágúst
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Tvær ólíkar sýn­ingar eru í gangi í Kling & Bang. „Draumareglan“ er sýn­ing Fritz Hendriks unnin undir áhrifum hug­mynda skáld­uðu per­són­unnar „Fræði­manns­ins“ um mik­il­vægi stöðugrar svefn­rútínu. Verkin sam­an­standa af inn­setn­ingum, mál­verkum, skúlp­t­úrum, ljós­myndum og vídeó. „Pró­fes­sjónal Amatör“ er hóp­sýn­ing sem kannar snertifleti og þróun menn­ingar og mynd­listar, við­van­inga og fag­manna.

Aron Can

Hvar? Húrra
Hvenær? 14. júlí kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 1.500 kr.

Ljúfi rapp­ar­inn Aron Can hefur haldið tón­leika á öllum helstu skemmti­stöðum lands­ins og víðar, en í febr­úar skrif­aði hann undir samn­ing hjá Sony Music og munu silki­sléttu tónar hans því dreifast út fyrir land­stein­ana. Hann gaf nýlega út plöt­una „Trúpíter“ og mun eflaust spila meg­in­hluta af henni á þessum tón­leikum.

Lífsblómið

Hvar? Lista­safn Íslands
Hvenær? 17. júlí–16. des­em­ber
Aðgangs­eyrir: 1.900 kr.

Titill sýn­ing­ar­innar er sóttur í skáld­sögu Halldórs Laxness, „Sjálf­stætt fólk“, en eins og bókin fjallar þessi sýn­ing um hina djúpu þrá eftir sjálf­stæði. Hún fjallar einnig um það hversu dýr­mætt en um leið við­kvæmt full­veldið er, og á sér­stak­lega við á 100 ára afmæli full­veldis Íslands. Sýningin sam­anstendur af ýmsum hand­ritum, skjölum og mynd­list­ar­verkum.

LungA 2018

Hvar? Seyð­is­fjörður
Hvenær? 15.–22. júlí
Aðgangs­eyrir: 10.900 kr.

Upp­skeru­há­tíð ungra lista­manna rennur í garð þessa viku, en þar er að sjá margar og mis­mun­andi mynd­list­ar­sýn­ingar sem margar hverjar verða til í þess­ari viku. Á föstu­dag og laug­ar­dag­inn koma síðan fram ýmsar hljóm­sveitir og lista­menn eins og Páll Óskar, Sykur, Reykja­vík­ur­dætur og hin banda­ríska Princess Nokia.

Dirty Dancing föstudagspartísýning

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 27. júlí kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Dansepíkin „Dirty Dancing“ segir frá sum­ar­ferð 1963 í Banda­ríkj­unum þar sem hin 17 ára Baby, leikin af Jennifer Grey, kemst í kynni við atvinnu­dans­ara sem dansa fyrir gesti. Þegar einn dans­ar­inn veik­ist þarf hún að hlaupa í skarðið og kynn­ist þá betur mót­dans­ara sínum, Johnny, sem er leik­inn af Patrick Swayze, en þau verða ást­fangin.

Misþyrming, World Narcosis, Alvia Islandia

Hvar? Húrra
Hvenær? 27. júlí kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 1.500 kr.

Mis­þyrm­ing er ein af hljóm­sveit­unum sem kom Íslandi á kortið í svart­málmss­heim­inum, en plata þeirra, „Söngvar elds og óreiðu“, hlaut ein­róma lof gagn­rýnenda og spek­inga stefn­unnar. Önnur plata þeirra, „Algleymi“, hefur verið lengi í þróun, en það stytt­ist von­andi í hana. Með Mis­þyrm­ingu spilar pönk­sveitin World Narcosis og rapp­ar­inn Alvia Islandia.

Bræðslan 2018

Hvar? Borg­ar­firði eystra
Hvenær? 28. júlí kl. 19.00
Aðgangs­eyrir: 9.300 kr.

Fjórt­ánda árið í röð taka Borg­firð­ingar sig til og breyta gömlu síld­ar­bræðsl­unni í tón­leika­sal þar sem margar lands­þekktar hljóm­sveitir spila á Bræðsl­unni. Fram koma til dæmis rapp­ar­inn Emmsjé Gauti, poppsveitin Between Mountains og rokksveitin Agent Fresco. Tjald­svæði stendur gestum til boða eftir tón­leik­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár