Mál fyrrverandi starfsmanns á Stuðlum til lögreglurannsóknar

„Engar upp­lýs­ingar hafa borist sem gefa til­efni til þess að fara í frek­ari athugun en þegar hefur verið greint frá,“ segir for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu um mál manns sem reyndi að kaupa vændi af ung­lings­stúlku sem vistuð hafði verið á Stuðlum.

Mál fyrrverandi starfsmanns á Stuðlum til lögreglurannsóknar
Stuðlar er með­ferð­ar­stöð á vegum Barna­vernd­ar­stofu fyrir ung­linga sem jafnan eru í gríð­ar­lega við­kvæmri stöðu, svo sem vegna fíkni­vanda, ofbeldis, afbrota­hegð­unar eða erf­iðra heim­il­is­að­stæðna. Mynd: Google Map

Ekki hafa komið fram upp­lýs­ingar sem benda til þess að fyrr­ver­andi starfs­maður Stuðla, sem bað ung­lings­stúlku sem vistuð hafði verið á heim­il­inu um kyn­líf gegn greiðslu, hafi haft sam­band við fleiri börn í sama til­gangi. Barna­vernd­ar­stofa telur „ekki til­efni til að fara í frek­ari athugun á málum tengd mann­inum en þegar hefur verið greint frá“. Þetta kemur fram í svörum Heiðu Bjargar Pálma­dóttur, for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. 

Stundin greindi frá því á mánu­dag að maður sem vann á Stuðlum í nokkrar vikur hefði haft sam­band við ung­lings­stúlku skömmu eftir að hún útskrif­að­ist af með­ferð­ar­heim­il­inu og reynt að fá hana til að stunda kyn­líf gegn greiðslu. „Málið er til rann­sóknar,“ svar­aði Theodór Krist­jáns­son, yfir­maður kyn­ferð­is­brota­deildar lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þegar Stundin sendi emb­ætt­inu fyr­ir­spurn um málið. 

Heiða Björg hjá Barna­vernd­ar­stofu stað­festir að „mað­ur­inn var sendur í leyfi strax og upp­lýs­ingar bár­ust sem gáfu til­efni til að draga hæfni hans til starfa á Stuðlum í efa og sneri hann ekki aftur til starfa“. Hún segir að þegar málið kom upp hafi ekk­ert bent til þess að hann hefði brotið af sér í starfi eða sýnt af sér ósæmi­lega hegðun gagn­vart börnum. „Engar upp­lýs­ingar hafa borist sem gefa til­efni til þess að fara í frek­ari athugun en þegar hefur verið greint frá eða að við­kom­andi ein­stak­lingur hafi sett sig í sam­band við önnur börn, beint eða óbeint. Að öðru leyti getur stofan ekki tjáð sig frekar um málið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynbundið ofbeldi

Þórhildur Sunna: „Í hvaða veruleika búa þau eiginlega?“
Fréttir

Þór­hildur Sunna: „Í hvaða veru­leika búa þau eig­in­lega?“

Lögregla taldi ekki til­efni til að hefja rann­sókn á meintri nauðgun þegar maður sagð­ist hafa sett lim í enda­þarm sof­andi 17 ára stúlku sem vildi ekki enda­þarms­mök. Þingkona Pírata og for­maður Laga- og mann­rétt­inda­nefndar Evr­ópu­ráðs­þings­ins segir að afstaða ákæru­valds­ins og málið allt valdi henni veru­legum áhyggjum af stöðu kyn­ferð­is­brota­mála í íslensku rétt­ar­vörslu­kerfi.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár