Hafa hagnast um 24 milljarða í ár en gagnrýna hækkun bankaskatts

Hagnaður Arion banka jókst um hálfan millj­arð króna á þriðja árs­fjórð­ungi miðað við sama tíma­bil í fyrra og nam 8,7 millj­örðum króna. Arðsemi eigin fjár var 16,3 pró­sent. Banka­stjór­inn gagn­rýnir fyr­ir­hug­aða hækkun banka­skatts sem gæti kostað bank­ann 1,7 millj­arða króna á þessu ári.

Hafa hagnast um 24 milljarða í ár en gagnrýna hækkun bankaskatts
Benedikt Gíslason Banka­stjóri Arion banka segir fyr­ir­hug­aða hækkun banka­skatts skamm­sýna ráð­stöfun. Mynd: Arion banki

Arion banki hagn­að­ist um 8,7 millj­arða króna á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins, sam­an­borið við 8,2 millj­arða á sama tíma­bili í fyrra. Hagn­að­ur­inn jókst því um rúm­lega sex pró­sent milli ára, sam­kvæmt upp­gjöri bank­ans sem birt var í gær.

Arðsemi eigin fjár var 16,3 pró­sent á fjórð­ungnum, sam­an­borið við 16 pró­sent á sama tíma í fyrra. Hagnaður bank­ans á fyrstu níu mán­uðum árs­ins nam alls 24,1 millj­arði króna, sem er lít­il­lega minni hagn­aður en á sama tíma­bili í fyrra þegar hann nam 24,4 millj­örðum.

Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, segir í afkomutil­kynn­ingu bank­ans afkom­una góða og í sam­ræmi við mark­mið. Hann bendir á að inn­lán hafi haldið áfram að aukast en hægt hafi á útlána­vexti vegna við­var­andi hás vaxta­stigs.

Innlán við­skipta­vina juk­ust um 33 millj­arða króna á þriðja árs­fjórð­ungi, eða 3,3 pró­sent, á meðan útlán til við­skipta­vina dróg­ust saman um þrjá millj­arða króna.

Hreinn vaxta­munur bank­ans, sem …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
6
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár