Eldur úr bíl í bíl en engar bætur

Eldur barst úr einni bif­reið í aðra sem brann til kaldra kola. Hér­aðs­dómur hafn­aði því að Sjóvá-Almennar þyrftu að greiða eig­anda bif­reið­ar­innar bætur.

Eldur úr bíl í bíl en engar bætur
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur kvað upp dóm í dag þar sem bóta­skyldu trygg­inga­fé­lags­ins Sjóvá-Almennar vegna bruna­tjóns á bíl var hafnað. Eigandi bíls­ins höfð­aði mál gegn trygg­inga­fé­lag­inu í kjöl­far þess að eldur sem log­aði í öðrum bíl barst í hans sem varð þess vald­andi að bíll hans gjör­eyði­lagð­ist. Taldi stefn­andi máls­ins að trygg­inga­fé­lag­inu bæri að greiða sér skaða­bætur út frá ábyrgð­ar­trygg­ingu eig­anda bif­reið­ar­innar sem eld­ur­inn barst frá. Samkvæmt 88. gr. umferð­ar­laga skal sá sem ábyrgð ber á bíl að bæta það tjón sem hlýst af notkun þess.

Bíllinn brann til kaldra kola þann 28. des­em­ber og í kjöl­far þess að trygg­inga­fé­lagið hafn­aði bóta­skyldu höfð­aði eig­and­inn mál fyrir hér­aðs­dómi þann 30. nóv­em­ber í fyrra.

Nið­ur­staða tækni­deildar lög­reglu um rann­sókn á brun­anum var sú að eng­inn grunur væri um íkveikju af manna­völdum. Engu var slegið föstu um elds­upp­tök og voru þau sögð ókunn. Þá kom fram í nið­ur­stöð­unni að lík­lega hefði kviknað í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dómsmál

FréttirDómsmál

Ógnaði heim­il­is­fólki með heima­gerðu sverði

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi fyrir skömmu mann fyrir lík­ams­árás, hús­brot og akstur undir áhrifum áfengis. Í lýs­ingum vitna er sagt frá því að mað­ur­inn hafi kýlt heim­il­is­mann sem reyndi að koma í veg fyrir að mað­ur­inn kæmi inn um glugga á hús­inu. Þá er einnig sagt frá því að mað­ur­inn hafi á einum tíma­punkti dregið fram heima­gert sverð á sveiflað því í kringum sig fyrir utan húsið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár