Ætlar að flytja til Ísafjarðar þótt hann hafi aldrei komið þangað

Máni Snær Örvar ætlar að flytja úr bænum og klára stúd­ent­inn á Ísafirði.

Ætlar að flytja til Ísafjarðar þótt hann hafi aldrei komið þangað
Máni Snær Flytur vestur á firði til að ljúka námi.

Ég var upp­runa­lega í Tækni­skól­anum á tölvu­braut og fékk smá ógeð á því að vera í námi. Svo var ég á mynd­list­ar­braut í Fjöl­brauta­skól­anum í Breið­holti en átti erfitt með námið þar. Ég er að fara að klára stúd­ent­inn í haust, ég er að fara til Ísa­fjarðar og taka hann þar. Það er planið. Ég valdi nýsköp­un­ar­braut eða opna braut, ég á eftir að ákveða hvað ég vil gera en ákvað bara að vera búinn með stúd­ents­prófið þannig að ég geti gert eitt­hvað við það. Ég er spenntur, frænka mín býr þar og það var hún sem fékk mig til að fara þangað. Hún vinnur þarna í mennta­skól­anum. Ég hef samt aldrei farið til Ísa­fjarðar, bara keyrt þarna í gegn. Ég verð minnst eitt og hálft ár á Ísafirði og mögu­lega lengur ef mér líkar við að búa þar.  Ég vinn núna í Tiger og mér líkar það ágæt­lega, það er fínt og líka stutt frá þar sem ég á heima. Annars er fólkið sem vinnur með mér það skemmti­leg­asta við starfið, það er auð­velt að spjalla við það. Ég verð örugg­lega í sam­bandi við þá sem ég þekki í bænum, en ég held ég muni sakna mest 24 tíma búða því ég enda oft á því ég er oft vak­andi seint á kvöldin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár