Kvartar yfir að „þurfa að sitja alltaf undir því að Sjálfstæðisflokkurinn sé einhver spillingarflokkur“

Hildur Björns­dóttir, fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, er óánægð með ásak­anir um að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi gerst sekur um spill­ingu.

Kvartar yfir að „þurfa að sitja alltaf undir því að Sjálfstæðisflokkurinn sé einhver spillingarflokkur“

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata og Hildur Björns­dóttir, sem skipar annað sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, tók­ust hart á um borg­ar­stjórn­ar­málin í við­tali í þætt­inum Harma­geddon á útvarps­stöð­inni X-inu í gær. 

Hildur gagn­rýndi rekstur borg­ar­innar, en Dóra Björt svar­aði á þá leið að skuldir sveit­ar­fé­laga undir stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins væru hlut­falls­lega meiri heldur en skuldir Reykja­vík­ur­borgar þótt borgin stæði betur að vígi í vel­ferð­ar­málum.

Hildur sagð­ist ekki getað tekið undir þetta og vildi einnig fá að vita hvað Dóra Björt ætti við þegar hún segði að það væri ekki hægt að vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum fyrr en hann tæki til hjá sér.

Hún fékk þau svör að það þyrfti ekki að fara langt aftur í tím­ann til að sjá hvaða „rugl hafi verið í gangi“ þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefði stjórnað borg­inni.

„Það er algjör­lega rangt að halda því fram og þurfa að sitja alltaf undir því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé ein­hver spill­ing­ar­flokkur,“ svar­aði Hildur að bragði.

Þess má geta að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sat síð­ast í borg­ar­stjórn­ar­meiri­hluta meiri­hluta á kjör­tíma­bil­inu 2006 til 2010, en tíð stjórn­ar­slit ein­kenndu þann tíma.  

Aðspurð hvers konar til­tekt Píratar köll­uðu eftir nefndi Dóra Björt akst­urs­greiðslu­mál þing­manna, „Braga­málið“ og Panama­skjölin sem dæmi um spill­ing­ar­mál Sjálf­stæð­is­flokks­ins, auk ótrú­verð­ugs mál­flutn­ings þar sem flokk­ur­inn hefði  leyft sér að fara frjáls­lega með stað­reyndir, til dæmis varð­andi rekstur borg­ar­innar.

Hún sagði traust nauð­syn­legt í meiri­hluta­sam­starfi og þeir sem segðu ekki satt í kosn­inga­bar­áttu væru ótrú­verð­ugir. Þar nefndi hún ólög­leg kosn­inga­lof­orð Eyþórs Arnalds sem dæmi. Hildur sagð­ist ekki sjá betur en hún væri sjálf að segja ósatt og að fram­setn­ingin væri óheið­ar­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2018

Hagsmunatengsl borgarfulltrúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga
ÚttektBorgarstjórnarkosningar 2018

Hags­muna­tengsl borg­ar­full­trúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga

Eyþór Arnalds situr enn í stjórnum fimm félaga og eru tvö þeirra eign­ar­halds­fé­lög með rúman einn og hálfan millj­arð í eignir. Hann lof­aði að skilja sig frá við­skipta­líf­inu þegar hann vann leið­toga­próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í jan­úar. Oddviti Við­reisnar og fleiri nýir borg­ar­full­trúar sitja í stjórnum félaga.
Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðjusamstarfi en myndaði atkvæðablokk með Sjálfstæðisflokknum
FréttirBorgarstjórnarkosningar 2018

Vildi ekki verða „hús­þræll“ í vinstri- og miðju­sam­starfi en mynd­aði atkvæða­blokk með Sjálf­stæð­is­flokknum

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, sætir harðri gagn­rýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálf­stæð­is­flokknum og Mið­flokknum af praktískum ástæðum. „Fram­kvæmd­ar­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi fyrir hönd allrar stjórn­ar­and­stöð­unnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í dag.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár