Borgin yrði af 2,5 milljörðum í tekjur við skattalækkun Sjálfstæðisflokks

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í Reykja­vík lofar lækkun útsvars úr 14,52% undir 14%. Útsvars­tekjur borg­ar­innar hefðu lækkað úr 68,7 millj­örðum króna árið 2017 í 66,2 millj­arða. Eyþór Arnalds sagði lof­orðin „borga sig sjálf“.

Borgin yrði af 2,5 milljörðum í tekjur við skattalækkun Sjálfstæðisflokks
Eyþór Arnalds Oddviti Sjálf­stæð­is­flokks sagði kosn­inga­lof­orðin „borga sig sjálf“.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í Reykja­vík aug­lýsir nú á Facebook nýtt kosn­inga­lof­orð um lækkun útsvars úr 14,52% undir 14% á kjör­tíma­bil­inu. Loforðið var ekki hluti af stefnu flokks­ins þegar hún var kynnt 14. apríl síð­ast­lið­inn, en útsvars­tekjur Reykja­vík­ur­borgar hefðu verið 2,5 millj­örðum króna lægri í fyrra miðað við lof­orð Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Reykja­vík inn­heimtir hámarks­út­svar, sam­kvæmt lögum, en Sel­tjarn­ar­nes og Garðabær eru einu sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem útsvarspró­sentan er lægri en 14%. Tekjur Reykja­vík­ur­borgar af útsvari árið 2017 voru 68,7 millj­arðar króna eftir afskriftir og greiðslu í Jöfn­un­ar­sjóð sveit­ar­fé­laga. Hefði skatt­hlut­fallið verið 14% í stað 14,52% hefðu tekj­urnar verið 66,2 millj­arðar, að öllu jöfnu, eða 2,5 millj­örðum lægri.

Kosningaloforðin „borga sig sjálf“

„Þau eru stór en þau eru raunsæ og þau borga sig sjálf,“ sagði Eyþór um kosn­inga­lof­orð Sjálf­stæð­is­flokks­ins þegar hann kynnti þau í Iðnó 14. apríl. Í kynn­ing­unni var útsvar ekki nefnt sér­stak­lega. Flokk­ur­inn lofar einnig nið­ur­fell­ingu fast­eigna­skattar á 70 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2018

ÚttektBorgarstjórnarkosningar 2018

Hags­muna­tengsl borg­ar­full­trúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga

Eyþór Arnalds situr enn í stjórnum fimm félaga og eru tvö þeirra eign­ar­halds­fé­lög með rúman einn og hálfan millj­arð í eignir. Hann lof­aði að skilja sig frá við­skipta­líf­inu þegar hann vann leið­toga­próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í jan­úar. Oddviti Við­reisnar og fleiri nýir borg­ar­full­trúar sitja í stjórnum félaga.
FréttirBorgarstjórnarkosningar 2018

Vildi ekki verða „hús­þræll“ í vinstri- og miðju­sam­starfi en mynd­aði atkvæða­blokk með Sjálf­stæð­is­flokknum

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, sætir harðri gagn­rýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálf­stæð­is­flokknum og Mið­flokknum af praktískum ástæðum. „Fram­kvæmd­ar­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi fyrir hönd allrar stjórn­ar­and­stöð­unnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár