Slysahætta margfaldast við að flytja olíutanka til Hafnarfjarðar eða Helguvíkur

Slysa­hætta og kostn­aður aukast við flutn­ing olíu­tankanna á Örfirisey til Hafn­ar­fjarðar eða Helgu­víkur. Sjálf­stæð­is­menn vilja byggja 2.000 manna íbúa­byggð á land­fyll­ingum. Eyþór Arnalds hefur rangt eftir verk­efn­is­stjórn sem taldi Örfirisey besta kost­inn.

Slysahætta margfaldast við að flytja olíutanka til Hafnarfjarðar eða Helguvíkur
Olíu­tank­arnir á Örfirisey Fram­bjóð­endur Sjálf­stæð­is­flokks vilja færa tank­ana og byggja 2.000 íbúa byggð á land­fyll­ingum. Mynd: Pressphotos.biz - (GeiriX)

Hættan á lekaslysi mun aukast um 200-450% verði hug­myndir Eyþórs Arnalds og Hildar Björns­dóttur, fram­bjóð­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um flutn­ing olíu­tanka frá Örfirisey að veru­leika. Áhætta fyrir fólk mundi aukast um 135-245% yrðu tank­arnir fluttir til Hafn­ar­fjarðar eða Helgu­víkur. Mælt var gegn hug­mynd­unum um slíka flutn­inga í skýrslu sem Faxa­flóa­hafnir létu gera árið 2007.

„Gerð var skýrsla um val­kosti fyrir 10 árum og þeir eru nokkrir,“ skrifar Eyþór Arnalds í athuga­semd á Facebook. „Sá lakasti er óbreytt ástand að hafa olíu­stöð og geymslu­svæði á þessum stað í mið­borg­inni.“

Orð hans eru á skjön við nið­ur­stöðu verk­efna­stjórn­ar­innar sem skrif­aði skýrsl­una og taldi Örfirisey vera ákjós­an­leg­ustu stað­setn­ing­una og „vel stað­setta frá flestum sjón­ar­hornum“. Fjöldi aðila að verk­inu, sem Vil­hjálmur Þ. Vil­hjálms­son, þáver­andi borg­ar­stjóri kall­aði eftir, en danska ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið COWI fram­kvæmdi áhættu­grein­ingu á stöð­inni. Fimmtán stað­ar­val­kostir á strand­lengj­unni frá Reykja­nesi upp á Grund­ar­tanga …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2018

Hagsmunatengsl borgarfulltrúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga
ÚttektBorgarstjórnarkosningar 2018

Hags­muna­tengsl borg­ar­full­trúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga

Eyþór Arnalds situr enn í stjórnum fimm félaga og eru tvö þeirra eign­ar­halds­fé­lög með rúman einn og hálfan millj­arð í eignir. Hann lof­aði að skilja sig frá við­skipta­líf­inu þegar hann vann leið­toga­próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í jan­úar. Oddviti Við­reisnar og fleiri nýir borg­ar­full­trúar sitja í stjórnum félaga.
Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðjusamstarfi en myndaði atkvæðablokk með Sjálfstæðisflokknum
FréttirBorgarstjórnarkosningar 2018

Vildi ekki verða „hús­þræll“ í vinstri- og miðju­sam­starfi en mynd­aði atkvæða­blokk með Sjálf­stæð­is­flokknum

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, sætir harðri gagn­rýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálf­stæð­is­flokknum og Mið­flokknum af praktískum ástæðum. „Fram­kvæmd­ar­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi fyrir hönd allrar stjórn­ar­and­stöð­unnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár