Kostar minnst þrettán milljarða að flytja olíutankana frá Örfirisey

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, hefur talað fyrir íbúa­byggð í stað olíu­birgða­stöðv­ar­innar í Örfirisey. Verk­efn­is­stjórn taldi árið 2007 Örfirisey vera besta kost­inn fyrir olíu­birgð­ar­stöð hvað varðar kostnað og áhættu. Kostn­aður við að flytja stöð­ina er minnst 13-16 millj­arðar króna að núvirði.

Kostar minnst þrettán milljarða að flytja olíutankana frá Örfirisey

Örfirisey var talin besti kost­ur­inn fyrir olíu­birgð­ar­stöð í rann­sókn frá 2007 sem borg­ar­stjóri kall­aði eftir. Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, hefur kallað eftir íbúa­byggð með háhýsum í stað olíu­tankanna, en kostn­að­ur­inn við flutn­ing stöðv­ar­innar væri að minnsta kosti 13-16 millj­arðar króna.

„Grandinn er nú þegar með margs konar hverf­is­verslun og þjón­ustu en þar er ekki ein ein­asta skipu­lögð íbúð enda er svæðið skipu­lagt atvinnu- og hafn­ar­svæði,“ skrif­aði Eyþór  í Frétta­blað­inu 19. jan­úar. „Mögulegt er að byggja 10-15 þús­und manna byggð í áföngum í Örfirisey og bjóða þar fram mynd­ar­lega þróun byggðar sem myndi létta á ójafn­vægi í umferð og vera val­kostur fyrir fólk sem vill búa á mið­svæði.“

Sumarið 2006 óskaði Vil­hjálmur Þ. Vil­hjálms­son, þáver­andi borg­ar­stjóri og sam­flokks­maður Eyþórs, eftir grein­ingu á stað­setn­ingu olíu­birgð­ar­stöðv­ar­innar. Verk­efn­is­stjórn skil­aði af sér nið­ur­stöðum í októ­ber 2007 og kom fjöldi aðila að verk­inu, en danska ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið COWI fram­kvæmdi áhættu­grein­ingu á stöð­inni. Fimmtán stað­ar­val­kostir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2018

Hagsmunatengsl borgarfulltrúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga
ÚttektBorgarstjórnarkosningar 2018

Hags­muna­tengsl borg­ar­full­trúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga

Eyþór Arnalds situr enn í stjórnum fimm félaga og eru tvö þeirra eign­ar­halds­fé­lög með rúman einn og hálfan millj­arð í eignir. Hann lof­aði að skilja sig frá við­skipta­líf­inu þegar hann vann leið­toga­próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í jan­úar. Oddviti Við­reisnar og fleiri nýir borg­ar­full­trúar sitja í stjórnum félaga.
Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðjusamstarfi en myndaði atkvæðablokk með Sjálfstæðisflokknum
FréttirBorgarstjórnarkosningar 2018

Vildi ekki verða „hús­þræll“ í vinstri- og miðju­sam­starfi en mynd­aði atkvæða­blokk með Sjálf­stæð­is­flokknum

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, sætir harðri gagn­rýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálf­stæð­is­flokknum og Mið­flokknum af praktískum ástæðum. „Fram­kvæmd­ar­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi fyrir hönd allrar stjórn­ar­and­stöð­unnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár