Konur gefa hver annarri kraft

Einu sinni í mán­uði kemur hópur kvenna saman, myndar hring á gólf­inu, lætur stein ganga á milli sín og segja hver annarri sögu. „Stundum er nefni­lega eina aðstoðin sem konur þarfn­ast að á þær sé hlustað,“ segir skipu­leggj­andi við­burð­ar­ins.

Konur gefa hver annarri kraft
Kvenna­hringur Konurnar raða sér í hring á gólf­inu og láta sögu­stein ganga sín á milli. Mynd: Úr einkasafni

Und­an­farið ár hefur fjöl­breyttur hópur kvenna hist mán­að­ar­lega til að deila sögum undir merkjum systra­lags. Magda­lena Grabowicz er ein þeirra kvenna sem stendur að baki sam­veru­stund­unum. „Ég byrj­aði á því að kalla til svona kvenna­hrings fyrir um það bil ári síðan. Þetta var nokkuð sem ég sakn­aði frá heima­landi mínu, Póllandi, vett­vangur til að tengj­ast öðrum konum á dýpri hátt en í dag­legu lífi. Fyrst um sinn hitt­umst við úti í nátt­úr­unni en þegar sept­em­ber kom og það fór að kólna vorum við svo heppnar að Auður í Jóga­setr­inu bauð okkur að hitt­ast þar.“

Í hvert sinn sem kon­urnar hitt­ast mynda þær hring á púðum á gólf­inu. Oftast nær hefj­ast stund­irnar á stuttri hug­leiðslu og í kjöl­far þess er sögu­steinn lát­inn ganga kvenn­anna á milli. Sú sem heldur á stein­inum segir sögu sem liggur henni á hjarta, innan þess ramma sem hefur verið ákveð­inn fyr­ir­fram. Á meðal þess sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár