Skoða ábendingu um „gerviverktaka“ í Hörpu

Raf­iðn­að­ar­sam­bandið hefur til skoð­unar ábend­ingu um samn­inga sviðs- og tækni­manna í Hörpu. Tækni­stjóri Hörpu segir starfs­menn Hörpu ekki standa að ábend­ingu sem hafi verið send „á fölskum for­sendum“.

Skoða ábendingu um „gerviverktaka“ í Hörpu
Deilur um launa­mál í Hörpu Þjón­ustu­full­trúar hafa sagt upp störfum til að mót­mæla launa­hækkun for­stjóra. Mynd: Harpa.is

Raf­iðn­að­ar­sam­bandið er með til skoð­unar ábend­ingu um að sviðs- og tækni­menn Hörpu starfi sem „gervi­verk­takar“. Tækni­stjóri Hörpu segir ábend­ing­una hafa verið senda út á fölskum for­sendum og hyggst funda með full­trúum Raf­iðn­að­ar­sam­bands­ins til að fara yfir málið.

„Þetta snýr að því hvort launa­kjör séu eins og ætti að vera, hvort að launa­kjör séu í sam­ræmi við kjara­samn­inga eða ekki,“ segir Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands­ins. „Ein­hverjir eru ráðnir inn sem verk­takar í stað þess að vera launa­menn, að okkar mati. Ég get ekki dæmt um það núna hvort þetta sé eðli­legt, en þetta er mál sem við erum að skoða. Við tökum það alvar­lega ef starfs­menn eru settir í þá stöðu að taka laun sem eru ekki í sam­ræmi við kjara­samn­inga og fylgjum því vel eftir.“

Mál sem snúa að Hörpu hafa komið upp áður

Svokölluð „gervi­verk­taka“ er fyr­ir­komu­lag þar sem starfs­maður þiggur verk­taka­greiðslur fyrir starf sem ætti að telj­ast laun­þega­vinna. Með slíku fyr­ir­komu­lagi þarf vinnu­veit­andi ekki að greiða launa­tengd gjöld og getur með auð­veld­ari hætti sagt upp starfs­manni. Þá telj­ast slík kaup á verk­taka­þjón­ustu virð­is­auka­skatt­skyld og getur því vinnu­veit­andi talið þau til inn­skatts og lækkað skatt­greiðslur.

Að sögn Krist­jáns hefur áður komið upp mál í tengslum við félags­menn sem starfi í Hörpu. Var það mál leyst í sátt, en ekki er ljóst hvort nýja ábend­ingin snúi að núver­andi starfs­fólki. „Maður heyrir að það hafi verið til­hneig­ing hjá fyr­ir­tæk­inu að ráða ekki starfs­menn, heldur kaupa af þeim þjón­ustu eins og þeir væru verk­takar,“ segir Kristján. „Það er auð­vitað ekki eðli­legt ef það er raunin, en ég get ekki stað­fest að það sé þannig nú.“

Yfirlýsingin „á fölskum forsendum“

Hrannar Haf­steins­son, tækni­stjóri Hörpu, segir að yfir­lýs­ing sem barst fjöl­miðlum um málið hafi ekki verið send með vit­neskju eða sam­þykki starfs­manna á tækni­sviði Hörpu. „Margir sviðs- og tækni­menn hafa komið að máli við mig í gær og dag og lýst yfir óánægju sinni með að yfir­lýs­ingin hafi verið send út í þeirra nafni án þess að haft hafi verið sam­band við þá,“ segir Hrannar. „Yfir­lýs­ingin virð­ist því hafa verið send á fölskum for­sendum og standa starfs­menn í Hörpu ekki að henni.“

Hrannar segir að til standi að funda með full­trúum Raf­iðn­að­ar­sam­bands­ins vegna máls­ins. „Varðandi þá þætti sem snúa að vinnu verk­taka og starfs­manna tækni­s­viðs í Hörpu þá höfum við verið í mjög góðu sam­bandi við Raf­iðn­að­ar­sam­bandið til þessa og höfum nú óskað eftir því að hitta for­svars­menn félags­ins til að fara m.a. yfir þá þætti sem nefndir voru í þess­ari yfir­lýs­ingu,“ segir Hrannar.

Sagði þjónustufulltrúa þá einu sem lækkuðu í launum

Tuttugu þjón­ustu­full­trúar Hörpu hafa ákveðið að segja upp störfum í kjöl­far fundar með Svan­hildi Kon­ráðs­dóttur, for­stjóra Hörpu. Segja þjón­ustu­full­trúar að Svan­hildur hafi stað­fest á fund­inum að þeir hafi verið einu starfs­menn­irnir sem var gert að taka á sig beina launa­lækkun, en þeir hafi verið launa­lægstu starfs­menn húss­ins.

Upp­sagn­irnar koma í kjöl­far ólgu vegna frétta af launa­hækkun Svan­hildar, en stjórn Hörpu samdi við hana um laun sem eru 20% hærri en kjara­ráð kvað á um að laun for­stjóra Hörpu skyldu vera. Svan­hildur hefur farið fram á að laun sín verði lækkuð aft­ur­virkt niður í þá upp­hæð sem kjara­ráð ákvarð­aði til að skapa frið um starf­semi Hörpu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár