Svanhildur óskar eftir að laun sín verði lækkuð í 1,3 milljónir króna á mánuði

For­stjóri Hörpu hefur óskað eftir að laun sín verði lækkuð aft­ur­virkt til að skapa frið um starf­semi Hörpu. Tuttugu starfs­menn Hörpu segja upp í kjöl­far frétta­flutn­ings af launa­hækkun for­stjóra. Stjórn Hörpu vildi hærri for­stjóra­laun en kjara­ráð.

Svanhildur óskar eftir að laun sín verði lækkuð í 1,3 milljónir króna á mánuði
Svan­hildur Kon­ráðs­dóttir For­stjóri Hörpu samdi um 1,5 milljón króna mán­að­ar­laun áður en kjara­ráð lækk­aði þau. Mynd: Harpa

Svan­hildur Kon­ráðs­dóttir, for­stjóri Hörpu, seg­ist í dag hafa farið fram á að laun sín yrðu lækkuð aft­ur­virkt til að skapa frið um starf­semi Hörpu. „Ég óskaði eftir því við for­mann stjórnar Hörpu í dag að laun mín yrðu lækkuð aft­ur­virkt frá 1. jan­úar 2018 og yrðu til sam­ræmis við úrskurð kjara­ráðs frá því snemma árs 2017,“ skrifar Svan­hildur á Facebook síðu sína. „Kjaramál mín hafa truflað mjög mik­il­vægt verk­efni sem nú er í vinnslu er varðar rekstur húss­ins. Friður um Hörpu er ofar öllu.“

Tuttugu þjón­ustu­full­trúar Hörpu hafa ákveðið að segja upp störfum í kjöl­far fundar með Svan­hildi í gær. Segja þjón­ustu­full­trúar að Svan­hildur hafi stað­fest á fund­inum að þeir hafi verið einu starfs­menn­irnir sem var gert að taka á sig beina launa­lækkun, en þeir hafi verið launa­lægstu starfs­menn húss­ins.

Rekstur Hörpu verið þungur

Upp­sagn­irnar koma í kjöl­far ólgu vegna frétta af launa­hækkun Svan­hildar, en stjórn Hörpu samdi við hana um laun sem eru 20% hærri en kjara­ráð kvað á um að laun for­stjóra Hörpu skyldu vera. Í fyrri yfir­lýs­ingu sagði Svan­hildur að fullt sam­ráð hafi verið haft við stétt­ar­fé­lag og trún­að­ar­mann starfs­manna í þessum ferli. „Þjón­ustu­full­trúum bauðst nýr samn­ingur sem tók gildi um sl. ára­mót sem felur í sér 15% yfir­borgun frá kjara­samn­ingi og var þetta ein af fjöl­mörgum aðgerðum við að draga úr kostn­aði við við­burða­hald,“ sagði Svan­hildur. „Störf þjón­ustu­full­trúa eru unnin í tíma­vinnu og tengj­ast nán­ast ein­vörð­ungu við­burða­haldi í hús­inu. Lang­flestir sinna þessu sem hluta­starfi með námi og ein­kenn­ist ráðn­ing­ar­sam­bandið af miklum sveigj­an­leika hvað varðar tíma og vinnu sem innt er af hendi.“

Í yfir­lýs­ing­unni sagði Svan­hildur að aldrei hafi verið haldið fram að sömu aðgerðum til launa­lækk­unar starfs­manna yrði beitt á öllum sviðum. Aðgerðir til hag­ræð­ingar í rekstri Hörpu séu farnar að skila árangri, en rekstur batn­aði á milli ára. „Rekstur Hörpu hefur verið þungur um ára­bil og á síð­asta ári gerðu eig­endur og stjórn skýra kröfu um að ráð­ist yrði í aðgerðir til að bæta rekst­ur­inn og draga úr tapi,“ segir Svan­hildur.

Segir launahækkun hafa verið launalækkun

Stjórn­ar­for­maður Hörpu segir launa­hækkun for­stjóra Hörpu í raun hafa verið launa­lækkun. Stjórnin hafi samið um 1,5 milljón króna mán­að­ar­laun við nýjan for­stjóra, Svan­hildi Kon­ráðs­dóttur, í byrjun árs 2017, en kjara­ráð hafi í kjöl­far lækkað launin þar til laga­breyt­ing færði ákvörð­un­ar­vald um launin undir stjórn Hörpu. Þá voru þau hækkuð aftur í 1,5 milljón króna og auk þess um 67.500 kr. sam­kvæmt kjara­samn­ingi VR, alls 20% meira en kjara­ráð ákvarð­aði.

Ný lög um kjara­ráð tóku gildi 1. júlí 2017 og hafði þá stjórn Hörpu þegar samið við Svan­hildi. „Eftir að samið hafði verið um laun við nýjan for­stjóra barst úrskurður kjara­ráðs um að laun for­stjóra skyldu vera kr. 1.308.736 á mán­uði,“ segir í til­kynn­ingu frá Þórði Sverris­syni, stjórn­ar­for­manni Hörpu. „Því sam­þykkti for­stjóri að umsamin mán­að­ar­laun skyldu lækka um kr. 191.264 fyrstu tvo mán­uð­ina en samn­ing­ur­inn síðan gilda frá 1. júlí 2017.“

Segir Þórður Sverr­is­son, stjórn­ar­for­maður Hörpu, þau nú vera 14,6% hærri en kjara­ráð kvað á um. Ef kjara­samn­ings­bundna hækk­unin er tekin með eru launin 20% hærri en ákvörðun kjara­ráðs, en slík reglu­leg hækkun er  ekki í ákvörð­un­inni.

Hætta að nota Hörpu undir viðburði

Ellen Krist­jáns­dóttir söng­kona lýsir því yfir á Facebook að hún muni ekki syngja framar í Hörpu fyrr en launa­lækkun þjón­ustu­full­trúa verði leið­rétt. „Sam­staðan skiptir öllu þegar svona ger­ist og þetta er að ger­ast út um allt,“ skrifar Ellen. „Þjón­ustu­full­trúar sem sögðuð upp störfum í Hörpu, ég stend með ykkur.“ Í kjöl­farið veltir hún fyrir sér hvort starf for­stjóra sé rétt skipu­lagt. „Ef starf for­stjóra Hörpu er svona erfitt, afhverju eru þá ekki bara tveir látnir skipta því á milli sín og laun­unum líka? Þannig gætu tvær mann­eskjur fengið mann­sæm­andi laun og átt frí­tíma með fjöl­skyld­unni.“

„VR sem stétt­ar­fé­lag getur ekki annað en tekið sér stöðu með starfs­mönnum sem hafa verið smán­aðir“

VR hefur lýst því yfir að félagið sé hætt að nota Hörpu undir við­burði og segja yfir­lýs­ingu Svan­hildar koma eins og blauta tusku í and­lit félags­manna. „Einu við­brögðin eru þau að kveðja þessa dug­miklu starfs­menn og óska þeim vel­farn­aðar!“ segir í yfir­lýs­ingu VR. „VR sem stétt­ar­fé­lag getur ekki annað en tekið sér stöðu með starfs­mönnum sem hafa verið smán­aðir með þessum ótrú­lega hætti og hætt öllum við­skiptum við Hörpu tón­list­ar­hús þar til þetta mál fær eðli­lega afgreiðslu.“ 

Laun stjórnenda hækkuðu um 16,8% á fjórum árum

Fram kom í til­kynn­ingu Þórðar að laun stjórnar og for­stjóra félags­ins hefðu verið 29,3 millj­ónir króna á árinu 2017, en hafi staðið í 25 millj­ónum króna árið 2014. Þau hafi því hækkað um 16,8% á fjórum árum. Til sam­an­burðar hefur verð­lag hækkað um 8,7 pró­sent frá jan­úar 2014 til apríl 2018. „Í samn­ingi við for­stjóra eru engin ákvæði um bónusa, auk þess sem inni­falin er öll vinna utan venju­legs vinnu­tíma og seta í stjórnum dótt­ur­fé­laga,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þórður segir stjórn Hörpu hafa sam­þykkt þennan samn­ing sam­hljóða og telur að launin hafi verið í sam­ræmi við sam­bæri­leg störf. „Laun for­stjóra voru ekki hækkuð um 20% eftir 2 mán­uði í starfi heldur tók hún á sig tíma­bundna launa­lækkun vegna úrskurðar kjara­ráðs,“ segir í til­kynn­ingu Þórðar.

Aðspurður seg­ist hann ekki þekkja hver mun­ur­inn er á launum Svan­hildar og fyrri for­stjóra, en hann kom inn í stjórn Hörpu í sept­em­ber 2017, eftir samn­ing­ana við Svan­hildi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár