Svanhildur fékk meira en fyrri forstjóri, þrátt fyrir „tímabundna launalækkun“

Mán­að­ar­laun fyrr­ver­andi for­stjóra Hörpu, Halldórs Guð­munds­sonar, voru tæpar 1,6 millj­ónir króna árið 2016 auk launa­tengdra gjalda, en núver­andi for­stjóri, Svan­hildur Kon­ráðs­dóttir, fékk 1.775.000 kr. á mán­uði, þrátt fyrir tíma­bundna lækkun. Hún hefur nú óskað eftir frek­ari lækkun í kjöl­far gagn­rýni.

Svanhildur fékk meira en fyrri forstjóri, þrátt fyrir „tímabundna launalækkun“
Mikill styr hefur staðið um launa­mál for­stjóra og starfs­manna Hörpu. Mynd: Harpa.is

Halldór Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Hörpu, fékk 18,8 millj­ónir króna í laun og launa­tengd gjöld á árinu 2016, eða um 1.566.666 kr. að með­al­tali á mán­uði. Svan­hildur Kon­ráðs­dóttir, núver­andi for­stjóri, fékk 1.775.000 kr. á mán­uði í laun og launa­tengd gjöld, þrátt fyrir að hafa fengið lægri laun sam­kvæmt úrskurði kjara­ráðs fyrstu tvo mán­uð­ina í starfi. Hún hefur nú óskað eftir að laun sín verði lækkuð í 1,3 millj­ónir króna í kjöl­far gagn­rýni, en við það bæt­ast launa­tengd gjöld.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Hörpu fyrir árið 2016. Berglind Ólafs­dóttir, fjár­mála­stjóri Hörpu, stað­festir að upp­hæðin hafi öll verið vegna launa og launa­tengdra gjalda Halldórs. Halldór lét af störfum 1. mars 2017. Skömmu áður úrskurð­aði kjara­ráð að laun næsta for­stjóra skyldu vera 1.308.736 kr. á mán­uði, en þá hafði stjórn Hörpu þegar samið við Svan­hildi um 1,5 millj­ónir króna.

Svan­hildur tók á sig „tíma­bundna lækkun“ að sögn Þórðar Sverr­is­sonar, stjórn­ar­for­manns Hörpu, þar til ný lög um kjara­ráð tóku gildi 1. júlí 2017 sem færðu ákvörð­un­ar­vald um laun for­stjóra undir stjórn Hörpu. Eru laun hennar nú 1.567.500 kr. eftir kjara­samn­ings­bundna launa­hækkun. Tuttugu þjón­ustu­full­trúar Hörpu hafa sagt upp til að mót­mæla launum for­stjóra á sama tíma og þeim var gert að taka á sig launa­lækk­anir. Svan­hildur hefur nú óskað eftir að laun sín verði lækkuð aft­ur­virk til að skapa frið um starf­semi Hörpu.

Ríkið og Reykjavíkurborg lögðu til tæpan hálfan milljarð

Rekstur Hörpu hefur verið erf­iður frá stofnun og dróg­ust tekjur saman um 120 millj­ónir króna, eða 9%, á milli áranna 2016 og 2017. Eigendur Hörpu, þ.e. ríkið og Reykja­vík­ur­borg, lögðu fram 450 millj­ónir króna til rekst­urs­ins í fyrra. Í til­kynn­ingu sinni vegna upp­sagna þjón­ustu­full­trúa sagði Svan­hildur að aðgerðir til hag­ræð­ingar í rekstri Hörpu séu farnar að skila árangri, en rekstur án fram­laga eig­enda hafi batnað um 30 millj­ónir króna á milli ára.

„Þrátt fyrir að rekstur Hörpu hafi batnað á milli áranna 2016 og 2017 og fram­lög eig­enda auk­ist um rúmar 250 m.kr. er eigið fé samt orðið nei­kvætt í árs­lok vegna hárra afskrifta, árlegrar verð­breyt­inga­færslu og fjár­magns­kostn­aðar,“ sagði Svan­hildur í skýrslu for­stjóra með árs­reikn­ingi. „Fyr­ir­sjá­an­legt er að sá mínus muni stöðugt stækka á næstu árum – og það þrátt fyrir að sjóð­streymi og EBITDA verði áfram jákvæð. Þetta er óásætt­an­leg staða en unnið er að því að tryggja Hörpu eðli­legan efna­hags­reikn­ing í sam­starfi við eig­endur félags­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár