Barnaníðsmálið í þjóðkirkjunni: „Alls staðar þar sem ég nefndi þetta mál vildi fólk ekki hlusta“

Unnur Guð­jóns­dóttir benti Bisk­ups­stofu á barn­a­níð þjóð­kirkju­prests árið 2010. Karl Sig­ur­björns­son las bréf hennar en ekk­ert var gert í mál­inu. Unnur seg­ist hafa talað um málið fyrir daufum eyrum um ára­bil.

Barnaníðsmálið í þjóðkirkjunni: „Alls staðar þar sem ég nefndi þetta mál vildi fólk ekki hlusta“
Karl las bref Unnar Unnur segir að Karl Sigu­björns­son, þáver­andi biskup Íslands, hafi lesið bréfið sem hún sendi þjóð­kirkj­unni árið 2010. Karl hefur sagt við Stundina að honum hafi orðið mikið um við lestur bréfs­ins.

„Það er þennan dag í sept­em­ber 2010 þegar ég sendi bréfið til Bisk­ups­stofu. Þetta var eftir að ég hafði heyrt þessa áskorun í útvarp­inu að láta vita af mögu­legum kyn­ferð­is­brotum innan kirkj­unnar,“ segir Unnur Guð­jóns­dóttir, fyrr­ver­andi ball­et­meist­ari Þjóð­leik­húss­ins og blaða­maður sem rekur Kínasafn Unnar í miðbæ Reykja­víkur, aðspurð um hvenær hún hafi fyrst bent þjóð­kirkj­unni á kyn­ferð­is­brot prests­ins gegn stúlku­barn­inu á sjötta ára­tug síð­ustu aldar. Stundin fjall­aði um málið í blaði sínu sem kom út föstu­dag­inn 11. maí. 

Unnur segir að hún hafi vitað um kyn­ferð­is­brot prests­ins í nokkur ár þegar þetta var. Umræða um bisk­ups­málið svo­kall­aða, kyn­ferð­is­lega áreitni Ólafs Skúla­sonar bisk­ups, hafði verið mikil á þessum tíma í sam­fé­lag­inu.

Í bréfi Unnar til Bisk­ups­stofu, sem dag­sett er þann 17. sept­em­ber 2010, segir meðal ann­ars: „Ég var að hlusta á Gunnar Rúnar Matth­í­as­son [sjúkra­hús­prest og for­mann fagráðs þjóð­kirkj­unnar] í hádeg­is­út­varp­inu áðan, þar sem hann uppman­aði fólk að láta vita ef …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaníðsmálið í Þjóðkirkjunni

Barnaníðsmál prests gert upp með sáttafundi á skrifstofu biskups
ÚttektBarnaníðsmálið í Þjóðkirkjunni

Barn­a­níðs­mál prests gert upp með sátta­fundi á skrif­stofu bisk­ups

Þjóð­kirkjan þver­brýtur ítrekað eigin vinnu­reglur við með­ferð kyn­ferð­is­brota­mála. Úrskurð­ar­nefnd þjóð­kirkj­unnar hefur gagn­rýnt biskup fyrir aðkomu að með­ferð kyn­ferð­is­brota­mála. Rúmlega 60 ára gam­alt barn­a­níðs­brot prests hefði átt að fara til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar en biskup tók málið að sér og málið varð aldrei opin­bert.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár