Barnaníðsmál prests gert upp með sáttafundi á skrifstofu biskups

Þjóð­kirkjan þver­brýtur ítrekað eigin vinnu­reglur við með­ferð kyn­ferð­is­brota­mála. Úrskurð­ar­nefnd þjóð­kirkj­unnar hefur gagn­rýnt biskup fyrir aðkomu að með­ferð kyn­ferð­is­brota­mála. Rúmlega 60 ára gam­alt barn­a­níðs­brot prests hefði átt að fara til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar en biskup tók málið að sér og málið varð aldrei opin­bert.

Barnaníðsmál prests gert upp með sáttafundi á skrifstofu biskups
Ítrekuð brot á vinnu­reglum Biskup Íslands hefur ítrekað brotið vinnu­reglur þjóð­kirkj­unnar við með­ferð kyn­ferð­is­brota­mála sem koma inn til fagráðs þjóð­kirkj­unnar. Biskup hefur tekið mál yfir sem ættu að fara til óháðrar nefndar sem lög­fræð­ingur stýrir. Mynd: Omar Oskarsson

Árið 2015 var hald­inn sátta­fundur á skrif­stofu bisk­ups Íslands, Agnesar Sig­urð­ar­dóttur, þar sem aldr­aður prestur bað konu fyr­ir­gefn­ingar á því að hafa ítrekað beitt hana kyn­ferð­is­of­beldi þegar hún var 10 og 11 ára gömul. Þetta herma heim­ildir Stund­ar­innar. Fund­ur­inn var hald­inn í votta við­ur­vist og voru synir kon­unnar við­staddir, sem og tveir aðrir ætt­ingjar auk bisk­ups og starfs­manna þjóð­kirkj­unnar. Prest­ur­inn er á níræð­is­aldri og konan er 10 árum yngri. Þessi með­ferð máls­ins er skýrt brot á starfs­reglum þjóð­kirkj­unnar um með­ferð kyn­ferð­is­brota­mála og hefur úrskurð­ar­nefnd þjóð­kirkj­unnar gagn­rýnt Agnesi biskup fyrir slíka aðkomu að kyn­ferð­is­brota­málum ann­ars prests.

Málið hefur oft­sinnis verið til­kynnt til þjóð­kirkj­unnar af ýmsum aðilum í gegnum árin, meðal ann­ars í bisk­ups­tíð Ólafs Skúla­sonar og Karls Sig­ur­björns­sonar, en kirkjan hefur í gegnum árin aldrei aðhafst neitt í mál­inu svo vitað sé. Nöfn prests­ins og kon­unnar verða ekki nefnd að sinni þar sem konan vill ekki ræða málið opin­ber­lega. 

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaníðsmálið í Þjóðkirkjunni

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár