Fundi með Braga lokað eftir bréf frá lögfræðingi

Til stóð að fundur vel­ferð­ar­nefndar með Braga Guð­brands­syni yrði opinn en þeirri ákvörðun var breytt eftir athuga­semdir lög­fræð­ings. Talin hætta á að trún­aður yrði rof­inn í ógáti.

Fundi með Braga lokað eftir bréf frá lögfræðingi
Fundi vel­ferð­ar­nefndar lokað Fundi vel­ferð­ar­nefndar með Braga Guð­brands­syni hefur verið lokað og fjöl­miðlum og almenn­ingi því ekki heim­ilt að fylgj­ast með honum.

Fundur vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, þar sem Bragi Guð­brands­son for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu mun mæta til að greina frá sinni aðkomu að barn­ar­vernd­ar­máli sem Stundin hefur fjallað um síð­ustu daga, verður lok­aður þvert á það sem áður hafði verið gefið út. Ákvörðum um að fund­ur­inn skuli vera lok­aður var tekin í gær eftir að for­manni nefnd­ar­innar barst bréf frá lög­manni föður manns sem lá undir grun um að hafa brotið gegn dætrum sínum. Þær athuga­semdir sem þar komu fram voru metnar og tekin ákvörðun um að loka fund­inum.

Fundur vel­ferð­ar­nefndar á að hefj­ast nú klukkan tíu og sem fyrr segir stóð til að hann yrði opinn fjöl­miðlum og öðrum gestum. Af því verður hins vegar ekki. Halldóra Mogensen sagði í sam­tali við Stundina nú í morgun að henni hefði borist bréf frá lög­manni föður manns­ins þar sem settar voru fram athuga­semdir við að fund­ur­inn yrði opin. Halldóra hefði þá leitað ráð­gjafar á nefnda­sviði Alþingis og það hefði orðið nið­ur­staðan að loka fund­inum. Ástæðan væri sú að hætta væri á að hugs­an­lega yrði trún­aður á ákveðnum þáttum máls­ins rof­inn í ógáti. Halldóra bætti því við að í þessu ljósi væri enn rík­ari ástæða til þess að Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra hlut­að­ist til um að aflétta trún­aði yfir þeim gögnum máls­ins sem ekki inni­héldu við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar.

Tilefni fund­ar­ins er for­síðu­um­fjöllun Stund­ar­innar frá því á föstu­dag­inn þar sem greint var frá því að Bragi hefði, í sam­ráði við föður máls­að­ila í barna­vernd­ar­máli, beitt sér fyrir því að faðir, sem barna­vernd­ar­nefnd og með­ferð­ar­að­ili ótt­uð­ust að hefði brotið kyn­ferð­is­lega gegn dætrum sínum, fengi að umgang­ast þær.   

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár