Ráðgjafafyrirtæki fær 8,5 milljónir fyrir að verkstýra stefnumótun stjórnvalda í barnavernd

Sér­fræð­ingum í fyr­ir­tækja­rekstri, við­skipta­þróun og stefnu­mótun hjá fyr­ir­tæk­inu Expectus ehf var falið að verk­stýra end­ur­skoðun barna­vernd­ar­kerf­is­ins fyrir 25 þús­und krónur á tím­ann sam­kvæmt verk­samn­ingi sem Stundin hefur undir höndum.

Ráðgjafafyrirtæki fær 8,5 milljónir fyrir að verkstýra stefnumótun stjórnvalda í barnavernd
Ásmundur Einar Daðason Félags­mála­ráð­herra hefur verið gagn­rýndur fyrir að greina vel­ferð­ar­nefnd Alþingis ekki frá því að Bragi Guð­brands­son, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, hefði fengið til­mæli frá ráðu­neyt­inu um að fara ekki út fyrir verk­svið sitt, áður en ákveðið var að til­nefna hann sem full­trúa Íslands í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna. Mynd: Pressphotos.biz/Geirix

Fyr­ir­tækið Expectus fær rúm­lega 8,5 millj­ónir króna fyrir að verk­stýra vinnu við stefnu­mótun stjórn­valda í barna­vernd. Þetta kemur fram í verk­samn­ingi vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins og ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins sem Stundin hefur undir höndum.  Gert er ráð fyrir 344 klukku­stunda vinnu og 8,5 millj­óna króna heild­ar­greiðslu fyrir verk­efnið auk virð­is­auka­skatts, eða um 25 þús­und krónum á tím­ann. 

Að því er fram kemur á vef fyr­ir­tæk­is­ins er hlut­verk þess að aðstoða „við­skipta­vini á fyr­ir­tækja­mark­aði við að nýta þekk­ingu og upp­lýs­inga­tækni til að auka hæfni þeirra, móta stefnu og koma áherslum í fram­kvæmd og skila þannig mæl­an­legum árangri“.

Enginn þeirra sem kemur að vinn­unni við end­ur­skipu­lagn­ingu barna­vernd­ar­kerf­is­ins fyrir hönd fyr­ir­tæk­is­ins hefur sér­fræði­menntun á sviði barna­vernd­ar­mála, félags­þjón­ustu, sál­fræði, lög­fræði eða opin­berrar stjórn­sýslu. Hins vegar njóta ráð­gjaf­arnir aðstoðar sér­fræð­ings úr vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu, Guðríðar Bolla­dóttur, við öflun upp­lýs­inga, skipu­lagn­ingu funda og önnur verk­efni sem lúta að fram­gangi verk­efn­is­ins. Þá er starf­rækt sér­stök verk­efn­is­stjórn og í henni sitja sér­fræð­ingar í mála­flokknum frá Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga, fræða­sam­fé­lag­inu og stofn­unum og félögum sem hafa með mála­flokk­inn að gera. 

Samkvæmt verk­samn­ingnum við Expectus er það Ragnar Þórir Guð­geirs­son, ráð­gjafi og stjórn­ar­for­maður þess, sem verk­stýrir og stjórnar vinnu við stefnu­mótun stjórn­valda í barna­vernd. Hann er með við­skipta­fræði­gráðu frá Háskóla Íslands og lög­gild­ing­ar­próf í end­ur­skoðun og hefur starfað við við­skipta­þróun, stefnu­mótun og rekstr­ar­lega end­ur­skipu­lagn­ingu fyrir mörg stærstu fyr­ir­tæki lands­ins. 

Að afmörk­uðum verk­þáttum koma Anna Björk Bjarna­dóttir, Sindri Sig­ur­jóns­son og Reynir Ingi Árnason. Anna Björk er íþrótta­fræð­ingur en jafn­framt menntuð í mark­aðs­fræði og með ára­langa reynslu sem leið­togi og stjórn­andi í fjar­skipta­geir­anum og víðar, meðal ann­ars sem fram­kvæmda­stjóri hjá Símanum frá 2008 til 2013 og svo sem fram­kvæmda­stjóri tækni­s­viðs. Sindri er mennt­aður í iðn­að­ar­verk­fræði og aðgerð­ar­rann­sóknum og hefur tals­verða reynslu af stefnu­mótun, fjár­mála- og árang­ur­stjórnun, áætl­ana­gerð og end­ur­hönnun við­skipta­ferla. Reynir Ingi er hag­fræð­ingur sem hefur starfað sem ráð­gjafi í fjár­málum fyr­ir­tækja á ráð­gjafasviði Deloitte. Þar áður þá starf­aði Reynir á sölu- og mark­aðs­sviði Nóa Siríusar sem sölu­maður stór­mark­aða.

Samkvæmt skjali sem fylgdi verk­samn­ingnum er meg­in­mark­mið verk­efn­is­ins að greina núver­andi stöðu á barna­vernd­ar­þjón­ust­unni, móta stefnu og fram­tíð­ar­sýn og leggja fram aðgerð­ar­á­ætlun um nauð­syn­legar breyt­ingar. Gerð verður „ytri grein­ing“ um það umhverfi sem þjón­ustan bein­ist að og jafn­framt „innri grein­ing“ með „mæl­ingum á gæðum þjón­ust­unnar“. Þá verður sett  fram fram­tíð­ar­sýn og mark­mið til 2030 um þróun þjón­ust­unnar. Í verk­efn­inu er horft til ramma sem unnið var eftir við stefnu­mótun í heil­brigð­is­málum aldr­aðra 2015 til 2016 en Ragnar Þórir kom að þeirri vinnu. „Verk­þættir og umfang þeirra er sett  fram að stórum hluta byggt á þeirri reynslu,“ segir í fylgi­skjali verk­samn­ings­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár