Vigdís Hauksdóttir lætur víkinga bera sig í kosningamyndbandi

Mið­flokk­ur­inn sækir aftur í tím­ann í kosn­inga­mynd­bandi, þar sem Vigdís Hauks­dóttir lætur vík­inga bera sig milli borg­ar­hluta. Nýtt lógó Mið­flokks­ins í Reykja­vík skartar hrossi gegnt spít­ala.

Vigdís Hauksdóttir lætur víkinga bera sig í kosningamyndbandi
Vigdís borin Vigdís Hauks­dóttir er fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis. Mynd: Facebook / Miðflokkurinn

Vigdís Hauks­dóttir, sem sæk­ist eftir því að verða kjör­inn borg­ar­full­trúi í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í Reykja­vík fyrir Mið­flokk­inn, hefur tekið upp vík­inga­þema í kosn­inga­mynd­böndum sínum.

Mynd­bandið sýnir meðal ann­ars Vigdísi láta vík­inga bera sig á mal­ar­vegi sam­síða Vest­ur­lands­vegi. „Víkingar, niður hér,“ fyr­ir­skipar Vigdís á áfanga­stað, þar sem hún vill byggja nýjan Land­spít­ala. 

Lógó Mið­flokks­ins í Reykja­víkVísað er til stað­setn­ingar Land­spít­al­ans í lógóinu, og er ein­kenn­is­dýr flokks­ins í for­grunni.

Þá hefur lógó Mið­flokks­ins verið stíl­fært, en flokk­ur­inn á lands­vísu skreytir sig með hvítu, prjón­a­ndi hrossi undir glitr­andi norð­ur­ljósum, á meðan Mið­flokk­ur­inn í Reykja­vík skartar skugga­mynd af hrossi framan við teiknað sjúkra­hús.

„Mið­flokk­ur­inn í Reykja­vík ÆTLAR að leggja Sunda­braut. Við getum ekki enda­laust treyst á vík­inga að koma okkar á milli staða innan borg­ar­markanna,“ segir Vigdís í mynd­band­inu.

Til­ætl­unin virð­ist vera að koma á fram­færi stefnu Mið­flokks­ins, sem er að standa gegn upp­bygg­ingu Land­spít­al­ans við Hring­braut, og mæla fyrir upp­bygg­ingu fjær mið­borg­inni, við Víf­ils­staði eða Keldur.

Um helg­ina var haldið fyrsta lands­þing Mið­flokks­ins, en þar var Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son kjör­inn for­maður með 100 pró­sent atkvæða. Vigdís var áður þing­maður í Fram­sókn­ar­flokknum undir for­mennsku Sig­mundar.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2018

Hagsmunatengsl borgarfulltrúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga
ÚttektBorgarstjórnarkosningar 2018

Hags­muna­tengsl borg­ar­full­trúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga

Eyþór Arnalds situr enn í stjórnum fimm félaga og eru tvö þeirra eign­ar­halds­fé­lög með rúman einn og hálfan millj­arð í eignir. Hann lof­aði að skilja sig frá við­skipta­líf­inu þegar hann vann leið­toga­próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í jan­úar. Oddviti Við­reisnar og fleiri nýir borg­ar­full­trúar sitja í stjórnum félaga.
Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðjusamstarfi en myndaði atkvæðablokk með Sjálfstæðisflokknum
FréttirBorgarstjórnarkosningar 2018

Vildi ekki verða „hús­þræll“ í vinstri- og miðju­sam­starfi en mynd­aði atkvæða­blokk með Sjálf­stæð­is­flokknum

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, sætir harðri gagn­rýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálf­stæð­is­flokknum og Mið­flokknum af praktískum ástæðum. „Fram­kvæmd­ar­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi fyrir hönd allrar stjórn­ar­and­stöð­unnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í dag.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár