Fjár­mála­ráð: Tekju­stofnar veiktir sam­hliða for­dæma­lausri út­gjalda­aukningu

Áherslur fyrri stjórnar á aðhald, efna­hags­legan stöð­ug­leika og lækkun vaxta víkja fyrir skatta­lækk­unum og inn­viða­fjár­fest­ingum.

Fjár­mála­ráð: Tekju­stofnar veiktir sam­hliða for­dæma­lausri út­gjalda­aukningu

Fjár­mála­ráð segir fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar bera með sér að ráð­ast eigi í for­dæma­lausa aukn­ingu rík­is­út­gjalda á kjör­tíma­bil­inu um leið og tekju­stofnar hins opin­bera verði veiktir. Þannig víki áherslur fyrri rík­is­stjórnar á aðhald, verð­stöð­ug­leika og svig­rúm til vaxta­lækk­ana fyrir auknum inn­viða­fjár­fest­ingum, útgjalda­vexti og skatta­lækk­unum. 

Álits­gerð fjár­mála­ráðs um fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar barst þing­mönnum í gær­kvöldi og verður birt á vef Alþingis á næstu dögum. Þar kemur fram margs konar gagn­rýni á þetta grund­vall­arplagg rík­is­stjórn­ar­innar, en um leið er stjórn­völdum hrósað fyrir að haga vinnu sinni og fram­setn­ingu betur í sam­ræmi við grunn­gildi laga um opin­ber fjár­mál en áður. „Fram­setn­ing áætl­un­ar­innar er ítar­legri en áður og verk­lagið ein­kenn­ist af meira gagn­sæi, auk­inni var­færni og meiri festu.“

Bent er á að nýr tónn er sleg­inn í áætl­un­inni í sam­an­burði við fjár­mála­á­ætlun fyrri rík­is­stjórnar. „Fyrir ári síðan var boðað að ríki og sveit­arfélög myndu haga útgjöldum og sköttum á fyrri hluta tímabils áætl­unar með þeim hætti að þau yrðu ekki þenslu­hvetj­andi og það var grunntónn þeirrar áætl­unar. Nú er aðhaldið minna, inn­viða­fjárfest­ing boðuð og ný fyr­ir­heit gefin um útgjöld og skatta,“ segir í umsögn­inni.

„Minna fer fyrir umfjöllun um hvernig efna­hags­legum óstöðug­leika fylgi samfélags­legur kostn­aður og að það sé við­fangs­efni Seðla­bank­ans að lágmarka hann með stöðugu verð­lagi. Fyrir ári var grunn­stef fjármálastefnu og fjármálaáætl­unar að stjórnvöld styddu við pen­inga­stefn­una og stuðl­uðu þannig að lækkun vaxta. Þarna eru augljós fórnar­skipti.“ 

Fjár­mála­ráð bendir á að aukið aðhald opin­berra fjármála dregur úr þörfinni á hærra vaxta­stigi og öfugt. „Minna aðhald kallar á hærri stýrivexti að öðru óbreyttu. Minnkað aðhald er nú réttlætt með auk­inni fjárfest­ingu sem ekki er vörðuð af for­gangsröðun og gagn­sæjum mæli­kvörðum á vali fjárfest­ing­ar­kosta. Þá er for­dæma­lausri aukn­ingu útgjalda haldið áfram en tekju­hliðin veikt.“

Bent er á að mikil aukn­ing útgjalda í upp­sveiflu sam­ræm­ist ekki mark­miði laga um opin­ber fjár­mál um stöð­ug­leika. Raunaukn­ing ramma­settra útgjalda verði 47 millj­arðar árið 2018 og 34 millj­arðar á árinu 2019 og deila megi um hvort sú útgjalda­aukn­ing hafi verið rétt tímasett með til­liti til grunn­gildis rík­is­fjár­mála­lag­anna um stöð­ug­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár