Utanríkisráðherra segir Viðreisn afturhaldsflokk sem skaði EES-samstarfið

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son hædd­ist að „reynslu­leysi“ Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur þótt hún hafi setið lengur en hann á Alþingi.

Utanríkisráðherra segir Viðreisn afturhaldsflokk sem skaði EES-samstarfið
Segir Viðreisn skemma EES-samn­ing­inn Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra segir að ESB-sinnar séu skaði EES-sam­starfið. Mynd: xd.is

Guð­laugur Þór Þórð­ars­son utan­rík­is­ráð­herra sagði í umræðum á Alþingi í gær að Viðreisn þyrði ekki að gang­ast við því að vera hlynnt Evr­ópu­sam­bands­að­ild. Flokk­ur­inn væri aft­ur­halds­flokkur og skað­aði EES-sam­starfið með mál­flutn­ingi sínum. Þá hædd­ist hann að Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur með þeim orðum að reynslu­leysi hennar kæmi í veg fyrir að hún skyldi vinnu­brögðin sem ástunduð væru af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar. Þor­gerður Katrín er næst reynslu­mesti þing­mað­ur­inn sem nú situr á Alþingi, en ein­ungis Stein­grímur J. Sig­fús­son hefur setið fleiri ár á þingi en hún.

Spurði um hags­muna­gæsluÞor­gerður Katrín velti því upp á Alþingi hvort hags­muna­gæslu Íslands þegar kæmi að EES-samn­ingnum hefði ekki verði sinnt af Sjálf­stæð­is­flokknum og upp­skar mikla gagn­rýni utan­rík­is­ráð­herra fyrir vikið.

Til snarpra orða­skipta kom milli Guðlaugs Þór og Þor­gerðar í umræðum um fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í gær­kvöldi. Guð­laugur Þór var þá til svara um mála­flokk sinn, utan­rík­is­málin. Þor­gerður kom í ræðu­stól og ræddi meðal ann­ars fram­kvæmd EES-samn­ings­ins en í fjár­mála­á­ætlun 2019-2023 kemur fram að stefnt sé að öfl­ugri fram­kvæmd samn­ings­ins. Þor­gerður sagð­ist gleðj­ast yfir því en hafa áhyggjur af að á sama tíma bær­ust raddir innan úr Sjálf­stæð­is­flokknum þar sem haldið væri á lofti miklum efa­semdum um gildi EES-samn­ings­ins. Meðal ann­ars væri þar miklum efa­semdum lýst um hinn svo­kall­aða þriðja orku­pakka. Vísaði Þor­gerður þá lík­lega meðal ann­ars til þess að á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir skemmstu var sam­þykkt ályktun þar sem segir að flokk­ur­inn hafni „frekara fram­sali á yfir­ráðum yfir íslenskum orku­mark­aði til stofn­ana Evr­ópu­sam­bands­ins.“ Spurði Þor­gerður hvort ráð­herra teldi að hags­muna­gæslu Íslands hefði ekki verið sinnt þegar kæmi að EES-samn­ingnum og orku­pakk­anum, hags­muna­gæslu sem vel að merkja hefði und­an­farin ár verið á for­ræði Sjálf­stæð­is­flokks­ins í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og í iðn­að­ar­ráðu­neyt­inu.

Segir ESB-sinna skaða EES-samninginn

Guð­laugur Þór brást við þessum spurn­ingum Þor­gerðar með því að segja að það væri helst tvennt sem ógn­aði öfl­ugri fram­kvæmd EES-samn­ings­ins. Annars vegar væri það sú stað­reynd að Evr­ópu­sam­bandið legði ekki áherslu á að virða svo­kallað tveggja stoða kerfi, um sam­vinnu milli ESB og ríkj­anna sem eru aðilar að EES-samn­ingnum. Hin ógnin væri svo ESB-sinnar, bæði á Íslandi og í Noregi, sem hefðu talað niður EES-samn­ing­inn. „Og það er mjög vont,“ sagði Guð­laugur og upp­skar hneyksl­un­ar­tón úr þing­sal. „Við erum bara að sjá það, að rang­færsl­unar sem koma meðal ann­ars fram hjá hátt­virtum þing­mönnum Við­reisnar, um að 90 pró­sent af gerðum Evr­ópu­sam­bands­ins séu teknar upp í EES-samn­ing­inn. Þetta er bara kol­rangt. Þetta er 13,4 pró­sent. Þetta er lagt fram með þessum hætti til þess að reyna að búa það til að þetta sé koló­mögu­legur samn­ingur, að við verðum að ganga í Evr­ópu­sam­bandið til að hafa ein­hver áhrif á þessu svæði.“

Þor­gerður svar­aði því til að merki­legt væri hversu hér væri málum snúið á hvolf.  „Ég er hins vegar feg­inn að heyra það að nú er utan­rík­is­ráð­herra bara stafffír­ugur hér og ætlar að berj­ast fyrir EES-samn­ingnum og það vona ég að hann fari svona keikur eins og hann er hér í þessum ræðu­stóli beint heim í Valhöll og tali nákvæm­lega svona á fundi atvinnu­vega­nefndar Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem var bara í vik­unni að vara sér­stak­lega við afsali á grund­velli samn­ings­ins.“

Hæddist að Þorgerði

Þor­gerður ítrek­aði síðan spurn­ingu sína um hvort Sjálf­stæð­is­menn hefðu klikkað á vakt­inni við að verja EES-samn­ing­inn og auk þess hvort Guð­laugur Þór hefði fullan stuðn­ing Vinstri grænna hvað varð­aði sam­spil við­skipta og þró­un­ar­sam­vinnu og þeirrar túlk­unar sem fram kæmi í þeim efnum í fjár­mála­á­ætlun. Það var aug­ljós­lega seinni spurn­ingin sem Guð­laugur Þór svar­aði fyrst þegar hann kom í ræðu­stól á nýjan leik. „Ef það hefur farið fram­hjá hátt­virtum þing­manni þá er þetta plagg lagt fram sem stefna rík­is­stjórn­ar­innar, það liggur alveg fyrir, ef það hefur farið fram hjá hátt­virtum þing­manni. Hátt­virtur þing­maður er kannski bara búinn að vera svo stutt hérna að hún þekkir ekki hverjar leik­regl­urnar eru. Það er bara reynslu­leysi sem gerir það að verkum að þessar spurn­ing­arnar ganga fram eins og hér, sjáið þið,“ sagði Guð­laugur Þór, við litla hrifn­ingu þing­manna stjórn­ar­and­stöð­unnar.

„Það er bara reynslu­leysi sem
gerir það að verkum að þessar
spurn­ing­arnar ganga fram eins og hér“

Guð­laugur vék síðan aftur að EES-samn­ingnum og kall­aði Viðreisn aft­ur­hald, „sem vill ganga í Evr­ópu­sam­bandið en þora ekki að segja það, sem myndi þýða það að við værum að skerða okkar við­skipta­frelsi. Ég veit að for­ystu­menn Við­reisnar köll­uðu mig öllum illum nöfnum þegar að ég upp­lýsti úr gögnum sem voru vel falin í aðlög­un­ar­við­ræðum hvað það þýddi fyrir okkar við­skipta­stefnu ef við myndum ganga inn í Evr­ópu­sam­bandið. Það sem það þýðir er að það myndi hækka verð á vöru sem væri fram­leidd utan EES, það væri fjölgað toll­vörðum um nokkur hund­ruð og það þyrfti að setja upp tölvu­kerfi upp á að lág­marki 3,8 millj­arða til að flækja til­tölu­lega ein­falt við­skiptaum­hverfi okkar. Hvar er aft­ur­haldið? Aft­ur­haldið er hjá ESB-sinn­unum og þegar þeir eru með enda­lausar rang­færslur um EES-samn­ing­inn, þá eru þeir ekki að gera neitt annað en að grafa undan honum.

Það er alveg skýrt mark­mið hjá mér herra for­seti, það er að koma stað­reynd­unum á fram­færi og það mun ég gera. Ég skal alvega segja ykkur það, ég skal spá fyrir um það. Það mun fara illa í hátt­virta þing­menn Við­reisnar sem eru með ESB-sýk­ina og þeir munu illa þola þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár