Þingmönnum Bjartrar framtíðar hótað eftir stjórnarslit

Theodóra Þor­steins­dóttir, fyrr­ver­andi þing­kona Bjartrar fram­tíðar, segir að sér hafi verið ógnað í nafn­lausum sím­tölum eftir stjórn­ar­slitin á síð­asta ári. Hún seg­ist hafa farið að líta í kringum sig þegar hún labb­aði út úr þing­hús­inu.

Þingmönnum Bjartrar framtíðar hótað eftir stjórnarslit
Taldi sér ógnað Theodóra Þor­steins­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Bjartrar fram­tíðar, lýsti því hvernig henni var hótað í nafn­lausum sím­tölum eftir að Björt fram­tíð sleit rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu síð­ast­liðið haust. Mynd: Pressphotos / Geiri

Þingmenn Bjartrar fram­tíðar urðu fyrir hót­unum eftir að flokk­ur­inn sleit stjórn­ar­sam­starf­inu við Sjálf­stæð­is­flokk og Viðreisn á síð­asta ári. Voru hót­an­irnar meðal ann­ars settar fram í sím­tölum undir núm­era­leynd. Þetta full­yrðir fyrr­ver­andi þing­kona Bjartrar fram­tíðar og segir hót­an­irnar hafi verið með þeim hætti að hún hafi orðið ótta­slegin og dregið sig mark­visst út úr umræðu eftir stjórna­slitin.

Theodóra Þor­steins­dóttir, fyrr­ver­andi þing­kona Bjartrar fram­tíðar, var gestur Morg­un­út­varps­ins á Rás 2 í morgun og lýsti þessum hót­unum þar. „Okkur var ógnað, við fengum sím­töl sem voru með þeim hætti við ættum að hafa hægt um okkur því það væru barn­a­níð­ingar innan Bjartrar fram­tíðar. [...] Við létum nú rann­saka eitt­hvað af þessum núm­erum. Þetta voru bara svona ein­hverjir menn sem hringdu.“

Theodóra sagði umrædd sím­töl hafa verið mjög óþægi­leg, svo óþægi­leg að hún hafi ákveðið að draga sig mark­viss út úr opin­berri umræðu eftir stjórna­slitin og lét ekki ná í sig. „Ég sinnti mínu starfi og kláraði þetta en ákvað síðan að draga mig út úr þess­ari umræðu. Þetta hafði þannig áhrif að ég var farin að líta í kringum mig þegar ég labb­aði út úr þing­hús­inu,“ segir Theodóra og ját­aði því aðspurð að hún hafi verið orðin hrædd.

Hót­an­irnar voru ekki kærðar til lög­reglu, þó að Theodóra segi að ástæða hefði verið til, en þing­menn Bjartrar fram­tíðar hafi ákveðið að draga athygl­ina ekki að hót­un­unum á þessum tíma­punkti.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár